Sveitarstjórnarmál - 01.10.2001, Síða 60
Húsnæðismál
á almennan markað, en á þeim hvíla lán með
1 % vöxtum.
10. Rekstur ársins 2001 verði gerður upp eftir á
með aðstoð reiknilíkans sem tekur út rekstur
hvers og eins sveitarfélags.
Hlutverk nefndarinnar er umfangsmikið eins og
sjá má á erindisbréfi hennar. Aðaláherslan hefur
verið lögð á vanda sveitarfélaga vegna innlausnar-
íbúða. Þar er um langtímaverkefni að ræða eins og
í húsnæðismálum almennt. Verði farið eftir hug-
myndum og tillögum nefndarinnar mun það breyta
stöðunni töluvert í þessum málaflokki hjá sveitar-
félögunum. Hlutfall félagslegra eignaríbúða er
misjafnt í sveitarfélögum. Til eru dæmi um sveitar-
félög sem hafa þurft að innleysa allar íbúðir í fé-
lagslega kerfinu vegna þeirrar lagaskyldu sem hvíl-
ir á sveitarfélögunum. Sums staðar eru allar þessar
íbúðir í útleigu og standa þar með undir rekstri
þeirra að mestu leyti. Annars staðar eru auðar
íbúðir sem þýðir aukinn rekstrarkostnað viðkom-
andi sveitarfélags eða öllu heldur lægri tekjur.
Ekki má gleyma því að öllum sveitarfélögum er
nauðsynlegt að hafa yfir einhverjum leiguíbúðum
að ráða. Þess vegna er vandinn ekki eins gríðarleg-
ur og hann virðist við íyrstu sýn þegar heildartölur
yfir fjölda íbúða og skuldir vegna þeirra eru skoð-
aðar. Fyrst og fremst er um að ræða viðfangsefni í
afmörkuðum ijölda sveitarfélaga þar sem staðan er
hvað verst. Þar er um að ræða að taka kúfinn af ef
svo má að orði komast. Þegar því verkefni, sem
getur tekið nokkur ár, er lokið er komin upp allt
önnur staða og mun viðráðanlegri. Með þetta í
huga er undirritaður bjartsýnn á framtiðina í rekstri
félagslegra leiguíbúða sveitarfélaga.
Sérfræðinqar í rafhit
ft-.... i Framleiðum allar gerðir af rafhiturum stórum og 1 ^ -r., 1 i
Rafhitarar í skip, hús, sumarhús og heita potta
f 7 Úl * Ijlai
Sérsmíðum hitöld (element)
eftir pöntunum, hvort sem hita þarf
upp loft, vatn, olíu eða annað
Glerhúðaðir (emeleraðir) neysluvatns-
kútar, frá Fagor og Rheem, frá 10 til 456 Itr.
Einnig ryðfríir neysluvatnskútar frá
Meretank as. Noregi, 40 til 300 Itr.
Rafhitun s/f - Kapiahrauni 7a - Hafnarfirði
Sími 565 3265 - Fax 565 3260 netfang rafhitun@rafhitun.is - www.rafhitun.is