SunnudagsMogginn - 27.11.2011, Side 38
38 27. nóvember 2011
Tímamót urðu í raforkuframleiðslu landsmanna þegar Sig-ölduvirkjun var tekin í notkun um miðjan áttunda áratug-inn. Þetta var á þeim árum þegar önnur viðmið giltu umbyggingu virkjana en nú er. Óumdeilt var að virkja skyldi en
þekkt stef í umræðu þessara ára er að væru aflstöðvar ekki reistar
„rynnu árnar óbeislaðar til sjávar og engum til gagns,“ eins og komist
var að orði. Ekki voru til staðar þær pólitísku væringar sem nú eru til
staðar þegar virkja skal; samstaða var um virkjunarmál og kröfur í
umhverfismálum aðrar.
Bygging Sigöldustöðvar var annar stóráfanginn í virkjun fallvatna á
Þjórsársvæðinu. Áður hafði orkuver verið reist við Búrfell undir
Sámsstaðamúla, fyrsta stórvirkjun Íslendinga. En svo var hafist handa
við Sigöldu, en með tilkomu þeirrar virkjunar jókst framleiðslugeta
Landsvirkjunar um 850 millj. kílóvattstunda eða um 40%. Það mun-
aði um minna.
Framkvæmdir við Sigöldu voru í hámarki sumarið 1976 þegar þarBygging Sigölduvirkjunar í kringum 1975 var stórvirki. Júgóslavar voru í lykilhlutverki við framkvæmdir.
Myndasafnið 1976
Sagan af
Sigölduvirkjun
Það hljóp heldur betur á snærið hjá aðdáendumPrúðuleikaranna í vikunni þegar bandarískasjónvarpsstöðin NBC gaf leyfi fyrir gerð nýrraþátta um Kermit, Ungfrú Svínku og föruneyti
þeirra. Viðbrögð leikra sem lærðra voru á einn veg:
Jibbí!
Prúðuleikararnir eru afkvæmi bandaríska brúðu-
meistarans Jims Hensons og voru upprunalegu þætt-
irnir framleiddir í Bretlandi á árunum 1976-81 – við
gríðarlegar vinsældir. Markmið Hensons
var að búa til sjónvarpsefni fyrir börn á
öllum aldri og tókst það vonum fram-
ar. Um leið og Kermit og félagar
skemmtu yngstu kynslóð-
inni, skutu þeir föstum
skotum vítt og breitt um
samfélagið, satírískir á
svip. Þar voru í fylking-
arbrjósti hinir skeleggu
þjóðfélagsrýnar, Waldorf
og Statler, sem létu aur-
sletturnar ganga yfir menn og
málleysingja úr sætum sínum á
svölum Prúðuleikhússins. Nöfn sín
draga þeir kumpánar af tveimur hót-
elum í New York og eðli málsins sam-
kvæmt er Waldorf kvæntur konu sem heitir
Astoria.
Ekki skemmdu gestir úr mannheimum
heldur fyrir en slegist var um að koma
fram með Prúðuleikurunum. Þótti
stöðutákn. Leikarar og tónlistarmenn
voru hvergi bangnir að sleppa
fram af sér beislinu og Elton
John hefur ugglaust talað
fyrir munn margra þegar
hann sagði gestaleik sinn í
Prúðuleikurunum vera það
skemmtilegasta sem hann
hefði gert um dagana. Og
kunni hann þó aldeilis að skemmta sér á áttunda ára-
tugnum.
Ný kvikmynd um leikarana prúðu var frumsýnd í
Ný kvikmynd, nýir þættir. Prúðuleik-
ararnir eru komnir aftur – hressari en
nokkru sinni fyrr. Og háðskari.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Fyndnasti froskur allra tíma, Kermit,
sultuslakur – aldrei þessu vant.
Lífi blásið í
brúðurnar
Kermit, Dýri, Fozzi, Walter, Hrólfur og Gunnsi mæta á frumsýningu myndar um Prúðuleikarana á dögunum.
Reuters
Frægð og furður