SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 4
4 25. desember 2011 Charles Dickens var alla tíð mikill áhugamaður um höfundarrétt og barðist ötullega fyrir þeim málum í Bretlandi – með góðum árangri. Bæði var hann að hugsa um eigin hag en ekki síður barnanna sinna eftir sinn dag. Upp til hópa sýndu menn þessu skilning í Bret- landi en höfundarréttarmál voru mun skemmra á veg komin í Bandaríkjunum og þegar Dickens kom þangað í upplestrarferð öðru sinni 1868 mætti hann nokkurri óvild. Sjóræningjaforlög önnuðust útgáfu verka hans og menn skildu ekki hvers vegna taka þyrfti tillit til óska höfundarins í þessu sambandi. Fyrir vikið var viðstöddum ekki skemmt þegar Dickens vék að höfundarrétti í fyrstu ræðu sinni í Ameríkuferðinni. Útgangspunkturinn var sá að settu Bandaríkjamenn ekki lög um höfundarrétt á alþjóðlegum grundvelli myndu þeir aldrei eignast sínar eigin bókmenntir. Þegar Dickens yfirgaf landið var hann almennt álitinn ágjarn og peningadrifinn maður. En auðvitað sáu Bandaríkjamenn á endanum að hann hafði á réttu að standa. Barðist af krafti fyrir höfundarrétti Sir Alec Guinness sem Fagin og John Howard Davies sem Óliver Twist í kvikmynd Davids Leans frá 1948. Árið 2012 verður ár Charles Dickens enþá verða tvö hundruð ár liðin frá fæð-ingu hins mikla breska skáldjöfurs.Enda þótt hann hafi safnast til feðra sinna árið 1870 er ekkert lát á vinsældum Dickens, hvert mannsbarn þekkir sögurnar hans og kar- akterana. Hafi menn ekki lesið bækurnar hafa þeir örugglega farið á leikritið eða séð bíómyndina – oftar en einu sinni. Er Dickens jafnvel líka til í tölvuleikjaformi? Fá vörumerki – leyfist manni að taka þannig til orða – eru verðmætari í heimi menningar og lista en Charles Dickens. Höfuðvígi hátíðahaldanna vegna tvö hundruð ára fæðingarafmælis höfund- arins verður vitaskuld Lundúnir en fastlega má reikna með að hans verði minnst vítt og breitt um heiminn. Fjárhagsáætlun liggur ekki fyrir en Florian Schweizer, framkvæmdastjóri Dickens- safnsins og verkefnisins Dickens 2012, segir að fastlega megi taka mið af hátíðahöldunum í tilefni af 250 ára fæðingarafmæli Wolfgangs Amadeusar Mozarts í Vínarborg árið 2006. Tæpir fjórir millj- arðar króna voru lagðir í þau herlegheit og skiluðu þeir sér tvöfalt til baka – og ríflega það. Áætlað er að heildarveltan vegna afmælis Mozarts á heims- vísu hafi slagað í 60 milljarða króna. Hefði kunnað að meta tilstandið Hátíðahöldin á næsta ári munu teygja anga sína frá New York til Zürich, frá París til Toronto, auk þess sem dagskrá verður á nokkrum stöðum í Eng- landi, þ.e. Lundúnum, Kent og Portsmouth. Af- mælið ætti með öðrum orðum að örva ferða- mennsku innanlands. Hætt er raunar við að enska þjóðin verði á hvolfi á næsta ári en auk afmælis Dickens verður haldið upp á sextíu ára krýning- arafmæli Elísabetar II drottningar og Ólympíu- leikarnir fara fram í Lundúnum. Mönnum er því hollara að gera hótelráðstafanir í tíma. En hvað ætli Dickens gamla hefði fundist um allt tilstandið? Færa má fyrir því skynsamleg rök að það hefði alls ekki verið honum á móti skapi. Sum skáld spyrja ekki um peninga en Dickens var ekki í þeim hópi. Faðir hans rataði snemma í fjárhagslegar ógöngur og sat um tíma inni vegna skulda. Þær raunir höfðu djúpstæð áhrif á hinn unga Dickens og upp frá því tengdi hann peninga alla tíð við hamingju, líkt og einn karaktera hans, herra Mi- cawber í David Copperfield. Gróði er ígildi ham- ingju, skuld ígildi volæðis. Dickens var fyrir vikið aldrei feiminn við að rukka fyrir verk sín. Meðan hann var á hátindi frægðar sinnar nutu upplestrar Dickens gríðarlegrar lýðhylli og dæmi um að hann þénaði allt að sex milljónir króna á kvöldi. Hann las þá úr helstu verkum sínum, svo sem Jólasögu, Óliver Twist og Nikulási Nickleby, með slíkum tilþrifum að fólk dreif að. Enginn vildi missa af upplifuninni og Dickens fyllti heilu leik- húsin – kvöld eftir kvöld. Dickens hafði sjálfur yndi af lestrinum, bæði sem höfundur en ekki síður teknanna vegna. Til eru dæmi um að hann hafi líkt áheyrendum við „pund“ og „dali“ í bréfum til vina sinna. Fræg er skopmynd af Dickens frá 1868, þar sem hann telur myndarlegt seðlabúnt eftir upplestur, heldur hryggur yfir því að búntið sé ekki þrútnara. Charles Dickens var vinsæll upplesari á sinni tíð. Og þénaði vel. Malar gull löngu eftir dauðann Charles Dickens aldrei vinsælli en á 200 ára afmælinu Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Jim Carrey í hlutverki Scrooge í Jólasögu frá 2009. Charles Dickens fæddist í Portsmouth 7. febrúar 1812. Hann er af mörgum álitinn fremsti rithöfundur Viktor- íutímans í Englandi, dáður fyr- ir stílsnilld og framúrskarandi persónusköpun, en þótti einn- ig skeleggur þjóðfélagsrýnir. Hann lést 9. júní 1870, að- eins 58 ára. Charles Dickens á efri árum. Stílsnilld og þjóðfélagsrýni 1198kr.kg Krónu hamborgarhryggur Norðlen sk gæði – fyrst og fre mst ódýr!

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.