SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 28

SunnudagsMogginn - 25.12.2011, Blaðsíða 28
28 25. desember 2011 varaformann, þótt ég ætti ekki von á að ná kjöri, og lýsti yfir stuðningi við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Ég tel að það hefði orðið mikil fylgisaukning til flokksins hefði hún verið kos- in. Nú óttast ég, en vona að ótti minn reynist ástæðulaus, að nýir flokkar muni koma fram á sjónarsviðið og ná fylgi, sem leiði til þess að Sjálfstæðisflokkurinn verði utan stjórnar í sex ár.“ Hefurðu hugsað þér að fara í framboð til Al- þingis? „Já.“ Heldurðu að það sé gaman að vera á þingi? „Nei. En það eru svo mörg réttlætismál sem mér finnst að menn taki ekki á að ég sé mér ekki annað fært en að bjóða mig fram til að reyna að leiðrétta þau. Ég hef alltaf verið þeirr- ar gerðar, að ef ég sé óréttlæti þá berst ég af alefli á móti því. Mikill ójöfnuður blasir við í ís- lensku þjóðfélagi og við glímum við erfiðleika sem við virðumst ekki ætla að komast upp úr meðan núverandi stjórn er við völd. Við getum heldur ekki endalaust höggvið á þá samhjálp sem kristin kirkja stendur fyrir. Ég ætla að gefa kost á mér til framboðs við næstu kosningar og jafnframt að skora á nýtt fólk að koma fram í Sjálfstæðisflokknum og gefa kost á sér til starfa á Alþingi. Svo ræðst það hvort ég verð kosinn, en segi: Ef Sunnlendingar þora að kjósa mig, þá læt ég muna um mig.“ Sterk þjóðkirkja Á sínum tíma sastu í kirkjuráði þar sem þú varst gagnrýninn á þjóðkirkjuna vegna að- gerðarleysis í málum Ólafs Skúlasonar. „Ég sagði það sem mér fannst vera rétt á þeim tíma. Ég stóð frammi fyrir Ólafi Skúla- syni, gagnrýndi hann og átti þátt í því að hann varð að segja af sér.“ Finnst þér þjóðkirkjan ekki hafa tekið rétt á þeim málum sem kennd eru við Ólaf Skúlason? „Þetta er eitt erfiðasta mál sem þjóðkirkjan hefur mætt frá siðaskiptum, en ég fullyrði að reynt var að gera það eins vel og hægt var. Nú- verandi biskup var í afar erfiðri stöðu, einkum þegar hann stóð frammi fyrir því að móðir Guðrúnar Ebbu, bróðir og fleiri voru með aðra framsetningu en Guðrún Ebba, þá var ekki sjálfgefið hvernig hann ætti að taka á málinu. Ég hafði hins vegar aðra afstöðu en biskup vegna fyrri kynna og samskipta við Ólaf biskup S éra Halldór Gunnarsson í Holti starfaðií 44 ár sem sóknarprestur í Holti íRangárvallaprófastsdæmi. Hann vann ímörg ár í félagsmálum bænda, sat á kirkjuþingi og í kirkjuráði og er nú formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Rangárvalla- sýslu. Halldór er ekki sestur í helgan stein, rek- ur búskap á bæ sínum og hyggur til hreyfings í pólitíkinni. Hann er dyggur sjálfstæðismaður og bauð sig fram til embættis varaformanns á síð- asta landsfundi. Hann hefur gagnrýnt forystu Sjálfstæðisflokksins harðlega og fyrsta spurn- ingin snýr einmitt að þeirri gagnrýni. Hvað finnst þér að flokksforystu Sjálfstæð- isflokksins? „Flokksforystan og þingflokkurinn hafa ekki haldið á málum af nægilegum krafti. Þar má nefna ansi margt. Eftir hrun hefur lítið sem ekkert verið gert fyrir heimilin í landinu og Sjálfstæðisflokkurinn beitir sér ekki ötullega fyrir leiðréttingu á því. Nær öll landbúnaðar- heimili landsins eru í miklum vanda því helstu kostnaðarliðir við búið hafa hækkað um 100 prósent eða meira, en afurðaverð til bænda hefur aðeins hækkað um 25-30 prósent á sama tíma. Ýmis óuppgerð mál fyrir hrun eru enn eins og þrumuský yfir flokknum okkar. Á landsfundi fyrir ári talaði ég um að ákveðnir þingmenn yrðu að segja af sér og á nýliðnum landsfundi minnti ég á að forystan hefði ekki tekið á því. Ég vil líka nefna landsdómsmálið. Það er skiljanlega mikilvægt fyrir Bjarna Benediktsson að leggja fram á þingi þingsályktunartillögu um afturköllun ákæru á hendur Geir Haarde. En ég tel að sjálfstæðismenn hafi klúðrað því máli í upphafi. Þeir áttu að krefjast þess að ann- aðhvort færi öll fyrrverandi ríkisstjórn fyrir landsdóm eða enginn og þeir áttu að ganga fram af fullri hörku í því, að ekki væri hægt að afgreiða málið eins og það var gert. Þjóðin hefði skilið það og aldrei samþykkt að einn maður væri tekinn út og dreginn fyrir dóm. Að lokum nefni ég að núna þegar Icesave-málið er að fara fyrir dóm á þingið að krefjast dóms yfir Bretum fyrir að hafa sett á okkur hryðjuverkalög og krefjast mjög hárra skaðabóta. En enginn talar um það af alvöru. Forysta flokksins hefur tekið þessi mál vett- lingatökum. Þess vegna taldi ég að við yrðum að kjósa nýja forystu. Ég bauð mig fram sem Viðtal Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Varð fyrir köllun Séra Halldór Gunnarsson í Holti ætlaði sér ekki að verða prestur en varð fyrir köllun sem hann gat ekki annað en hlýtt. Í viðtali ræðir hann um trúna, þjóðkirkjuna og þýðingu jólanna. Hann ræðir einnig um stjórnmálin, en hann hefur ákveðið að gefa kost á sér til starfa á Alþingi. Ljósmynd: Kjartan Þorbjörnsson golli@mbl.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.