Morgunblaðið - 02.11.2012, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.11.2012, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2012 Bragi Steinarsson, fyrr- verandi vararíkis- saksóknari, lést að morgni miðvikudags 31. október, 76 ára að aldri, eftir langvinn veikindi. Bragi fæddist 14. mars 1936 í Reykjavík. Foreldrar hans voru hjónin Steinarr Stefán Stefánsson versl- unarstjóri og Ása Sig- urðardóttir húsmóðir. Bragi lauk prófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1956 og síðan lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands með I. einkunn árið 1962. Hann fékk löggildingu sem sækjandi opinberra mála 1965. Sam- hliða námi starfaði Bragi á skrifstofu Alþingis og síðar þingfréttaritari ríkisútvarpsins, starf sem hann sinnti samhliða aðalstarfi fram til 1972, en margir muna eftir Braga sem þing- fréttaritara í útvarpi um áratuga- skeið. Við námslok í Háskólanum var hann ráðinn sem fulltrúi og síðar deild- arstjóri saksóknara ríkisins. Bragi varð saksóknari 1976 og vararíkissaksóknari frá 1977 fram að starfs- lokum árið 2003. Hann flutti fjölda mála fyrir ákæruvaldið í héraði og fyrir Hæstarétti. Bragi kenndi þjóðarrétt við Stýrimannaskólann í Reykjavík árin 1968- 1980. Bragi fór í fjölda námsferða til Kaupmannahafnar þar sem hann kynnti sér störf og úr- vinnslu mála hjá saksóknara og sam- ræmdi við störf saksóknara ríkisins. Hann var í yfirkjörstjórn Reykja- víkurkjördæmis norður frá árinu 2003. Eiginkona Braga er Ríkey Rík- arðsdóttir hjúkrunarfræðingur. Börn þeirra eru Eiríkur verkfræðingur, Björk hjúkrunarfræðingur og Stein- arr flugstjóri. Andlát Bragi Steinarsson „Má þetta án þess að tala fyrst við mann?“ segir Harpa Grímsdóttir, hönnuður í Garðabæ, að hafi verið fyrstu viðbrögð sín þegar hún opn- aði bréf frá forsætisráðuneytinu í fyrradag og sá að hún hafði verið skipuð í vísinda- og tækniráð til þriggja ára. Með skipunarbréfinu, sem er undirritað af forsætisráðherra, fylgdi listi yfir aðal- og varamenn ráðsins. Efst voru nöfn sex ráðherra og neðar mátti sjá að Harpa Grímsdóttir, útibússtjóri Snjóflóðaseturs Veðurstofu Íslands á Ísafirði, var í ráðinu tilnefnd af atvinnu- og ný- sköpunarráðherra. „Mér létti þegar ég uppgötvaði mistökin og varð hugsað til þess ef þetta hefði verið eitthvert merkilegra plagg.“ Harpa Grímsdóttir á Ísafirði hafði ekki fengið staðfestingu á skip- uninni í bréfi, þegar Morgunblaðið heyrði í henni í gær, en benti á að varamaður sinn hefði fengið bréf þess efnis á mánudag. Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri í atvinnu- og nýsköpunarráðuneyt- inu, hefði hringt í sig fyrir um mánuði og hún hefði samþykkt að taka sæti í ráðinu en undraðist að hafa ekki fengið skipunarbréf. „Það hlaut að vera,“ sagði hún þegar henni var sagt að nafna hennar í Garðabæ hefði fengið bréfið. Jóhann Hauksson, upplýsingafulltrúi í forsætisráðuneytinu, vissi ekki af mistökunum, þegar Morgunblaðið hafði samband í gær en gekk strax í málið og í kjölfarið var Hörpu á Ísafirði sent skipunarbréf. Í því kemur fram að ekki er greidd þóknun fyrir setu í ráðinu. Má skipa mann án þess að tala fyrst við mann?  Skipunarbréf ráðherra sent á konu í öðrum bæ Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Launakostnaður borgarinnar eykst um u.þ.b. 3,4 milljarða á næsta ári miðað við fjárhagsáætlun Reykja- víkurborgar. Í greinargerð segir að þar af nemi kostnaðaráhrif kjara- samninga um einum og hálfum millj- arði, gjaldfærsla lífeyrisskuldbind- inga er um einum milljarði hærri en á síðasta ári og sömuleiðis magn- breytingar og önnur áhrif. Kostnað- ur borgarinnar við laun og launa- tengd gjöld innan A-hluta miðað við fjárhagsáætlun fyrir næsta ár verð- ur 41,8 milljarðar króna en var um 36 milljarðar króna árið 2008 á verðlagi eins og það var í september 2012. Skatttekjur aukast um 4,8 milljarða á milli ára Rekstrargjöld borgarinnar hækka um 5,4 milljarða króna milli áranna 2012 og 2013. Eins og áður segir munar um hækkandi launakostnað en einnig segir í áætluninni að annar rekstrarkostnaður hækki um 1,8 milljarða miðað við útkomuspá. Mið- að við verðlag nú voru rekstrargjöld borgarinnar árið 2008 73,8 milljarð- ar. Á næsta ári eru gjöldin áætluð 75,4 milljarðar. Þess ber að geta að árið 2011 færðust málefni fatlaðra á hendur sveitarfélaganna frá ríkinu. Skatttekjur Reykjavíkurborgar á næsta ári verða 65,5 milljarðar eftir framlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfé- laganna. Skatttekjur borgarinnar í ár eru áætlaðar 60,7 milljarðar og hækka því um 4,8 milljarða. Skatt- tekjurnar á næsta ári verða ívið minni en skatttekjur ársins 2008 færðar á verðlag í september 2012. Skatttekjur borgarinnar árið 2013 verða hins vegar 10,6 milljörðum hærri en árið 2010 miðað við verð- lagsforsendur í síðasta mánuði. Með færslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga árið 2011 hækkaði leyfilegt útsvar sveitarfélaga um 1,2 prósentur. Í upphafi árs 2011 hækk- aði Reykjavíkurborg útsvar úr 13,03% í 14,40. Í júlí sama ár hækk- aði útsvarið í 14,48 eða í hámarks- hlutfall leyfilegs útsvars. Tap í ár, afgangur á því næsta Rekstrarniðurstaða fjárhagsáætl- unar 2013 fyrir A-hluta gerir ráð fyr- ir 329 milljóna króna afgangi. Út- komuspá gerir ráð fyrir 41 milljónar króna tapi í ár. Rekstarniðurstaða A-hluta var jákvæð árin 2008-2010 en neikvæð 2011 um þrjá milljarða, reiknað á núverandi verðlagi. Forsendur fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar byggjast á þjóð- hagsspá Hagstofu Íslands. Síðasta spá Hagstofunnar er frá því í júlí. Launakostnaður borgarinnar eykst  Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir afgangi á A-hluta 2013 Yfirlit yfir tölur í rekstri borgarinnar frá 2008 Um er að ræða tölur úr A hluta, til A hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Tölur er reiknaðar á verðlagi eins og það var í september 2012. (*Tölur fyrir 2013 eru skv. fjárhagsáætlun.) Skatttekjur á verðlagi 2012 (milljarðar króna) Rekstrartekjur samtals á verðlagi 2012 (milljarðar króna) Laun og launatengd gjöld á verðlagi 2012 (milljarðar króna) Annar rekstrarkostnaður á verðlagi ársins 2012 (milljarðar króna) Rekstrargjöld samtals á verðlagi ársins 2012 (milljarðar króna) Rekstrarniðurstaða á verðlagi ársins 2012 (milljarðar króna) -0,048 -3 1,65 3,71 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11 ‘12 ‘13* 2,99 30,1529,1529,4635,1 60,7 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11 ‘12 ‘13* 61,3654,959,14 66,1 65,5 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11 ‘12 ‘13* 70,872,5867,169,6 76,44 76,2 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11 ‘12 ‘13* 38,341,6834,8833,9835,97 41,8 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11 ‘12 ‘13* 28,2 30 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11 ‘12 ‘13* 7075,1267,3266,1273,84 75,4 0,329 Þróun útsvars og fasteignaskatta Tölur fyrir árið 2012 miðast við útkomuspá í fjárhagsáætlun f/2013. Tölur fyrir árið 2013 miðast við fjárhags- áætlun f/2013. Við tilfærslu á þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga árið 2011 hækkaði bæði hámarks- og lágmarkshlutfall útsvars hjá sveitarfélögum um 1,20%. Útsvar í Reykjavík var hækkað úr 14,40% í 14,48% þann 1.7 2011. Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2013. Útsvarsprósenta í Reykjavík (%) A-flokkur, íbúðarhúsnæði Álagningsprósentur fasteignaskatta (%) B-flokkur, opin- berar byggingar C-flokkur, atvinnuhúsn. og annað húsnæði 15,0 14,5 14,0 13,5 13,0 12,5 12,0 0,24 0,23 0,22 0,21 0,20 0,19 0,18 0,17 2,0 1,8 1,6 1,4 1,2 1,0 2,0 1,8 1,6 1,4 1,2 1,0 2008 2012 2008 2013 2008 2013 2008 2013 1,65% 1,65% 1,32% 1,32%0,214% 0,2%13,03% 14,48% Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Thelma Clausen Þórðardóttir hefur tekið við stöðu yfirmanns stjórn- sýslusviðs embættis Ríkislög- reglustjóra. Thelma tekur við starfi af Guðmundi Guðjónssyni, sem lát- ið hefur af störfum vegna aldurs. Thelma tók BA-próf í lögfræði í Frakklandi og lauk meistaraprófi í lögfræði í Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað hjá ríkislög- reglustjóra frá árinu 2004. „Þetta leggst afskaplega vel í mig. Ég tel mig heppna að fá að vinna með þessum kraftmikla hópi sem starfar innan lögreglunnar,“ segir Thelma í samtali við Morgun- blaðið. Lögreglan eflist og styrkist Hlutfall kvenna hjá lögreglunni var rúm 11,7% samkvæmt skýrslu frá embætti ríkislögreglustjóra frá árinu 2011. Þrátt fyrir það segir Thelma lögregluna góðan vinnustað fyrir konur. ,,Ég myndi alls ekki segja að lögreglan væri ókvenvænn vinnustaður,“ segir Thelma. Stjórnsýslusvið er eitt af þremur sviðum embættis Ríkislög- reglustjóra. Hin sviðin eru rekstrarsvið og löggæslu- og ör- yggissvið. Undir stjórnsýslusvið heyrir lögfræðideild, stoðdeild, mannauðs- og tölfræðideild og pen- ingaþvættisskrifstofa. Thelma starfaði sem sumar- afleysingamaður í lögreglunni árin 2001-2003 en hóf störf hjá embætti ríkislögreglustjóra árið 2004. „Þetta er sá vettvangur sem ég valdi mér og hef afskaplega gaman af,“ segir Thelma. Hún segir það vissulega svo að krefjandi sé að setjast í þessa stöðu. Sérstaklega þegar tekið sé mið af þeim niðurskurði sem emb- ætti Ríkislögreglustjóra hefur mátt sæta á undanförnum árum. „Við höfum þurft að laga okkur að breyttum aðstæðum. Nú liggur fyrir Alþingi nýtt frumvarp til lög- reglulaga. Vonandi leiða þau til þess að lögreglan eflist og styrk- ist,“ segir Thelma. Engar stórar breytingar Á stjórnsýslusviði eru ellefu starfsmenn. Thelma á ekki von á miklum áherslubreytingum. „Það liggja ekki fyrir stórar breytingar á starfseminni enda kemur stefnu- mótun frá embættinu í heild,“ segir hún. Thelma Cl. Þórðardóttir ásamt Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra. Kvenvænn vinnustaður  Thelma Clausen Þórðardóttir hefur verið ráðin yfirmaður stjórnsýslusviðs hjá embætti Ríkislögreglustjóra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.