Harmonikublaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 7

Harmonikublaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 7
HARMONIKUBLAÐIÐ VIÐTAL VIÐ: Daginn eftir ókum við um Snæfellsnes og skoðuðum ýmsa staði og náttúrufyrir- bæri. í ferðalok er við komum til Reykjavíkur tók Friðjón Hallgrímsson formaður Félags harmonikuunnenda í Reykjavík, með fríðu föruneyti, á móti okkur og bauð til kvöld- verðar á veitingastað í boði félagsins. Lítil saga til gamans, Lars hafði með- ferðis marga geisladiska með ýmsum gömlum harmonikuleikurum sem hann spilaði fyrir mig á leiðunum og spurði gjarnan, hver spilar núna? Oft tóks mér að geta rétt, þökk sé Sigurjóni bróður mínum á Hrafnabjörgum en hann hefur sent mér margar upptökur af gömlum hljómplötum sem hann hefur safnað. Eftir námsskeiðin voru útbúnar nótna- bækur með því efni sem tekið var til með- ferðar og þeim dreift til þátttakenda, var þar að verki Árni Sigurbjarnarson skóla- stjóri og harmonikukennari á Húsavík og á hann miklar þakkir skildar fyrir. Ég held að ég geti best lýst þvf, hve námskeið þessi tókust vel og hve ánægðir þátttakendur voru með kennarann að ég held að allir þeir sem voru á seinna náms- skeiðinu hafi spurt mig " Hvenær kemur hann aftur". Kveðja með tilhlökkun í brjósti um enn- þá meiri samskipti, á landsmótinu á ísa- firði í sumar. Við hlökkum öll til, og góða veðrið verð- ur með okkur eins og ævinlega. Við sjá- umst. Guðmundur Samúelsson, harmoniku-kennari Reykjavík PISTILL Harmonikufélag Reykjavíkur Af Harmonikufélagi Reykjavíkur eru þessar fréttir að færa. Félagið hefur tveimur hljómsveitum á að skipa. Þær eru .Stormur og Léttsveit. Stormurinn æfir og spilar undir stjórn Arnar Falkners og spilar aðal- lega klassiska tónlist, en Léttsveitin, æfir undir stjórn Jóhanns Gunnarssonar og spilar eins og nafnið gefur til kynna Iétta músik og danstónlist. Báðar sveitirnar æfa einu sinni í viku, Stormur á mánudögum og Léttsveit á miðvikudögum, tímabilið frá septembertil maí. Félagið stendur fyrir dansleikjahaldi einu sinni til tvisvar í mánuði auk ýmissa ann- arra uppákoma eins og að spila fyrir aldr- aða á Reykjavíkursvæðinu og einnig á 17.júni. Auk þess hefur félagið spilað á menningarnótt Reykjavíkurborgar frá byrj- un. Þá stendur félagið fyrir Degi Harmon- ikunnar í Ráðhúsi Reykjavíkur, bæði í nóv- ember og mars og eru þeir haldnir til að kynna harmonikuna og auka áhuga á henni. Koma þar fram félagar og góðir gestir og er af hin besta skemmtun. Þá stendur félagið fyrir Hátíð harmonikunnar, sem verður haldin 4. maí n.k. í Ásgarði, (Glæsibæ), og koma þarf fram fjöldi harm- onikusnillinga. Æft er á fullu fyrir Lands- mótið í sumar auk þess er æft fyrir Kana- daferð félagsins, sem farin verður 31. júlí og verður farið á slóðir Vestur-íslending- anna og tekið þátt í hátíðahöldum íslend- ingadagsins og mun ferðin taka 15 daga. Þetta er nú það helsta, sem er að frétta af okkur. Harmonikufélag Reykjavíkur óskar Lands- sambandinu til hamingju með blaðið og árnar þvi allra heilla í blaðaútgáfunni. Félagskveðjur )ón Berg JÓN ÁRNI SIGFÚSSON Á þessum diski leikur Jón Árni Sigfússon í Mývatnssveit 19 huglúf lög sem flestir þekkja. Fjögur laganna eru eftir Jón sjálfan. Með honum leikur dóttursonur hans Gunnar Benediktsson á Óbó. Gunnar hefur leikið með afa sínum frá því að hann var 9 ára. MéMBm ©IJiM'ÍA VERKSTÆÐITIL ALHLIÐA VIÐGERÐA Á HARMONIKUM AÐ KAMBASELI 6, RVK HAFIÐ SAMBAND VIÐ GUÐNA í SÍMA 567 0046 SUMARMOT HARMONIKUUNNENDA VESTURLANDS 2002 Verður haldió í Fannahlíð í Skilmannahreppi norðan Akrafjalls helgina 12. -14. júlí. Hvetjum fólk til að koma og njóta skemmtilegrar helgar við spil og spjall. Dansað föstudag og laugardag. Næg tjaldstæði. Allir velkomnir. Upplýsingar gefur Rafn í síma 696 9745 og Þórður í síma 431 2692. Stjórnin

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.