Harmonikublaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 13

Harmonikublaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 13
HARMONIKUBLAÐIÐ FERÐASAGA Ásgeir Lárusson og Þorlákur Friðriksson tóku lagið í gömlum banka í Færeyjum í boði eldri borgara í Færeyjum. unni þar sem við hlíddum á söng hjá norskum karlakór og enduðum á því að fara út að Kirkjubæ þar sem staðarhaldar- inn, sjálfur bóndinn á Kirkjubæ, tók á móti okkur og leiddi okkur um staðinn og sagði sögu Kirkjubæjar. í hópnum reyndist vera fjarskildur ættingi bóndans enda ekki skrítið því hann á ættir að rekja að Karlsskála í Reyðarfirði að hluta. Um kl.16. lagði hópurinn af stað til Fuglafjarðar en þar beið okkar matarveisla í boði ÁFR. Fuglafjörður er fallegur bær á Austurey með um 1500 íbúa. jónsvein Poulsen tók á móti hópnum og byrjaði á því að fara með okkur um bæinn og síðan skoðuðum við stórglæsilega kirkju þeirra Fuglfirðinga og þar tókum við stutta sön- gæfingu fyrir kvöldið. Við borðuðum í húsi eldriborgara í Fuglafirði og eftir glæsilega matarveislu var sungið dansað og spilað langt fram eftir nóttu. Eldriborgarar í Fuglafirði komu til að vera með okkur á ballinu og til að kenna okkur sporin í fær- eyska dansinum sem allir tóku þátt í bæði ungir og aldnir af mikilli ánægju. Eftir borðhald heiðraði menntamálaráðherra Færeyja okkur með heimsókn sinni og var með okkur fram eftir kvöldi. Á ballinu skiptust hóparnir á að spila en undir lokin var þetta orðin stórhljómsveit íslenskra og færeyskra harmonikuleikara. Sunnudaginn 9.júní áttum við boð frá vinabæ Neskaupstaðar í Færeyjum Sand- vogi á Vogey. Þangað fórum við eftir há- degið í sama góða veðrinu og verið hafði dagana á undan. Við fórum með rútuna og bílana í ferjuna sem beið okkar í Vest- manna og flutti okkur yfir Vestmannasund. Þar tók á móti okkur Sigurður Petersen sem fór með okkur um Vogey og greindi frá því sem fyrir augu bar. í Sandvogi héidum við stutta útitónleika og seinna um kvöldið vorum við aftur með tónleika á Hótel Vog- um þar sem okkur var haldin glæsileg mat- arveisla í boði kommúnunnar í Sandvogi. Þar var m.a. mættur einn af þingmönnum Færeyinga ióhannes Nilson ásamt konu sinni og drengjum. Mánudagsmorguninn ll.júní var svo komið að stóru stundinni fyrir flesta, upptöku í Útvarp Færeyja. Elis Poulsen tók á móti hópnum og fór með okkur um útvarpshúsið. Elis á margt skyld- fólk í Neskaupstað og þess vegna höfðu menn um margt að skrafa. Upptakan tókst með ágætum en efnið var síðan sent út 17.júní á þjóðhátíðardegi okkar. Seinna þennan sama dag var hópnum boðið til móttöku hjá eldriborgurum í Þórshöfn. Móttakan fór fram í skemmtilegu gömlu steinhúsi í Þórshöfn sem upphaflega var byggt sem banki. Það reyndist ótrúlega góður hljómburður í þessu húsi enda voru allir í sjöunda himni hvort sem þeir voru að spila eða syngja. Við héldum tónleika fyrir gestgjafa okkar og nú bættist inn í dagskrána hjá okkur samleikur á munn- hörpur og samleikur á harmoniku og Tvær úr kór eldriborgara Norðfirði að ieika á munnhörpur. mt mandolín og féll þetta í góðan jarðveg hjá fólkinu. Eftir tónleikana var svo öllum boð- ið til kaffisamsætis í boði Eldriborgarafé- lags Þórshafnar. Þriðjudaginn 12.júní var tekinn snemma því nú átti að fara í skoðunarferð um eyj- arnar. Veðrið var ekki sem best um morg- uninn, þoka og rigningarúði en það breytt- ist þegar komið var að hádegi og þá fór sólin aftur að skína. Víða var farið þennan dag og margt merkilegt skoðað. Fólkið var mjög hrifið af stórum og glæsilegum kirkj- um Færeyinga og má þar nefna kirkjurnar á Tóftum og í Götu sem báðar eru glæsileg hús og vel búin og ekki hvað síst af hljóð- færum. Safnið í Götu þótti fólki líka gaman að skoða og var Jónsvein með okkur í þess- ari ferð og sagði okkur frá því sem fyrir augu bar. Ekki má gleyma heimsókninni í Töting í Götu en þar var mikið verslað af ullarvörum og fóru margir heim til íslands í færeyskum peysum eða með færeyskar húfur á höfðinu. Miðvikudaginn 13. júní var svo komið að heimferð. Hótelið yfirgáf- um við um hádegið og var þá farið á bæj- arrölt í Þórshöfn eða þá fólk fór í safna- skoðun. Áfram vorum við heppin með veðrið því sólin var með okkur allan þenn- an dag eins og hina fyrri. Siglingin heim til fslands hófst svo kl. 17.30 og voru flestir aftur á sóldekki meðan siglt var út frá eyj- unum. Um kvöldið var svo komið að því að spila fyrir dansi í Víkingasalnum. Þó svo nokkur hreyfing væri á skipinu hættu sér þó nokkrir á dansgólfið og skemmtu sér hið besta. Fimmtudaginn,14. júní heilsaði ísland okkur með þungbúnu veðri rigning í byggð og krapaslydda til fjalla. Heimferð frá Seyðisfirði gekk að óskum, allir komust heilir heim og flestir sluppu við sjóveiki og sjóriðu. Skemmtilegri ferð var lokið og við sem tókum þátt í henni höfðum átt góða daga í Færeyjum og komum aftur heim með góðar minningar. Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem lögðu okkur lið við undirbúning ferðarinn- ar og þeim sem studdu okkur með fjár- framlögum hér í Neskaupstað og einnig vii ég nefna sjóð sem nefnist FITUR sem er ís- lensk-færeyskur og veitir ferðastyrki til heimsókna á milli landanna. Þessi sjóður veitti okkur rausnarlegan styrk til ferðar- innar. Síðast en ekki síst viljum ég og kon- an mín þakka öllum sem voru í þessari Færeyjaferð fyrir ánægjulega ferð. Þó svo aldursbilið hafi verið mikið sá yngsti 5 ára og sá elsti kominn vel á níræðisaldur þá gekk þetta allt saman vel enda allir sam- taka um að allt gengi upp og allir skemmtu sér. Egill Jónsson, Neskaupstað

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.