Harmonikublaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 14

Harmonikublaðið - 01.04.2002, Blaðsíða 14
AFMÆLISFAGNAÐUR HARMONIKUBLAÐIÐ Harmonikufélagið Nikkolína - 20 ára afmælisfagnaður! Harmonikufélagið Nikkolína hélt upp á 20 ára starfsafmæli sitt með pomp og pragt í félags- heimilinu Árbliki í Dölum 13. október 2001. Víst er að harmonikufélagið hefur á þess- um tveimur áratugum gegnt veigamiklu menningarhlutverki. Það er til vitnis um ánægjulegt samstarf áhugamanna um efl- ingu harmonikunnar og hvers konar tón- listar og hefur tvinnað saman með ýmsum blæbrigðum tóna nikkunnar í Dölum. )á, Nikkolína hefur sannarlega litað tónlistar- lífið og hefur ekki aðeins komið víðast hvar við sögu á mannamótum í héraði, heldur einnig gert víðreist um byggðir landsins. Stofnað hefur verið til varanlegra og góðra kynna harmonikufélaga og sveita í milli, sem ella hefðu sennilega ekki komið til. Harmonikan eflir kynni á góðri stund og það sannaðist rækilega á fjörugum afmæl- isfagnaði á svölu haustkvöldi 13. október sl. Sigrún Halldórsdóttir, greinarhöfundur. Myndarlega var að afmælinu staðið og sóttu um 150 manns fagnaðinn. Eftir veisluborð í umsjón Staðarskála í Hrúta- firði var efnt til fjölþættrar dagskrár sem stóð í hartnær þrjár klukkustundir. For- maður Nikkolínu, Árni Sigurðsson bóndi í Köldukinn, setti hátíðina, en veislustjóri var Þorgeir Ástvaldsson. Eins og Þorgeir sagði þá voru það létt spor að koma á fornar slóðir í Dölum og stjórna þar fagn- aði, það eru djúpar rætur sem liggja vestur íDali. Auk veigamikillar dagskrár Nikkolínu í söng og spili undir stjórn Halldórs Þ. Þórð- arsonar, stigu m.a. á stokk rússneski harm- onikusnillingurinn Yuri Fyodorov sem starfar á Akranesi og heillaði menn upp úr skónum með fimi sinni með nikkuna. Einnig söng systir Árna formanns, Ingunn Sigurðardóttir, nokkur einsöngslög og tveir Dalabændur, Ásgeir S. lónsson bóndi í Blönduhlíð og Þórður K. Halldórsson bóndi á Breiðabólsstað sungu nokkur tví- söngslög, þessu listafólki var öllu mjög vel fagnað. Margir gestanna voru langt að komnir, hress og góður hópur frá Harmonikufélagi Reykjavíkur, einnig félagar úr Þingeyjar- sýslu, Eyjafirði, Borgarfirði og víðar að. Færðu þessir góðu gestir afmælisbarninu gjafir og fluttu ávörp og kveðjur úr sinni heimabyggð. Eftir að skipulagðri dagskrá lauk var slegið upp dansleik og haft var að orði að sjaldan hafi úrval hljómlistarfólks til að halda uppi fjörinu verið meira á manna- móti í Dölum. Það var því ekki vandkvæð- um bundið að fagna með söng og spili fram á rauða nótt. Því áttu vel við vísuorð sem urðu reynd- ar til í einni ferð Nikkolínu á heimleið frá Akureyri, eftir frábærar móttökur harmon- ikuvina okkar fyrir norðan að vanda. Fannir glitra á fjallabrúnum fölri birtu á hlíðar slær. Haustið sínum rökkurrúnum roðar iandið nær og fjær. Töfrageimur brosir blíður bjart er þá að vera til. Nikkolínu flokkur fríður Frónið glæðir birtu og yl. EELW

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.