Hrund - 01.04.1967, Side 4

Hrund - 01.04.1967, Side 4
KOLBRÚN EINARSDÓTTIR heitir stúlkan á forsíðu HRUNDAR — fegurðardrottning íslands árið 1966 og tekur þátt í fegurðarsamkeppninni á Langasandi í Kaliforníu nú í þessum mánuði. KOLBRÚN er átján ára að aldri, fædd í Reykjavík og ýmist uppalin í höfuðborginni eða vestur á ísafirði. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Hagaskólanum í Reykjavík sl. vor og fór síðan til Englands, þar sem hún dvaldist í sjö mánuði. Ljósmyndirnar af KOLBRÚNU tók Ingimundur Magnússon á Hótel Holti, sérstaklega fyrir HRUND. Kjólarnir, sem hún klæðist á myndunum og eyrnalokkarnir, voru fengnir að láni frá Parísartízkunni í Hafnarstræti og eru þetta smásýnishorn af sumartízkunni í ár. Kjólarnir eru léttir, litríkir og lausir í sniði og virðast helztu tízkulitirnir vera ýmis konar tilbrigði af gulu, grænu og fjólu- eða lillabláu. Eyrnalokkar eru nú stórir og í skærum litum. Skór eru sömuleiðis mjög litríkir í ár og eru skórnir á forsíðumyndinni frá skóverzluninni Rímu í Austurstræti. HRUND hefur haft samband við forráðamenn nokkurra helztu tízkuverzlana borgarinnar um að birta framvegis myndir af íslenzkum stúlkum í tízkufatnaði frá íslenzkum verzlunum.

x

Hrund

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.