Hrund - 01.04.1967, Page 13

Hrund - 01.04.1967, Page 13
 í Texti: Silja Aðalsteinsdóttir 1905 1919 Um 1870 urðu föt aftur íburðarmikil, en nú klæddust konur ekki lengur sömu fötum hversdagslega og spari. Kom það meðal annars til af aukn- um hreinlætiskröfum. Reyndu konur nú, sem mest þær máttu, að losna við lífstykkin, sem höfðu pínt þær öldum saman. En árið 1910 átti konan enn að vera fött í baki og barmhá. Það var ekki fyrr en eftir heimstyrjöldina fyrri, að kjól- ar fóru að styttast og víkka og verða sæmilega þægilegar flíkur. 1925 hækkaði pilsfaldurinn mjög og nam nú við hné. Huldu þá konur augu sín með höttum í stað þess að hafa áður hulið hnén með pilsun- um. 1930 síkkuðu pilsin aftur, sérstaklega samkvæmispils, en styttust enn 1939. 1927 1947 Eftir seinni heimstyrjöldina, eða 1947, kom fram á sjónar- sviðið maður að nafni Christ- ian Dior, sem síðar hlaut viðurnefnið „konungur tízk- unnar“. Bar hann nafn með rentu, því að hann drottnaði í þessu ríki sínu samfleytt í tíu ár. Eftir honum höfðu menn, að hnén væru ljótasti hluti kvenlíkamans og drógu nú konur um víða veröld pilsin niður fyrir hné í ofboði. Hann var sannkallaður harð- stjóri, og höfðu konur boðorð hans í heiðri þó nokkur ár eftir andlát hans 1957 Upp úr 1960 fóru pilsin aftur að styttast, hvað sem öllum hnjám leið og er nú svo komið, að þau eru nánast horfin. Má nú sjá greinilegan svip með lubbalegu, germ- önsku stelpunni á bronsöld og ungu stúlkunum, sem spóka sig á Austurstræti í dag. 1967 *8 H

x

Hrund

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.