Hrund - 01.04.1967, Page 41

Hrund - 01.04.1967, Page 41
Þau stóðu uppi ein.. . . . en líftryggingin gerði það að verkum, að þau gátu séð fyrir daglegum þörfum — og lagt peninga til hliðar til að mæta nauðsynlegum útgjöldum í náinni framtíð. Ræðið við umboðsmenn Almennra Trygginga um hina athyglisverðu líftryggingu, sem nefnd er Stórtrggging ALMENNAR TRYGGINGAR £ PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SÍMI 17700 sér sjálfan sig sem stjörnu, rómantískan snilling. En hin sígildu túlkunarverk eru á þrotum, Don Quixote, konungsynir, Rómeóar og Armandar. Fontéyn, hinn fullkomni dansfélagi hans, (þau hafa dansað saman tvö hundruð sinnum frá því þau dönsuðu fyrst Giselle 1962) getur ekki dansað nema tvö eða þrjú ár í viðbót. Nureyev er ekki meðlimur konunglega ballettsins, ófélagslyndi hans myndi ekki þola það, né þeir hann. Sérhver ballettflokkur verður að vera í föstu formi. Skipu- lagning nýs ballettflokks er lík því að skipuleggja herdeild; stjórnandinn verður að hugsa fyrir þörfum hvers og eins, en má þó ekki vera hlynntur einum á kostnað annars. Þegar Rudolph er viðstaddur, eru aðrir dansarar óumflýjanlega vanræktir — og ballettdansarar . . . þola . . . ekki . . . vanrækslu. „Ég er ballettdansari og vil láta dæma mig sem slíkan — hvorki meira né minna”. En hinn hviklyndi Tartari segir ánægður §jálfum sér í mót á næsta andartaki og sekkur dýpra í vandræðafenið. „Ég hef borið af öðrum í flestum sígildum ballettum, sem til eru. Mér finnst kominn tími til að reyna eitthvað nýtt. Það þýðir ekkert að sitja og bíða eftir því, að aðrir skapi tækifærin fyrir mig". Til að sanna mál sitt sýndi hann ballettinn Tancredi í Vínarborg og stjórnaði honum sjálfur. Nureyev er ekki reynslulaus sem stjórnandi, hann setti á svið Raymondu fyrir ástralska ballettinn 1965, og hóf feril sinn sem framkvæmdastjóri með rússneska ballettinum La Bayadére í Covent Garden. Báðir urðu afar vinsælir. Það var engin tilviljun, að hann skyldi velja Vínarborg sem bakgrunn fyrir fyrsta sköpunarverk sitt. „Ég fæ ekki nóg að gera hjá konunglega ballettinum", segir hann hreinskilnis- lega. í Rússlandi lét hann sig líka dreyma um að skapa, ekki aðeins eitt hlutverk heldur heilan ballett. „Ég flúði ekki af stjórnmálalegum ástæðum, sjáðu til. List mín hefði verið kúguð í landi, þar sem allt er háð félagsstarfsemi". Tancredi kynnir hið nýja svið ballettsins —- sálfræðina. Leikurinn fer fram inni í mannsheilanum. En í huga höfundar þróast enn víðfeðmari hug- myndir, langt handan við ríki dans, leikstjórnar og sviðsetningar. Rudolph hefur þegar lagt drög að frama sínum sem kvikmyndaleikari og heimtar að fá að leika, ekki dansa. Sá kvittur, sem kom upp erlendis eftir að hann kynntist Zeffirelli, ungum, ítölskum kvikmyndastjóra, hefur nú loks verið sannreyndur. En það var amerískur framleiðandi, Cy Endfield, sem undirritaði samningana við Nureyev, í trássi við Zeffirelli. Kvikmyndin „Veiði- bjallan" vartekin á Costa Brava í September, 1966. „Nei, ég held ekki, að Rudolph þurfi reynslu til að leika þetta hlutverk", sagði Cy Endfield, öruggur með sig og hreinskilinn. „Ég ætla að nota hann sem náttúrubarn". Eins og til að sýna, hve fullkomlega þessi fimm ár hafa lagað Nureyev að vestrænum siðum, átti hann að nota eðlisgáfu sína, sem eflaust er ósmá, til að leika fjörulalla (beach boy) — viðurkennt tákn hinnar reikulu, flóttakenndu amerísku lág- menningar. Ósennilegt er, að hann festi rætur í Costa Brava. Vandamál prinsins er: Hvað verður um fjörulalla, þegar haustar? 41

x

Hrund

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hrund
https://timarit.is/publication/1091

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.