Fréttablaðið - 04.10.2013, Blaðsíða 10
4. október 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
ÞRÓUNARSAMVINNA „Ég var bara
heppin. Ég hefði getað flosnað
upp úr námi eins og margar skóla-
systur mínar ef faðir minn hefði
ekki lagt mikla áherslu á að við
systkinin hlytum góða menntun.
Það var mjög óvenjulegt.“ Þetta
segir Anjimile Oponyo, ráðuneyt-
isstjóri menntamálaráðuneyt-
is Malaví í Afríku, sem kom til
Íslands í tengslum við átaksviku
frjálsra félagasamtaka og Þróun-
arsamvinnustofnunar Íslands um
mikilvægi og gildi þróunarsam-
vinnu.
Oponyo hlaut skólastyrk frá
Alþjóðabankanum til framhalds-
náms í kennslufræðum í Banda-
ríkjunum. „Menntunin hefur
bjargað lífi mínu. Vegna hennar
hef ég sjálf getað tekið ákvarð-
anir sem varða mitt líf. Ég vildi
óska þess að allar stúlkur í Malaví
hefðu kost á því sama og ég hafði.“
Hún telur að um fjórðungur
allra stúlkna í Malaví fái ekki
eðlilega skólagöngu. „Sumar koma
ekki í skóla fyrr en þær eru orðn-
ar tíu ára og hætta um 14 til 15
ára gamlar þegar þær eru látnar
ganga í hjónaband. Aðrar verða
að hætta vegna þess að þær hafa
misst foreldra sína úr til dæmis
alnæmi og verða að sjá um sig
sjálfar og systkini sín. Fjölmörg
dæmi eru um að foreldrar láti
ekki stúlkur fara í skóla vegna
þess hversu langar vegalengd-
ir þær þurfa að fara gangandi.
Skólarnir sem Þróunarsamvinnu-
stofnun Íslands hefur aðstoðað við
að koma upp í Mangochi-héraði í
Malaví hafa gert mörgum kleift
að sækja sér menntun. Með því að
byggja víða komast fleiri í skóla.“
Að sögn Oponyo eru dæmi um
að 150 börn séu saman í kennslu-
sal á fyrstu stigum grunnskólans.
Á síðustu stigum grunnskólans
og fyrstu stigum framhaldsskóla
kemur fyrir að um 300 nemend-
ur séu saman í kennslusal í 1.000
nemenda skóla. „Ég var í heim-
sókn í grunnskóla hér og þar voru
15 börn í bekknum og þau höfðu
alls kyns kennslugögn sem okkur
skortir sárlega. Heima í Malaví
er ekki hægt að sjá öllum fyrir
kennslugögnum þannig að sum
barnanna þurfa að deila þeim
með öðrum. Hér hef ég séð hvern-
ig skólastarf getur virkað vel ef
nægar kennslustofur og skólagögn
eru fyrir hendi.“
Sú leið sem Þróunarsamvinnu-
stofnun Íslands hefur valið til
að aðstoða heimamenn í Malaví
hefur fyllt þá sjálfstrausti, að því
er Oponyo greinir frá. „Stofnunin
hefur spurt um þarfir okkar og svo
gefið okkur tækifæri til þess að
stýra sjálf verkefnum. Það hefur
jákvæð áhrif á heimamenn, þeir
verða ánægðir og finna hvers þeir
eru megnugir.“
Oponyo telur að mögulega hafi
stutt skólaganga föður hennar,
sem var lögreglumaður og tónlist-
armaður, átt sinn þátt í því að hann
hvatti börnin sín, fjórar stúlkur
og einn son, til að ganga mennta-
veginn. Elsta systir hennar, Joyce
Banda, er nú forseti Malaví.
ibs@frettabladid.is
Ein af hverjum fjóruum í
Malaví fær ekki menntun
Unglingsstúlkur giftast og hætta námi. Aðrar verða að sinna systkinum vegna andláts foreldra. Of langar vega-
lengdir koma einnig í veg fyrir skólagöngu. Aðstoð Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hefur tryggt menntun
margra barna í Malaví. Ráðuneytisstjóri menntamála var í heimsókn hér á landi í vikunni.
Tæplega 90 prósent Íslendinga vilja óbreytt eða aukin framlög til alþjóð-
legrar þróunarsamvinnu. Átta af hverjum tíu Íslendingum eru hlynntir því
að íslensk stjórnvöld taki þátt í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og litlu færri
eru sammála því að þróunarsamvinna hjálpi til í baráttunni gegn fátækt í
þróunarríkjum.
Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar á vegum utanríkisráðu-
neytisins og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Könnunin náði til 1.600
Íslendinga. Heimild: Þróunarsamvinnustofnun Íslands.
Níu af tíu vilja aukin framlög
UMHVERFISMÁL Landsvirkjun
ætlar að breyta farvegi Lagar-
fljóts svo það renni ekki norður
að Fögruhlíðará í Jökulsárhlíð.
Frá því vatnsmagn jókst í
Lagarfljóti vegna innstreymis
frá Kárahnjúkavirkjun hefur ós
árinnar grafið sig æ nær Fögru-
hlíðará sem er þekkt sjóbleikju-
paradís. Bæjarstjórn Fljótsdals-
héraðs segist fagna áformum
Landsvirkjunar og hvetur fyrir-
tækið til áframhaldandi samráðs
við landeigendur, skipulagsyfir-
völd og aðra hagsmunaaðila um
framkvæmd verksins. - gar
Afstýra náttúruspjöllum:
Ósi Lagarfljóts
beint til suðurs
VERSLUN Eftirlit í versluninni
Kosti á Dalvegi á mánudag leiddi
í ljós að þar er unnið samkvæmt
sérstakri úrbótaáætlun sem Kost-
ur lagði fram í byrjun september.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
á mánudag íhugaði Heilbrigðis-
eftirlit Hafnarfjarðar- og Kópa-
vogssvæðis að loka fyrir starf-
semi Kosts þar sem ekki væri
farið eftir reglum um vörumerk-
ingar í versluninni. - gar
Eftirlit með merkingum:
Allt samkvæmt
áætlun í Kosti
Í KOSTI Lagði fram úrbótaáætlun um
merkingar vöru. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VÍB styður
Víking Heiðar Ólafsson
til góðra verka.
FAGMENNSKA
SKILAR ÁRANGRI
SEGIR MENNTUNINA HAFA BJARGAÐ LÍFI SÍNU Anjimile Oposnyo ráðuneytis-
stjóri í Malaví náði