Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.2002, Side 35

Læknablaðið - 15.06.2002, Side 35
FRÆÐIGREINAR / SAMBAND SKÓLAGÖNGU OG LÍFSLÍKNA Fjórir menntahópar voru skilgreindir eftir því námi sem þátttakendur höfðu lokið (15): Hópur 1: Barnaskólapróf eða minni menntun. (Um það bil sex ára skólaganga eða minna.) Hópur 2: Gagnfrœða- prófeða sambœrileg menntun. Hér eru þeir sem lokið hafa gagnfræðaprófi, unglingaprófi, miðskólaprófi, landsprófi, prófi úr sjómanna- og stýrimannaskóla, iðnskólaprófi eða prófi úr tækniskóla án stúdents- prófs (um það bil níu ára skólaganga). Hópur3: Stúd- entspróf eða sambærileg menntun. Undir það fellur stúdentspróf, samvinnuskólapróf, verslunarskólapróf og kennaraskólapróf (um það bil þrettán ára skóla- ganga). Hópur 4: Háskólapróf eða sambœrileg menntun. Undir þennan hóp falla þeir sem lokið hafa almennu háskólaprófi eða prófi í forspjallsvísindum auk þeirra sem lokið höfðu kennaraprófi ef um stúd- entspróf var einnig að ræða (um það bil fjórtán ára skólaganga eða meira). Uppgefin tímalengd skóla- göngu er aðeins gróft viðmið. Raunverulegur ára- fjöldi innan hvers hóps getur hafa verið minni og mjög breytilegur. Til að meta spágildi menntunar (óháða breytan) fyrir ástundun líkamsæfinga (háða breytan) var not- uð logistic regression sem er ein gerð aðhvarfsgrein- ingar. Notuð voru samtímagildi breytanna og leiðrétt fyrir aldri og skoðunarári. Hópur 1 var hafður sem viðmiðunarhópur og hópar 2,3 og 4 bornir saman við hann, fundið líkindahlutfall (odds ratio) og p-gildi. Dánaráhætta var reiknuð með áhættulíkani Cox út frá afdrifum fólks frá skoðun fram til ársloka 1997 og var þar sömuleiðis hópur 1 hafður sem viðmiðunar- hópur. Notuð voru þrjú leiðréttingarmódel. í því fyrsta var eingöngu leiðrétt fyrir aldri og skoðunarári. I öðru var leiðrétt fyrir aldri, skoðunarári og þekktum áhættuþáttum, öðrum en ástundun líkamsæfmga (blóðfitu, blóðþrýstingi, hæð, þyngd, reykingum, notkun háþrýstingslyfja og sykurþoli). í því þriðja var leiðrétt fyrir aldri, skoðunarári og fyrrgreindum áhættuþáttum auk ástundunar hkamsæfinga. Víxlverkun (interaction) fæðingartíma og lengdar skólagöngu var athuguð með því að bæta inn í áhættulíkanið margfeldi þessara breyta og reikna marktekt þeirrar breytu. Þessi rannsókn var hluti af Hóprannsókn Hjarta- verndar sem Tölvunefnd/Persónuvernd hefur heimil- að. Ekki var um styrktaraðila að ræða. Niðurstöður Þegar litið er á þýðið í heild sögðust 28,0% karla og 22,0% kvenna hafa stundað íþróltir eða líkamsæfing- ar reglulega eftir 20 ára aldur. Meðal karla nefna 18,6% sund og 8,8% gönguferðir en meðal kvenna voru þessar tölur 13,9% og 8,3%. í töflum I og II má sjá fjölda jákvæðra og nei- kvæðra svara við spumingum varðandi líkamsæfing- ar flokkuð eftir skólagönguhópum og kyni. Table III. Study results. Odds ratio for positive answers to questions on physical activity. Adjusted for age and time of examination. Educational groups 2, 3 and 4 relative to group 1. For all figures p<0.001 (except *. p<0.01) Men Women Educational group Educational group Question 2 3 4 2 3 4 Regular physical exercise after age 20 1,86 3,92 4,63 2,38 3,43 3,60 Regular physical exercise after age 40 1,83 3,81 4,81 2,20 3,36 2,87 Age during regular physical exercise 20-29 2,01 4,24 4,34 2,81 3,88 6,22 30-39 1,76 3,89 4,87 2,39 3,19 4,53 40-49 1,91 3,82 5,19 2,40 3,62 3,67 50-59 1,85 3,57 4,27 2,10 2,50 2,63 Exercise type Swimming 1,95 3,59 4,39 2,59 3,62 4,59 Walking 1,87 3,88 5,36 2,63 4,20 5,23* í töflu III er ástundun líkamshreyfmgar sýnd eftir kyni, aldri og tegund (sund, gönguferðir). Marktækur munur er á skólagönguhópunum hvað varðar ástund- un líkamshreyfingar (tafla III). Algengi ástundunar líkamsæfinga er stigvaxandi frá hópi 1 til hóps 4. Samband er milli heildardánartíðni og lengdar skólagöngu, en leiðrétting fyrir ástundun líkams- hreyfingar hefur áhrif í þá átt að þetta samband minnkar hjá hópum 2, 3 og 4 miðað við hóp 1 hjá báðum kynjum (töflur IV og V). Hjá hópum 3 og 4 hjá körlum er sjálfstætt framlag ástundunar líkams- æfinga af svipaðri stærð og framlag annarra áhættu- þátta til samans. Til dæmis gefur leiðrétting fyrir aldri, skoðunarári og áhættuþáttum (sjá töflur IV og V) 8% lækkun á hlutfallslegri verndun (úr 25% í 23%) hjá hópi 4 karla og sé ástundun líkamsæfinga bætt inn í leiðréttinguna gefur það 12% lækkun til viðbótar (úr 23% í 20%) (hlutfallsleg vemdun = 1 - hlutfallsáhætta). Þá lækkun má túlka sem sjálfstætt framlag ástundunar líkamsæfinga til áhættumunar milli skólagönguhópa. Hvað varðar hóp 3 eru sam- bærilegar tölur 5% og 10%. Hjá báðum kynjum hef- ur leiðrétting fyrir líkamsæfingum þau áhrif að hækka p-gildi en þær stærðir sem voru marktækar fýrir leiðréttingu héldu því (p<0,05). Hvað varðar kransæðadauða sést svipuð tilhneig- ing hjá körlum og hvað varðar heildardánartíðni (sjá ofan). Sjálfstætt framlag ástundunar líkamsæfinga til áhættumunar milli skólagönguhópa er jafn stórt og annarra áhættuþátta til samans hjá hópum 3 og 4 (18% og 5%). Hvað varðar konur sést ekki sama al- menna tilhneigingin varðandi kransæðadauða. Þar er hópi 4 líka sleppt þar sem einungis 5 endapunktar liggja þar til grundvallar. Þegar litið er á krabbameinsdauða sést enn það sama, það er samband skólagöngu og dánartíðni minnkar við leiðréttinguna hjá öllum hópum hjá báð- um kynjum en var óvíða marktækt. Læknablaðið 2002/88 499

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.