Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2002, Page 44

Læknablaðið - 15.06.2002, Page 44
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Kjaramál sjúkrahúslækna - sameiginleg barátta eða sértæk! Páll Helgi Möller Höfundur situr í stjórn Læknafélags íslands. Sjónarmið þau er fram koma í pistlunum Af sjónarhóli stjórnar eru höfundar hveiju sinni og ber ekki að taka sem samþykktir stjómar LÍ. Atkvæðagreiðsla fór nýlega fram um nýjan kjara- samning sjúkrahúslækna sem Læknafélag íslands (LÍ) gerði fyrir hönd félaga sinna við hið opinbera. Af þeim læknum sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni var meirihluti honum samþykkur. Ekki verður sagt að einhugur hafi verið um samninginn þar sem um 37% lækna greiddu atkvæði gegn honum. Fulltrúi Félags ungra lækna (FUL) í samninganefnd LI neit- aði að skrifa undir samninginn og félagar í FUL ákváðu að taka ekki þátt í atkvæðagreiðslunni. Stjórn Skurðlæknafélags íslands mælti gegn samningnum við sína félagsmenn. Lengi vel hefur kjarabarátta lækna sem og ann- arra snúist að mestu um launahækkanir. I dag eru breyttir tímar. Það er ljóst að launahækkanir skipta enn miklu máli. En í hugum margra þurfa ævilaun, lífeyrissjóðamál sem taka mið af lækkuðum eftir- launaaldri, endurmenntun, starfsaðstaða og fleira að koma æ meira inn í samning sem þennan. Við skulum láta einstök ágreiningsmál samnings- ins liggja á milli hluta en huga í stað þess að þeirri umræðu sem Skurðlæknafélag íslands hóf áður en kjarasamningurinn var undirritaður og jafnframt að samþykkt aðalfundar FUL nú í kjölfar undirskriftar samningsins. í desember á síðasta ári fór stjórn Skurðlæknafé- lag íslands fram á það við stjórn LÍ að aðilar leituðu eftir því í sameiningu að Skurðlæknafélag íslands fengi í sínar hendur samningsumboð fyrir félagsmenn sína, skurðlækna, gagnvart ríkinu. Skurðlæknafélag íslands hefur verið að vinna að þessu nokkur undan- farin ár. Með þessu hafa skurðlæknar ekki verið að kasta rýrð á störf samninganefndar LI. Skurðlæknar hafa átt og eiga enn sinn fulltrúa í samninganefnd LÍ og það væri því að skjóta sig í fótinn að fara að setja út á störf nefndarinnar. A hinn bóginn hafa skurð- læknar með setu sinni í samninganefndinni áttað sig á því að þeir eiga fátt sameiginlegt með mörgum öðrum hópum lækna þegar kemur að kjarabaráttu. Það eru sjálfsagt mörg atriði sem hægt er að tína til sem sameina hina ýmsu hópa lækna. Lækna sem vinna einvörðungu hjá hinu opinbera, lækna sem vinna bæði hjá hinu opinbera og sjálfstætt og lækna innan sömu sérgreinar eins og skurðlækna. Samninganefnd LÍ á og hefur reynt að taka mið af hagsmunum allra lækna og því er það augljóst að sér- hagsmunir einstakra hópa, eins og skurðlækna, hafa þurft að víkja fyrir heildarhagsmunum, hvað svo sem einstökum hópum lækna kann að finnast um það. Flópar lækna eins og skurðlæknar telja kjaramálum sínum best komið í eigin höndum. Það er alveg ljóst á máli þeirra að þar eru þeir ekki að vísa til þess að aðrir læknar hafi ekki sérstöðu sem krefjist sértækra kjarasamninga heldur til þess að þeir þekki betur en aðrir til sinnar sérstöðu og séu því best fallnir til að semja um eigin kjör. Vandi skurðlækna er aftur á móti sá að þeir eru meðlimir í LI í gegnum hin ýmsu svæðafélög eins og Læknafélag Reykjavíkur, Lækna- félag Vesturlands og svo framvegis. Samkvæmt 16. grein laga LÍ sér félagið um gerð kjarasamninga lækna í samráði við svæðafélög og önnur félög lækna eftir því sem við á hverju sinni. Skurðlæknafélag Islands samþykkti á aðalfundi sínum 22. febrúar síðastliðinn ný lög félagsins þar sem fram kemur að tilgangur þess sé meðal annars sá að koma fram fýrir hönd félagsmanna sinna við gerð kjarasamninga. Samkvæmt lögmanni félagsins stand- ast ekki þær takmarkanir sem lögin um kjarasamn- inga opinberra starfsmenn setja félagi eins og Skurð- læknafélagi fslands sé vilji félagsmanna annar. FUL á hinn bóginn er eins og hvert annað svæðafé- lag innan LÍ sem gerir þeirra stöðu aðra en Skurð- læknafélags fslands. í kjölfar undirritunar samningsins á aukaaðalfundi FUL þann 10. maí síðastliðinn voru samþykkt ný lög FUL sem ekki gera ráð fyrir aðild að LÍ. Á þann hátt hyggst FUL afla sér viðurkenningar sem stéttarfélag og fá til sín samningsréttinn. Að mati sumra virðist það ekki vera einfalt mál að óbreyttu fyrir einstaka hópa lækna sem eru bundnir hinum ýmsu svæðafélögum að fá samningsréttinn í sínar hendur. Vísað er til laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna nr. 94/1986, 4.-6. grein. Mér skilst að lögfróðir menn séu ekki sammála um hvern- ig túlka eigi þessi lög. Sumir segja að vilji sé allt sem þarf eins og fram kom hér að framan. Einnig hefur verið nefnt að það sé ekki nægilegt að til sé félag sem hefur vilja til samninga heldur þurfí einnig að vera til mótaðili sem vill og hægt er að semja við sem í þessu tilviki er hið opinbera. Vilji hins opinbera til þessa er enn ekki ljós. Nokkur umræða hefur farið fram innan stjórnar LÍ um það hvernig hægt er að koma því við að einstakir hópar lækna fái til sín samningsréttinn. Vilji er fyrir hendi en engin ályktun eða samþykkt hefur verið gerð. Vitað er að skoðanir eru mismunandi meðal félagsmanna LÍ en einhvers staðar þarf að byrja. Fjórar hugsanlegar leiðir hafa verið nefndar til sögunnar til að leysa þetta mál en formaður LÍ kynnti 508 Læknablaðið 2002/88

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.