Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2003, Page 71

Læknablaðið - 15.10.2003, Page 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRÁ HEILBRIGÐIS- O G TRYGGINGARÁÐUNEYTINU Lyfjamál 118 Um skynsamlega lyfjanotkun Alþjóðaheilbrigðisstofnunin skilgreinir skynsam- lega notkun lyfja (Rational Use of Drugs) með eftir- farandi hætti: „Sjúklingar fái lyf sem hæfir sjúkdóms- ástandi þeirra, í hæfilegum skömmtum til hæfilegs tíma á sem lægstum kostnaði bæði fyrir þá og samfé- lagið.” Notkun lyfja telst óskynsamleg ef lyfin eru notuð með öðrum hætti en framangreind skilgreining segir til urn. Talið er að meira en 50% lyfjanotkunar í heiminum flokkist undir að vera óskynsamleg, þ.e. að rúmlega helmingi lyfja sé ávísað og dreift og þau af- greidd eða tekin með röngum hætti (WHO Policy Perspective on Medicines 2002; 5). Óskynsamleg notkun lyfja getur valdið alvarleg- um skaða, dauðsföllum, langvarandi sjúkdómum og örorku, auk þess sem misnotkun og ofnotkun lyfja veldur verulegum óþarfa kostnaði fyrir bæði sjúk- linga og almannatryggingar. Pví er talið eðlilegt og sjálfsagt að heilbrigðisyfirvöld og stjórnendur í heil- brigðisþjónustu reyni eftir mætti að sporna við óskynsamlegri lyfjanotkun. Hér á landi hefur þessum þætti lítið verið sinnt með skipulegum hætti, ef undan er skilin lofsverð vinna við Lyfjaval og klínískar leiðbeiningar á vegum Landlæknis og Tryggingastofnunar ríkisins. Einnig má nefna að Læknadeild Háskóla íslands hefur á undanförnum misserum lagt aukna áherslu á skyn- samlega lyfjanotkun við kennslu læknanema. Fjölmargir þjóðfélagslegir og heilsufarslegir þætt- ir hafa, auk læknisfræðilegra þátta, áhrif á lyfjanotk- un og því er að mörgu að huga þegar sporna þarf við óskynsamlegri lyfjanotkun. Lyfjalistar sem byggja á klínískum leiðbeiningum, virkni, öryggi og gæðum lyfja, auk tillits til kostnaðar, eru talin einhver mikil- vægustu tæki heilbrigðisstofnana til að nota lyf á skynsamlegan og hagkvæman hátt. Ein megin ástæða fyrir hækkun lyfjakostnaðar er sú að ný og dýrari lyf leysa eldri og yfirleitt ódýrari lyf af hólmi, en lyf eru gjarnan dýr á meðan þau njóta einkaleyfisverndar, en falla hins vegar í verði þegar einkaleyfisvernd fellur niður. Oft eru nýju lyfin betri en þau sem fyrir eru, en það er þó ekki algild regla eins og dæmin sanna og kom skýrt fram í ALLHAT rannsókninni svokölluðu. Grunnhugsunin að baki skynsamlegu vali lyfja á lyfjalista byggir því meðal annars á því að nýta áfram gömul og góð lyf á meðan þau reynast vel, en taka ekki nýrri og dýrari lyf í gagnið nema að sannað þyki (evidence based) að þau séu betri en þau eldri. Hér á þessari síðu hafa á undanförnum árum ver- ið nefnd ýmis dæmi um notkun lyfja sem er langt um- fram það sem gerist í þeim löndum sem við kjósum helst að bera okkur saman við. Nýlegt dæmi er notk- un coxíblyfja. Annað áberandi dæmi er notkun geð- deyfðarlyfja sem ítrekað hefur verið rakin á þessari síðu. Slik umræða hefur stundum skilað árangri, til dæmis varðandi notkun sýklalyfja sem á tímabili var mjög mikil hér á landi, en er nú nær því sem þekkist í nágrannalöndunum. Ofnotkun einstakra lyfja um- fram það sem annars staðar þekkist segir ekkert um dómgreind lækna sem þeim ávísa, en þeim mun meira um snjalla markaðssetningu sem miklu fé er varið til og greitt er fyrir með einum eða öðrum hætti í háu lyfjaverði, bæði af sjúklingum sem og skatt- greiðendum og notendum. Talsmenn lyfjafyrirtækja halda því stundum fram í hagsmunagæslu sinni að heilbrigðisyfirvöld og þeir sem vilja stuðla að skynsamlegri og hagkvæmri lyfja- notkun séu á móti nýjum lyfjum og líti eingöngu á fjárhagslega hagsmuni, en ekki á ávinning sjúklinga. Þetta er misskilningur og lýsir vanþekkingu á stjórn- un lyfjamála og skilningsleysi á skyldu heilbrigðisyfir- valda og starfsmanna heilbrigðisþjónustunnar að fara vel með lyf og fjármuni almennings. Það er óþarfi að taka fram það sem allir vita: að framfarir í lyfja- og læknisfræði hafa oft leitt til nýrri og betri lyfja, annars konar meðferðar og betri líðanar sjúkra og auðvitað fagna heilbrigðisyfirvöld því eins og þeir sem njóta nýjunganna með beinum hætti þegar slíkt gerist. Skárra væri það nú. Eggert Sigfússon Einar Magnússon Eggert Sigfússon er deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu. Einar Magnússon er yfirlyfjafræðingur í heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu. I Læknablaðið 2003/89 807

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.