Læknablaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ
um leiðum. Stjórn læknafélagsins vill leggja til að
aðalfundurinn skori á Alþingi og ríkisstjórn að hafa
forgöngu um aðgerðir til að auka heilbrigði Íslend-
inga með hollara mataræði og aukinni hreyfingu, að
gerð verði áætlun í þessu skyni sem hafi heilsurækt til
eflingar lýðheilsu á íslandi að leiðarljósi. Höfð verði
til hliðsjónar markmið-11 í gildandi heilbrigðisáætlun
og markmið Manneldisráðs um mataræði og bætiefni,
að mótuð verði stefna af hálfu ríkisstjórnarinnar sem
fjallaði um:
a. breyttar áherslur í verðlagsmálum neysluvara,
b. almenningsfræðslu,
c. breytta námsskrá leik- og grunnskóla,
d. stuðning við menningartengda hreyfingu barna
og unglinga auk keppnisíþrótta,
e. aukna áherslu á almenningsíþróttir og aðstöðu
almennings til útivistar og annarrar hreyfingar.
Haft yrði í huga að gera þetta að sjálfsögðu að
spennandi og skemmtilegu verkefni fyrir þjóðina til
að fást við og að það hefði þverpólitíska skírskotun.
Sköpuð yrðu skilyrði fyrir þegnana til að velja skyn-
samlega í þessum efnum þannig að bágur efnahagur
og skortur á fræðslu og upplýsingum hefði sem minnst
áhrif á ákvarðanir til heilsubótar.
Sérhver vegferð byrjar á fyrsta skrefinu. Þó ein-
semdin sé stundum tignuð í skáldlegum sýndarveru-
leika eða uppskrúfuðum hégóma sjálfstilbeiðslunnar
er maðurinn í raun annarra manna. Til þess að hafa
fullt gagn af lífinu þarf hann að lifa því með öðrum.
Við erum hér öll saman í Nesi, heilbrigðisráðherra,
landlæknir og fulltrúar læknastéttarinnar. Við tökum
auðvitað tillit til þeirrar lífspeki sem Vilmundur land-
læknir benti á að góð heilbrigði verður aldrei annað
né meira en dýrmætt tæki til að lifa lífinu. Og geri
menn hana að upphafi, endimarki og inntaki lífs síns,
hvað er þeim þá orðið úr lífinu sjálfu, spurði hann.
Það var skrifað fallega um Þorstein Egilsson. Og
mestu var hampað að hann hefði verið hófsamur um
flesta hluti. Við getum stutt þjóðina í að auka heil-
brigði sína mitt í allsnægtum sínum - með hófi um þá
hluti sem hún aflar fyrirhafnarlaust, matar og hreyf-
ingarleysis. Og bent henni á að í því geti falist unaður
að sínu leyti.
Aðalfundur Læknafélags íslands er settur.
Frá fundarstörfum í Nesi.
Arnór Víkingsson rœðir
frœðslumálin en við há-
borðið sitja Jón Snœdal
sem lét afvaraformennsku í
LÍeftir átta ára starfog við
hlið hans Hulda Hjartar-
dóttir sem er nýr varafor-
maður.
Stjórnarkjör LÍ
Að vanda fór fram stjórnarkjör á aðalfundi en það
átti sér þann aðdraganda að fyrir fundinum lá til-
laga um breytingu á skipan stjórnar. Tillagan var
á þá leið að stjórnin lagði til að formenn þriggja
félaga lækna, Félags íslenskra heimilislækna, Sér-
fræðingafélags íslenskra lækna og Félags ungra
lækna, ættu ekki lengur sæti í stjórn heldur yrði
meðstjórnendum fækkað úr sex í fimm og þeir allir
kjörnir á aðalfundi.
Allmiklar umræður urðu um þessa tillögu og
sýndist mönnum sitt hvað. Einkum töldu fund-
armenn brýnt að ungir læknar ættu öruggt sæti í
stjórn LÍ. Niðurstaðan varð sú að meðstjórnendum
var fækkað um einn, af þeim eru fjórir kosnir á aðal-
fundi en FUL tilnefnir áfram einn meðstjórnanda.
Að þessu loknu var gengið til stjórnarkjörs.
Samkvæmt lögum félagsins átti að kjósa nýjan rit-
ara og varaformann. Jón Snædal sem gegnt hefur
varaformennsku í félaginu í átta ár gaf ekki kost á
sér til endurkjörs en í hans stað var Hulda Hjart-
ardóttir kjörin varaformaður. Hulda hafði verið
ritari en í hennar stað var kjörinn Ófeigur T. Þor-
geirsson sem verið hafði meðstjórnandi. Ný inn í
stjórn kom jafnframt Sigríður Ólína Haraldsdóttir
lungnalæknir. Stjórn LÍ fyrir starfsárið 2004-2005 er
því þannig skipuð:
Formaður: Sigurbjörn Sveinsson
Varaformaður: Hulda Hjartardóftir
Gjaldkeri: Birna Jónsdóttir
Ritari: Ófeigur T. Þorgeirsson
Meðstjórnendur: Bjarni Þór Eyvindsson, Elínborg
Bárðardóttir, Páll H. Möller, Sigríður Ó. Haralds-
dóttir, Sigurður Einar Sigurðsson.
Endurskoðandi: Einar H. Jónmundsson, til vara
Þengill Oddsson.
Læknablaðið 2004/90 779