Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2006, Síða 51

Læknablaðið - 15.09.2006, Síða 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNAR Á HLAUPUM Opin ritrýni Kamran Abbasi, hinn tiltölulega nýbakaði ritstjóri JRSM (Journal of the Royal Society of Medicine) í Bretlandi, varpar fram róttækri tillögu í ágústhefti tímaritsins. Þar lýsir hann því yfir að frá og með septemberhefti JRSM verði allri nafn- leynd aflétt af ritrýnum vísindagreina í tímaritinu. Þetta gengur í rauninni þvert á stefnu nær allra vísindarita í veröldinni í dag, þar sem nafnleynd ritrýna vísindagreina er álitin undirstaða þess að tryggja óvilhalla ritrýni og hindra hagsmuna- árekstra eða hagsmunagæslu. Abbasi sem áður var einn ritstjóra BMJ vísar til leiðaraskrifa í New York Times fyrr í sumar þar sem harmað var hversu illa væri komið fyrir bandarískum læknatímaritum sökum þess að útgefendur þeirra væru undir áhrifum af leyndum hagsmunatengslum ritrýna og höfunda. Abbas segir reyndar ómögulegt fyrir ritstjórnir vísinda- rita að komast hjá öllum hagsmunaárekstrum en besta leiðin sé að horfast í augu við þá og hafa allt uppi á borðinu fyrir allra augum, aflétta allri leynd, þó slíkt hafi einnig vandamál í för með sér. „Lesendur kannast eflaust við að læknatímarit krefja höfunda greina um langar yfirlýsingar um hagsmunaárekstra. Góð tímarit birta einnig yfir- lýsingar ritstjóra um hagsmunaárekstra í tengslum við birtar greinar. En tímaritin eiga þó langt í land með að taka upp bestu möguleg vinnubrögð. Því er gagnrýni New York Times fyllilega réttlætanleg og ætti vera hvetjandi öllum ábyrgum og raunsæjum ritstjórum, vísindamönnum og stuðningsaðilum þeirra um víða veröld.“ Abbas reifar síðan kosti þess að aflétta nafn- leynd ritrýna og segir það reynslu sína að án nafn- leyndar verði ritrýnar kurteisari og málefnalegri í ritrýni sinni og öllum að óvörum hafi það ekki dregið úr vilja fólks til taka að sér ritrýni fyrir opnum tjöldum. „Opinská vísindaleg umræða er öllum til fram- dráttar og þess virði að berjast fyrir. JRSM mun því taka upp ritrýni án nafnleyndar - þar sem höf- undar og ritrýnar munu vita af hver öðrum - frá með september í ár. Með þessu verður JRSM eitt örfárra vísindarita í veröldinni þar sem ritrýni án nafnleyndar er viðhöfð. Álit ritrýnanna verður þó ekki birt fyrst um sinn þó það sé rökrétt skref í framhaldinu,“ segir Abbas. Hann lýkur síðan grein sinni með þeim orðum að „Fyrir þá sem kjósa leynd eru þúsundir tímarita sem velja má úr. JRSM verður ekki lengur eitt þeirra.“ Védís Skarphéðinsdóttir ritstjórnarfulltrúi Læknablaðsins segir að þessi nýja stefna JRSM komi sér á óvart þar sem almennt sé álitið að undirstaða góðra vinnubragða við ritrýni vís- indagreina sé nafnleynd ritrýna og þung áhersla sé lögð á að höfundar og ritrýnar viti engin deili hver á öðrum. „Um þetta vinnulag gilda reglur sem samþykktar voru hjá svonefndum Vancouverhópi fyrir margt löngu. Þetta er algert lykilatriði í öllum okkar vinnubrögðum og tíðkast alls staðar á rit- stjórnum þeirra viðurkenndu læknavísindarita sem við miðum okkur við,“ segir Védís. Hún segir að nafnleyndin þjóni þeim tilgangi að ritrýnir gæti fyllstu hlutlægni og blandi ekki hugsanlegum skoðunum sínum á höfundum saman við mat sitt eða láti hagsmunaárekstra af einhverjum toga af- baka ritrýnina. Ritstjórnarmenn velji ritrýna sem hafa yfirsýn og þekkingu á efninu, en það kemur auðvitað fyrir að þeir vilja ekki ritrýna grein þareð þeir þekkja höfundinn, efniviðinn eða tengjast þessari grein of náið til að geta skrifað óvilhalla ritrýni. „Læknablaðið hefur þá sérstöðu við ritrýni að hún er tvíblinduð, það er að segja hvorki höf- undar né ritrýnar fá upplýsingar um hverjir standa á bak við vinnuna. Þetta er auðvitað sérstaklega mikilvægt en getur jafnframt verið óhemju flókið í okkar litla samfélagi þar sem allir þekkjast og ekki síst þar sem um fámennar sérgreinar innan lækn- isfræði er að ræða.“ Hún segir engu að síður að hugmyndir Abbas séu athyglisverðar og forvitnilegt verði að fylgjast með hvernig vísindasamfélag lækna taki þessum breytingum á JRSM. Katnran Abbasi ritstjóri JRSM (Journal ofthe Royal Society of Medicine) í Bretlandi www.JRSM.org Hávar Sigurjónsson havar@lis.is Læknablaðið 2006/92 631

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.