Vísbending - 12.11.2012, Side 3
V Í S B E N D I N G • 4 5 T B L 2 0 1 2 3
en í nágrannalöndunum. Efnahagsstefna
Íslands þarf að miða við að hagvöxtur
verði meiri en hér er gert ráð fyrir. Hluti af
lausninni kann að felast í því að fólk verði að
vinna lengur en til 67 ára og jafnvel framyfir
sjötugt. Það er reyndar eðlileg afleiðing af
þeirri þróun að meðalævin lengist sífellt og
heilsa batnar almennt.
Mynd 2: VLF á mann í ýmsum
löndum árið 2050
Breytt framtíð
Goldman Sachs gaf nýlega út spá um verga landsframleiðslu (VLF) árið 2050 í allmörgum löndum.
Langtímaspár af þessu tagi eru auðvitað
háðar mjög mörgum forsendum, en eitt af
því sem liggur sæmilega vel fyrir er líkleg
þróun fólksfjölda. Þess vegna er hægt að
reikna með ákveðinni framleiðniaukningu
á vinnandi mann og finna breytingar á
landsframleiðslu útfrá henni.
Ný stórveldi
Fyrirtækið reiknaði VLF í heild hjá
nokkrum stærstu viðskiptaveldum heims.
Ekki er langt síðan Kína fór fram úr Japan
í landsframleiðslu. Samkvæmt spánni verður
Kína komið fram úr Bandaríkjunum upp
úr 2040. Þetta kemur í sjálfu sér ekki á
óvart miðað við hve margir búa í Kína, en
fyrir um áratug var farið að tala um BRIC-
löndin, þ.e. Brasilíu, Rússland, Indland og
Kína. Þau eru öll ofarlega í þessari spá og
hafa farið framúr Þýskalandi, Bretlandi og
Frakklandi. Um helmingurinn af hagvexti
heimsins undanfarin ár hefur komið frá
BRIC-löndunum og því ekki óeðlilegt að
ætla að þau verði komin í fremstu röð sem
efnahagsstórveldi fljótlega, þó að vissulega
sé óvarlegt að gera ráð fyrir því að svo mikill
vöxtur geti haldið áfram lengi.
Ef spáin rætist verður indverska hagkerfið
orðið það þriðja stærsta í heimi um miðja
21. öldina. Að vísu munar litlu á því og
evrusvæðinu sem heild, en í næstu sætum
lenda Brasilía og Rússland. Indónesía er ekki
langt undan. Af öðrum löndum sem GS
spáir fyrir um vekur það athygli að Nígería,
Egyptaland og Tyrkland munu framleiða
meira en Ítalía eftir 40 ár skv. þessari spá.
Hvað um Ísland?
Miðað við mannfjöldaspá Hagstofunnar
mun Íslendingum á vinnualdri (21-66 ára)
aðeins fjölga um 20% næstu 38 árin. Ef
reiknað er með að framleiðni á vinnandi
mann vaxi um 1,4-1,5% fæst að um miðja
öldina hefur VLF ríflega tvöfaldast. Á
meðan hefur íbúafjöldinn í heild vaxið
um 31%. Því eykst VLF/mann aðeins
um 61%. Á mynd 2 má sjá að Íslendingar
verða eftirbátar nágrannaþjóðanna gangi
þessi spá eftir. Á mynd 1 sést hve mikill
vöxturinn í landsframleiðslu á mann er
samkvæmt spánni. Þau lönd sem bæta
sig mest eru nú vanþróuð en hafa verið í
mikilli sókn að undanförnu. Hins vegar
veldur það vonbrigðum ef Ísland dregst
aftur úr öðrum Evrópuþjóðum með þessum
hætti. Skýringin er fyrst og fremst sú að
aldursskipting meðal Íslendinga er mjög
hagstæð núna. Ellilífeyrisþegar eru aðeins
tæplega 20% af fjölda vinnandi fólks.
Þetta hlutfall hækkar upp í 40% um miðja
21. öldina. Þess vegna er hætt við því að
VLF/mann, sem er mælikvarði á lífskjör
almennings, muni hækka minna hérlendis
Reiknað í Bandaríkjadölum á mann. Heimild: Spá Goldman Sachs og Vísbendingar (Ísland).
Mynd 1: Aukning á VLF/mann
frá 2012 til 2050
Heimild: Spá Goldman Sachs, útreikningar Vísbendingar.