Þjóðlíf - 01.12.1990, Blaðsíða 94
ATVINNULÍF
NÝ ATVINNUGREIN
SÆKIR í SIG
Sveinn M. Sveinsson hjá PIús Film mundar
vopnið við Gullfoss.
skáldin vondu, þannig að stofnun Nýja
Bíós var í raun eðlilegt framhald af því
samstarfi."
Fyrsta sameiginlega verkefni þeirra
Nýja Bíós manna var tónlistarmyndband-
ið „Ég held ég gangi heim“ sem Valgeir
Guðmundsson samdi og flutti. Og mynd-
böndin urðu fleiri en hafa samt ekki skip-
að stóran sess í starfi fyrirtækisins. Það
hafa hins vegar ýmis konar heimilda-og
fræðslumyndir sem þau hafa framleitt
bæði fyrir sjónvarpstöðvarnar og fyrirtæki
og félög. Nýverið gaf Nýja Bíó út á mynd-
bandi fræðslumyndina Öruggara kvnlíf
sem þau sáu alfarið um framleiðsluna á.
Nýja Bíó býr yfir góðum tækjabúnaði
og hefur fjárfest í Super-Betacam upptöku
og klippitækjum og stendur til boða að
leigja útbúnaðinn.
En hvað um leiknar myndir? Guð-
mundur: „Stærsti markaður fyrir íslenskt
myndefni er sjónvarps-og myndbanda-
markaðurinn. Því fannst okkur eðlilegt að
miða fjárfestingar okkar við þarfir þess
markaðar og keyptum fullkomnasta upp-
tökubúnað sem nú er völ á í myndbanda-
geiranum, Super Betacam. Við horfum
hinsvegar með vonarglampa í augum til
þeirra þróunar sem nú á sér stað, þeirri
tækni sem gerir mönnum kleift að yfirfæra
myndband yfir á filmu. Við höfum þegar
uppi áætlanir um framleiðslu á leiknu
efni, bæði fyrir sjónvarp og allt eins til
sýninga á tjaldi.“
Um framtíðaráform Nýja Bíós sagði
Þorgeir Gunnarsson: „Stærsta verkefnið
VEDRIÐ
„Þetta er dýr list“, en „atvinnuvegurinn býr yfir
miklum möguleikum“
KRISTÓFER DIGNUS PÉTURSSON
í landinu hefur verið að þróast ný
atvinnugrein á síðustu árum,
atvinnugrein sem er hvorttveggja í
senn iðnaður og listgrein. Og nú er
svo komið að um tugur fyrirtækja
er starfandi í þessari nýju grein
atvinnulífsins. Kvikmynda- og
myndbandagerð á íslandi er að
þróast í ýmsar áttir, þó metnaður
margra fyrirtækjanna standi í áttina
til gerðar stórra kvikmynda.
Sum þessara fyrirtækja hafa náð mikl-
um árangri í gerð heimildarmynda,
fréttamynda, auglýsinga og kynningar-
mynda. Og eins og kemur fram hér á eftir,
þá hafa nokkur þeirra unnið að verkefnum
erlendis, og ýmislegt bendir til þess að hér
sé margrómuð þekking að verða að út-
flutningsvöru. Helstu fyrirtækin sem eru
á þessum vettvangi eru: Saga Film, SÝN,
Plús Film, Frost Film, Nýja Bíó, Þumall,
HRIF, Islenska hreyfimyndastofnunin,
Klappfilm, Kvikmynd, Lifandi myndir
og fleiri. Saga Film og SÝN eru risarnir á
þessum markaði bæði við gerð auglýsinga-
mynda og myndgerðar fyrir sjónvarps-
stöðvarnar auk annars. Tíðindamaður
Þjóðlífs sótti heim nokkur fyrirtækjanna í
því skyni að fræðast ögn meira um þessa
ungu atvinnugrein landsmanna:
Nýja Bíó var stofnað í maí 1989 af Guð-
mundi Kristjánssyni kvikmyndatöku-
manni, Hilmari Oddssyni leikstjóra og
dagskrárgerðarmanni, Sonju B. Jóns-
dóttur blaða-og dagskrárgerðarmanni og
Þorgeiri Gunnarssyni kvikmynda-og
dagskrárgerðarmanni. Skrifstofur og
myndver Nýja Bíós eru til húsa í Garðast-
ræti 38.
Fyrirtækið leggur mesta áherslu á
þáttagerð fyrir sjónvarp, enda aðstand-
endur allir með mikla reynslu á því sviði.
Nýlegt dæmi um framleiðslu Nýja Bíós
eru menningarþættirnir Maður lifandi
sem sýndir voru á Stöð 2 síðastliðið haust.
Hilmar: „Við Guðmundur höfðum þegar
gert nokkrar portrait-myndir saman, eins
og Allir þessir dagar, sem tileinkuð var
Matthíasi Johannessen skáldi og Lista-
Sigurður Grímsson og Karl Sigtryggsson að störfum.
94 ÞJÓÐLÍF