Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2000, Blaðsíða 2

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2000, Blaðsíða 2
FIUGLIW’f* lVOLV0i Sigurvegarar hversdagsins FWNTEX® FLUOXETIN Yfir 30 milljónir manna um heim allan hafa treyst á Fontex gegn þunglyndi. Góður vitnisburður lækna er ekki tilvíljun. Þeir víta að forysta okkar á markaðnum er verðskulduð. Ábendingar: Þunglyndl. ICD 10: Til meðferðar á vægum • erfiðum geðdeyfðarköstum, með eða án kvíða. Lotugræðgi. Áhrif af meðferð við lotugræðgi í meira en 8-12 vikur er óviss. Þráhyggjusýki. Skammtar og lyfjagjöf: Fyrlr fullorðna: Við þunglyndi. með eða án kvíða: 20 mg elnu sinni á dag. Við lotugræðgi: 60 mg á dag. Við þráhyggjusýki: 20 mg á dag. ef ekki næst viðunandi árangur. má auka skammtinn eftir 3-4 vlkur. Allar ábendingar: Skammta má hækka eða lækka. Skammtar yflr 80 mg/dag hafa ekki verið rannsakaðir. Aldraðir: Rannsóknir benda ekki til þess að nauðsyn sé á skammtabreytingum hjá öldruðum. Fyrir börn: Upplýsingar um reynslu og áhrif skortir. Flúoxetín má taka án tillits til máltiða. Ekki er nauðsynlegt að minnka skammta smám saman þegar meðferð er hætt. þar sem flúoxetín og virka umbrotsefnið norflúoxetín hafa langan helmingunartíma. Við alvarlega skerta lifrarstarfseml og/eða ef lyfið er gefið samtimls öðrum lyfjum: Til greina kemur að gefa þessum sjúklingum lægri eða færri skammta. Frábendingar: Ofnæmi fyrir flúoxetíni eða öðrum Innihaldsefnum lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta vlð flogavelki. alvarlega nýrnabllun. lifrarsjúkdóma. nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varnaðarorð og varúðarreglur: Forðast skal samtimis meðferð með MAO-hemli, vegna hættu á serótónlnheilkennl. Ef sjúklingur hefur áður verið i meðferð með óafturkræfum MAO-hemli þurfa a.m.k. 2 vikur að líða, áður en meðferð með flúoxetínl hefst. Flytja má sjúklinga. sem eru i meðferð með afturkræfum MAO-hemlum með stuttan helmingunartíma (t.d. móklóbemfði) yfir á flúoxetín eftir einn sólarhrlng. Hlns vegar þurfa um 5 vikur að líða, áður en sjúklingar. sem eru í meðferð með flúoxetínl. eru settir á MAO-hemil. Við meðferð á þunglyndistímabilum sjúkllnga með geðklofa geta geðvelkieinkenni versnað. Hjá sjúklingum með manio depressive sjúkdóm, getur sjúkdómurtnn sveiflast yflr i maníu. Gæta ber varúðar hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemt. Útbrot. bráðaofnæml og stigvaxandi bráðaofnæml. stundum alvarlegu, með einkennum i húð. nýrum. lifur eða lungum hefur verði Iýst hjá sjúklingum sem fengu flúoxetín. Hætta skal meðferð ef fram koma útbrot eða önnur ofnæmisviðbrögð sem ekki eiga sér aðra orsök. Eins og með önnur þunglyndislyf, er mælt með því að flúoxetfn sé notað með varúð ef sjúklingur hefur sögu um krampa. Lýst hefur verið tllfellum um lækkun natríums. 1 flestum tilfellum hefur verið um að ræða aldraða sjúklinga. sem fengu jafnframt meðferð með þvagræsllyfjum, eða með vökvatap af öðrum orsökum. Blóðsykurslækkun hefur komið fram hjá sykursjúkum í flúoxetín meðferð, en blóðsykurshækkun eftir að meðferð er hætt. Meðferð með flúoxetíni getur leitt til tannskemmda vegna munnþurrks. Milliverkanir: Gæta skal varúðar þegar lyf sem umbrotin eru með cýtókróm P450IID6 og hafa tlltölulega þröngan lækningalegan stuðul eru notuð samtímis flúoxetini. eða ef flúoxetín hefur verið notað á síðustu 5 vlkum. Plasmaþéttni fenýtóíns. halóperidóls. karbamazepíns. klózapíns. díazepams, alprazólams, litíums. imipramíns og desipramíns getur breyst. og í einstaka tilfeUum geta klfnísk eitrunareinkenni komið fram. Samtímis notkun flúoxetíns og litíums getur orsakað skjálfta og skort á samhæfingu (serótónínheUkenni). Einkennin hverfa þegar meðferð er hætt. Gæta skal varúðar við skömmtun þessara lyfja og fylgjast með klínísku ástandi. Flúoxetín er mikið próteinbundið og því getur samtímis notkun lyfja sem eru mikið próteinbundin, haft áhrif á blóðþéttni þeirra beggja. Við samtímis notkun flúoxetíns og warfaríns hefur í einstaka tilfellum komið fram breyting í segavarnandi áhrifum. Fylgjast skal með sjúklingum í warfarín meðferð í upphafl eða við lok flúoxetín meðferðar. Samtimis notkun flúoxetíns og raflostsmeðferðar (ECT) hefur i einstaka tilfellum lengt krampaköst. Ef gefa á lyf sem hafa miUlverkanir við flúoxetín eða virka umbrotsefnið norflúoxetín eftir að meðferð lýkur. er mikilvægt að hafa i huga langan helmingunartíma þeirra. Nauðsynlegt getur verið að breyta skömmtum sykursýkUyfja. ef sjúldingur er samtímis í meðferð með insúlini og/eða sykursýkUyfjum tU inntöku. Ekki ætti að nota tryptófan með lyfinu. Aukaverkanir: Eftirfarandi aukaverkanir tengjast verkunarhætti sérhæfðra serótónínupptökuhemla (SSRl): Almennar: Ósjálfráð einkenni þ.m.t. munnþurrkur. aukin svitamyndun. æðavUckun og kuldahrollur. Ofnæmiseinkennl (sjá Varnaðarorð og varúðarreglur). Serótónínheilkenni. sem lýsir sér með breytingum á geði og vöðvavirkni ásamt truflunum á starfseml ósjálfráða taugakerfisins. Ljósnæmi. Meltlngarfæri: Niðurgangur. ógleði. uppköst. meltingartruflanir. kyngingartregða. bragðskynstruflanir og mjög sjaldan llfrarbólga. Innkirtlar: Ónóg seytun ADH. Blóðrás og sogæðakerfi: Bjúgur (ecchymosis). Miðtaugakerfi: Óeðlilegar hreyfingar/sjálfti. Lystarleysi. Kvíði og skyld einkenni. Svimi. Þreyta. Erfiðleikar við einbeitingu og hugsanatruflanir. Manía. Svefntruflanir. öndunarfæri: Geispar. Húð: Hárlos. Skynfæri: Sjóntruflanir. Þvag- og kynfæri: Þvagteppa. Langvinn stinnlng. Truflanlr á kynlífi. þ.m.t. minnkuð kynhvöt. selnkað eða ekkert sáðlát. ná ekki fullnægingu og getuleysi. Einkenni eins og svimi. náladofi. höfuðverkur. kvíði og ógleði hafa komið fram þegar meðferð með geðdeyfðarlyfjum er hætt. Hættan á þessum einkennum er minni hjá flúoxetíni en öðrum geðdeyfðarlyfjum þar sem bæði flúoxetín og virka umbrotsefnið hafa tiltölulega langan helmingunartíma. Pakkningar og verð 1. febrúar 2000: Hylki 20 mg: 100 stk. — 11.899 kr. Lausnartöflur til inntöku 20 mg: 30 stk. — 5.309 kr.: 100 stk. — 14.847 kr. Mixtúra 4 mg/ml: 70 ml — 3.954 kr. Hámarksmagn sem ávisa má með lyfseðli er sem svarar 30 daga skammti. Lyfið er Iyfseðilsskylt og greiðslufyrirkomulag er B. Markaðsleyfishafi er Eli Lilly Danmark A/S. A. Karlsson hf. • Brautarholt 28 • 105 Reykjavík Sími 5 600 900 • Fax 5 600 901 • www.lilly.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.