Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 1
Héðan á ég ekkert nema góðar minningar Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk Fimmtudagur 31. maí 2007 · 22. tbl. · 24. árg. – sjá viðtal í miðopnu við Jón Fanndal Þórðarson þar sem hann ræðir m.a. um heimastjórn- arhátíðina og uppreisnarandann um leið og hann kveður Vestfirði eftir áratuga búsetu Menntaskólanum á Ísafirði var slitið í 37. sinn á laugardag. Fjörutíu nemendur voru útskrifaðir; 28 stúdentar, tveir sjúkraliðar, einn úr rennismíði, tveir af 2. stigi vélstjórnar og sjö úr grunnnámi málmiðngreina. Hæstu einkunn hlaut Edith Guðmundsdóttir Hansen stúdent af náttúrufræðibraut eða 9,41. Hlaut hún verðlaun sem Aldarafmælissjóður Ísafjarðarbæjar gefur þeim nemanda sem hlýtur hæstu meðaleinkunn á stúdentsprófi. Einnig hlaut Edith verðlaun kanadíska sendiráðsins fyrir framúrskarandi árangur í frönsku og ensku, peningaverðlaun, sem Ragnheiður Hákonardóttir, Guðbjartur Ásgeirsson og fjölskylda gefa til minningar um Guðbjart Guðbjartsson, fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum og verðlaun Stærðfræðifélagsins fyrir framúrskarandi árangur í stærðfræði.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.