Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 15

Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2007 15 60 sekúndur með Ísfirðingnum Dóru Hlín Gísladóttur, sem er við nám í Svíþjóð –Sæl Dóra Hlín, ég ætlaði að forvitnast örstutt um hvað þú ert að gera í Svíþjóð. „Ég er í mastersnámi í efnaverkfræði með áherslu á orkutækni við Kungliga Tekniska Högskolan í Stokkhólmi. Núna er ég að vinna að lokaverkefninu mínu við skólann.“ –Um hvað fjallar verkefnið? „Það snýst um að skoða möguleikana á að fanga koltvísýring og endurnýta kolefnisatómin. Koltvísýringurinn ásamt vetn- isgasi yrði hvarfaður yfir í dísil olíu í gegnum svokallað Fisch- er-Tropsch hvarf. Með þessum hætti er í rauninni verið að um- breyta rafmagni í eldsneyti og minnka útblástur í leiðinni. Þetta er sérstaklega áhugvert fyrir Íslendinga þar sem við vilj- um gjarna minnka útblástur koltvísýrings og gjarna verða orkulega sjálfbærari.“ –Hvernig líkar þér vistin í Svíþjóð? „Mér líkar vistin hér mjög vel, finnst Stokkhólmur skemmti- leg borg - margt að sjá og skoða og gaman að búa í stórborg. Skólinn er mjög góður og öll aðstaða til fyrirmyndar.“ –Ég frétti af þér í Noregi nýlega, hvað varstu að gera þar? „Í Noregi var ég í atvinnuviðtali, nánar tiltekið í Osló, en ég er að fara að vinna þar næsta haust, hjá stofnun sem heitir Nor- disk Energiforskning. Það er stofnun á vegum norrænu ráð- herranefndarinnar, þar sem höfð er yfirumsjón með ýmsum orkurannsóknum sem framkvæmdar eru á Norðurlöndunum.“ –Hvað verðurðu þar lengi? „Ég verð þar í fjóra mánuði, en flyt svo aftur til Ísafjarðar í desember.“ –Hvað tekur þá við hjá þér? „Það er eitthvað sem tíminn verður bara að leiða í ljós“ –Takk fyrir spjallið Dóra, og gangi þér vel. – tinna@bb.is Einbýlishús til sölu Til sölu er einbýlishúsið að Fagraholti 11 á Ísafirði. Um er að ræða mikið endurnýjað 140m² hús auk 40m² bílskúrs. Ásett verð er kr. 23.500.000.- Upplýsingar eru veittar í símum 860 7443 (Svavar) og 695 2222 (Hildur). Sælkeri vikunnar er Kristín Ólafsdóttir á Ísafirði Karrý kjúklingur og eplakaka Sælkeri vikunnar býður upp á ljúffengan karrý kjúklinga- rétt sem er sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Kristín bendir á að gott sé að setja ferskt kóríander og ristaðar kókosflögur yfir réttinn áður en hann er reiddur fram. Í eftirrétt er eplakaka eins og hún gerist best. Rétt er að geta að Kristín hljóp í skarðið fyrir þau sem skorað var á í síðustu viku en vegna óviðráðanlegra aðstæðna gátu þau ekki brugð- ist við áskoruninni. Karrý kjúklingur 4 kjúklingabringur 3 söxuð hvítlauksrif 1 msk romm 2 msk olía 1 saxaður laukur 1 msk karrýduft 1/2 bolli kókosmjólk 2 tsk sesamolíu 1/2 chilli Látið kjúklinginn, rommið og hvítlaukinn í skál og látið liggja í mareneringu í nokkrar klst. eða yfir nótt. Hitið olíuna á pönnu og létt steikið laukinn. Steikið síðan kjúklinginn. Takið aðra pönnu og látið kókosmjólkina, sesamolíuna og karrýið saman. Bætið kjúklingnum út í og hitið allt saman. Bætið chilli við ef vill. Borið fram með hrísgrjónum. Eplakaka 250 g sykur 150 g smjörlíki 3 egg 230 g hveiti 1/2 tsk lyftiduft 2 stór epli 50-75 g saxað suðusúkku laði kanelsykur Helmingurinn er settur í botn á köku formi. Eplin, kan- illinn og súkkulaðið sett á milli. Restin af deiginu er sett yfir. Bakist við 175°C í 1 klst. Ég skora á Eygló Valdi- marsdóttur Ísafirði að koma með uppskrift í næsta blað. Edinborgarhúsið og Ísafjarðarbær bjóða til fagnaðar í tilefni af opnun Edinborgarhússins á Ísafirði Athöfnin fer fram í húsinu á sjómannadaginn 3. júní kl. 14:00. Auk þess að vera eitt af menn- ingarhúsum landsbyggðarinnar státar Edin- borgarhúsið af aldarafmæli um þessar mundir. Það væri okkur mikill heiður að sem flestir sæu sér fært að gleðjast með okkur þennan dag. Fjórir um stöðu forstöðumanns Fjórir hafa sótt um stöðu forstöðumanns Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar. Þeir eru Freydís Jóna Freysteinsdóttir frá Hafnarfirði, Margrét Geirsdóttir á Ísafirði, Pétur Björnsson á Flateyri og Unnar Reynisson á Suðureyri. Hafin eru starfsviðtöl við umsækjendur. Eins og greint hefur verið frá hefur Ingibjörg María Guðmundsdóttir, núverandi forstöðumaður, verið ráðinn skólastjóri Þjórsárskóla í Skeiða- og Gnjúpverjahreppi og á hún að hefja störf þann 1. júní samkvæmt samningi. Horfur á föstudag: Suðaustan 5-10 m/s og væta sunnan- lands en bjart með köflum fyrir norðan. Hiti 8-20 stig. Horfur á laugardag: Austanátt og rigning sunnanlands e annars þurrviðri. Hiti 8-20 stig, hlýjast á Norðurlandi. Horfur á sunnudag: Suðaustanátt og víða væta, einkum sunnanlands. Hiti 10-18 stig. Horfur á mánudag: Sunnanátt og skúrir víða um land. Hiti breytist lítið. Helgarveðrið

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.