Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 14

Bæjarins besta - 31.05.2007, Blaðsíða 14
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 200714 Ábendingar um efni sendist til Thelmu Hjaltadóttur, thelma@bb.is – sími 849 8699 Mannlífið Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Blogg Ólínu Þorvarðardóttur http://olinathorv.blog.is/blog/olinathorv/ Smáauglýsingar Til sölu er ársgömul Siemens uppþvóttavél. Verð kr. 30 þús. Uppl. í síma 820 8284. Til sölu er magnari í bíl og Neon ljós. Fæst fyrir lítinn pening. Uppl. í síma 846 4330. Ungt par vantar margt í búið, helst gefins eða fyrir lítinn pen- ing. Uppl. í síma 846 4330. Óskum eftir 3ja herb. íbúð á Ísafirði til leigu frá 1. júlí. Á sama stað óskast þvottavél og ísskáp- ur. Upplýsingar í símum 699 7524 og 456 1270. Til sölu er Subaru Legacy árg. 1997, skemmdur eftir veltu. Uppl. á ssgunn@simnet.is. Til sölu eru 25 heyrúllur. Uppl. í síma 868 1182. Til sölu er ónotað reiðhjól, tveir flotgallar, átta ný síldarnet, hálf sjálfvirk haglabyssa ásamt skotfærum, einn Mauser riffill og einn Brno riffill. Uppl. í síma 456 3663 eða 864 2212. Til leigu er 3ja herb. íbúð á eyr- inni á Ísafirði. Reglusemi áskil- in. Uppl. í síma 456 4046. Til sölu er 1/3 hlutur í skútunni Lipurtá. Lipurtá er mjög vel bú- in 26 feta bátur í frábæru standi. Uppl. í síma 844 2431 (Torfi). Óska eftir húsnæði til leigu í Bolungarvík frá 1. júlí. Lágmark fjögur svefn.herb. Vinsamleg- ast sendið uppl. með nafni og síma á bergviney@simnet.is. Til sölu er ónotað reiðhjól, flot- galli, átta síldarnet, haglabyssa, og hálfsjálfvirkur Brno riffill. Uppl. í síma 456 3663. Par með tvö börn vantar íbúð til leigu á Ísafirði frá 1. júlí. Reg- lusöm og auðveld í umgengni. Uppl. gefur Thelma í s. 849 8699. Til sölu er Daihatsu Ferosa árg. 90. Verð kr. 50 þús. Uppl. í síma 456 3663 eftir kl. 19. Býð upp á gistingu í Reykjavík í júní og júlí. Uppl. í síma 844 1270. Sumargisting í Reykjavík. Fín íbúð fyrir fjölskyldufólk. Fullbú- in húsgögnum, 4-5 rúm með sængurveri og handklæði á staðnum. ADSL tenging. Verið velkomin. Uppl. í símum 698 9874 og 898 6033. Fræðsludagar á vegum Hlut- verkaseturs verða haldnir á Ísafirði í byrjun júní, þar sem hugtök eins og valdefling og batahvetjandi þjónusta verða kynnt. Kristjana Milla Snorra- dóttir er ein þeirra sem standa að fræðsludögunum. Milla, eins og hún er einatt kölluð, er lærður iðjuþjálfi, en faðir hennar Snorri Bogason býr á Ísafirði. Milla eyddi því ófáum sumrum hér vestra og það var hér sem hún steig sín fyrstu skref innan heilbrigðis- og fé- lagsmálastéttarinnar, en hún vann hjá svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Ísafirði. „Vinnan hjá svæðisskrif- stofunni kveikti vissulega áhuga minn á að vinna með fólki,“ segir Milla, en hún út- skrifaðist sem iðjuþjálfi frá Háskólanum á Akureyri vorið 2003. „Starf iðjuþjálfans er ótrúlega fjölbreytt, og skemmti- legt. Við vinnum með fólki og aðstoðum það við að finna og nýta styrkleika sína, og byggja sig upp út frá eigin þörfum, væntingum og vilja. Það er mjög spennandi.“ Í byrjun árs hóf Milla störf hjá Hlutverkasetri, sem er í eigu AE starfsendurhæfingar. Meginmarkmið Hlutverkaset- urs er að efla virkni og þátt- töku fólks með færniraskanir og þeirra sem misst hafa hlut- verk í samfélaginu. „Starfsemi Hlutverkaseturs gefur tækifæri til að skapa ný hlutverk, eykur þátttöku fólks í samfélaginu, sem leiðir til aukinnar verðmætasköpunar um leið og komið er í veg fyrir að einstaklingar verði á varanlegum örorku- eða at- vinnuleysisbótum og þurfi á fjárhagsaðstoð að halda. Reynt er að skapa tækifæri til starfa á almennum vinnumarkaði með eftirfylgd. Við hjá Hlutverkasetri höf- um verið í samstarfi við Hug- arafl, samtök einstaklinga sem hafa glímt við geðsjúkdóma en eru á batavegi. Hlutverka- setur hefur gert þjónustu- samning við félagsmálaráðu- neytið sem felur m.a. í sér gæðaþróunarverkefni sem heitir Notandi spyr notanda, en notendur eru skilgreindir fólk sem nýtir sér félags- eða heilbrigðiskerfið. Sjö öryrkj- ar, sem allir hafa reynslu af því að vera með geðsjúkdóm starfa nú að verkefninu, auk tveggja iðjuþjálfa.“ Í samningnum við félags- málaráðuneytið felst einnig fræðsla úti á landi og á þessu ári verður Hlutverkasetur með fræðsludaga víðsvegar um landið. „Við erum þegar búin að fara til Akureyrar og erum að koma til Ísafjarðar með fræð- sludaga núna í byrjun júní. Á fræðsludögunum kynnum við valdeflingu (e. empowerment) og batahvetjandi þjónustu. Valdefling er hugmyndafræði sem getur átt við í allri vinnu með fólki. Hvort sem um er að ræða í stjórnunarfræðum til þess að auka þátttöku starfs- manna í ákvarðanatöku hjá fyrirtækjum eða í vinnu með fólki sem glímir t.d. við sjúk- dóma, fátækt eða atvinnu- leysi. Það er grundvallaratriði í hugmyndafræði valdeflingar að hafa vald til að taka ákvarð- anir um eigið líf, að láta ekki annað fólk eins og t.d. með- ferðaraðila, vini eða fjöl- skyldumeðlimi taka stjórnina af viðkomandi. Batahvetjandi þjónusta snýst í raun um það hvernig hægt er að ná bata, auka lífsgæði og vera virkur þátttakandi í sam- félaginu, hvort sem fólk hefur glímt við líkamlega eða fé- lagslega sjúkdóma, eða geð- raskanir. Fræðsla okkar er byggð á notendarannsóknum, þ.e. hvaða þjónusta notendum finnst nýt- ast sér best og skila mestum árangri. Það sem mér finnst mest spennandi við þetta verk- efni er að í því eru notendur sjálfir að segja frá sinni reyn- slu og hvað þeim finnst virka best í sínum bata, en ekki bara fagfólk að segja frá starfi sínu og einhverjum rannsóknum og könnunum sem hafa verið gerðar. Rödd notenda fær því að heyrast, hvað vilja þeir og hvaða þjónustu vilja þeir sjá bætta o.s.fv. Fagfólk mun þó einnig vera með erindi á fræð- sludögunum, auk fulltrúa frá félagsmálaráðuneytinu og fulltrúa atvinnulífsins. Við reynum að tengja fræð- sludagana á hverjum stað sem mest við heimamenn, þannig að á Ísafirði verða erindi hald- in af Vestfirðingum líka. Þessi ráðstefna er opin öllum, en hentar sérstaklega þeim sem vinna með fólki innan heil- brigðis- eða félagsmálageir- ans, hvort sem það er hjúkr- unarfræðingur, læknir, prestur eða félagsráðgjafi, auk þess sem notendur þessarar þjón- ustu og aðstandandendur þeirra eru hvattir til að koma.“ – tinna@bb.is Valdefling kynnt á fræðslu- dögum Hlutverkaseturs Alls svöruðu 607. Já sögðu 416 eða 69% Nei sögðu 144 eða 24% Alveg sama sögðu 47 eða 7% Spurning vikunnar Á ríkisstjórnin að taka upp færeysku leiðina í stjórnun fiskveiða? Flateyrarkirkja: Guðsþjón- usta á sjómannadaginn, 3. júní kl. 13:00. Magnús Ingi Björgvinsson, sjómað- ur predikar. Minningar- stund í kirkjugarðinum. Kirkjustarf Það rættist úr helginni - svei mér ef það er ekki bara að koma vor. Hvítasunnudagurinn í gær skein á himni “skír og fagur” eins og segir í sálminum góða. Ég mætti í fermingarmessu á Suðureyri og söng þar eins og herforingi með kirkjukórnum. Það gekk bærilega. Séra Karl V. Matthíasson hljóp í skarðið fyrir sóknarprestinn (sem var sjálfur að ferma sitt eigið barn í annarri sókn) og kom nú í sitt gamla prestakall - þangað sem hann vígðist sjálfur til prests fyrir 20 árum. Vel messaðist séra Karli og fallega fermdi hann börnin fjögur. Það er ekki öllum prestum gefið að messa þannig að stundin lifi í sál og sinni eftir að henni er lokið. Gerist áskrifendur í síma 456 4560

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.