Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.06.2007, Blaðsíða 3

Bæjarins besta - 21.06.2007, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 21. JÚNÍ 2007 3 Sturla gagnrýnir kvótakerfið Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis, gagn- rýndi kvótakerfið harkalega í hátíðarræðu sinni á 17. júní há- tíðarhöldunum á Ísafirði. Sturla sagði að kvótakerfið sem tæki til að byggja upp fiskistofnana hafi brugðist. Lagði hann til að farið yrði í allsherjar uppstokk- un á fiskveiðastjórnunarkerfinu að því gefnu að niðurstöður Hafrannsóknastofnunar séu réttar. Sturla lagði ríka áherslu á að úthlutun byggðakvóta væri ekki laus á vanda í byggðamálum og sagði aldrei ríkja sátt um þá úthlutun. Það er ekki á hverjum degi að æðstu valdamenn innan Sjálfstæðisflokksins gagnrýna kvótakerfið og því verður af- staða Sturlu að teljast talsverð tíðindi. Sturla talaði einnig um frjálst framsal aflaheimilda, taldi það ógna byggðalögum á Vestfjörðum og sagði ekki búið við það ástand. Olíuhreinsun- arstöð er kostur sem er forseta Alþingis hugnanlegur og sagði hann að það mætti ekki minna vera en að stjórnvöld leggi til fjármuni til að láta meta staðar- valskosti á Vestfjörðum. Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður í Norðvesturkjör- dæmi og flokksbróðir Sturlu, tók undir gagnrýni forseta Al- þingis í Morgunblaðinu. Einar sagði að hver einasti maður sem er ekki blindur og heyrnarlaus, sæi að fiskveiðistjórnunarkerf- ið og uppbygging fiskistofn- anna hafi mistekist. Ræðan í heild sinni: „Ágætu þjóðhátíðargestir Mér er það sérstakt fagnað- arefni að ávarpa ykkur hér á Ísafirði í þessu stórbrotna um- hverfi í tilefni þjóðhátíðar okk- ar Íslendinga. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að óska ykkur til hamingju með menningarhúsin ykkar sem hafa verið tekin í notkun nú síðast Edinborgarhúsið sem mun setja ríkulegan svip á menningarlífið í bænnum. Fæstir núlifandi Íslendinga gera sér grein fyrir því, hvílíkt kraftaverk það hefur verið fyrir frelsishetjuna okkar, Vestfirð- inginn Jón Sigurðsson að standa gegn ofurefli hins danska valds. Hæst reis styrkur hans á Þjóð- fundinum sem haldinn var í Reykjavík árið 1851. Hann reis gegn erlendu valdi og kjarkur hans og sannfæring endur ómar í þeirri þekktu setn- ingu ,,vér mótmælum allir“ þegar hinir kjörnu þjóðfundar- fulltrúar voru ofurliði bornir af embættismanni dönsku stjórn- arinnar. Með þrotlausri vinnu og trú hugsjónarmanna á möguleika landsins og á íslenska menn- ingu fengust réttindi íslensku þjóðarinnar og sjálfstæði með stjórnarskránni árið 1874, með fullveldinu 1918 og síðan með fullu sjálfstæði við lýðveldis- stofnunina 17. júní 1944. Við minnumst þessa þess mikla viðburðar í sögu þjóðar- innar í dag. Í tilefni afmælis lýðveldisins er ástæða til þess að litast um í samfélagi okkar Íslendinga og ráða í rúnir framtíðar okkar í þessu dreifbýla landi sem lands- námamaðurinn Hrafna Flóki gaf það kuldalega en tignarlega nafn, Ísland. Nafnið Ísland lýsir e.t.v. vel þeirri hörðu lífsbaráttu sem um aldir hefur verið háð í landinu af kynslóðum sem nú hafa skil- að okkur samfélagi í fremstu röð þjóða heimsins. Á hvaða mælikvarða sem hagsæld okkar er mæld erum við Íslendingar vel sett og breytingin til fram- fara hefur orðið hvað mest síð- ustu tvo áratugi. Engu að síður er margt ógert sem við viljum koma í framkvæmd til hagsbóta fyrir land og lýð. Því verður ekki á móti mælt að okkur Íslendingum hefur tekist að skapa aðstæður sem gefa okkur mörg tækifæri. Okkur hefur tekist að nýta auð- lindir okkar á þann veg að lífs- kjörin hafa verið að batna ár frá ári. Fjárfesting í menntun og þekkingu hefur skilað sér í aukinni hagsæld og nýtingu mikilvægra tækniframfara svo sem fjarskipta og upplýsinga- tækni sem færir okkur nær mörkuðum stórþjóðanna og viðskiptum sem skapa nýja vídd og aukna möguleika fyrir okkur hvar sem við búum í landinu. Uppbygging í innviðum sam- félagsins hefur verið mikil. Hrein bylting er að verða í fjar- skiptum og ekki síður í sam- göngum hér á Vestfjörðum á grundvelli þeirra áætlana sem ég fékk samþykktar sem sam- gönguráðherra. Nýr vegur um Djúpið um Mjóafjörð, nýr vegur um Arn- kötludal verður að veruleika á næsta ári og jarðgöng milli Hnífsdals og Bolungarvíkur eru í sjónmáli. Með þessum mikil- vægu framkvæmdum breytast aðstæður ykkar Vestfirðinga mikið og eykur öryggi vegfar- enda jafnt að sumri sem vetri. Á suður fjörðum Vestfjarða eru jafnframt miklar vegabætur framundan. Stefna verður að því að tengja suður og norður firði á sem skemmstum tíma að öðrum kosti tapast þau tæki- færi sem fást með því að byggð- irnar séu tengdar saman með góðum samgöngum allt árið. veiðiári. En hvað er framundan á Vestfjörðum við þessar að- stæður. Umræðan um atvinnu- mál á Vestfjörðum og þróun byggðanna hefur verið áber- andi. Sveiflur í þorskveiðum og framsal aflaheimilda milli ver- stöðva ógnar nú atvinnulífinu og byggðunum. Við það verður ekki búið. Við verðum að snúa vörn og undanhaldi í sókn. Við verðum að skapa skilyrði hér til þess að unga fólkið sem á hér rætur jafnt sem nýbúar geti búið hér og starfað við þau verkefni sem þau hafa menntað sig til að sinna. Og ég lít á það sem hlutverk stjórnvalda í samstarfi við at- vinnulífið að skapa þau skilyrði sem þarf til þess að atvinnulífið geti staðið undir þeirri samfé- lags gerð sem við viljum að þróist hér á Vestfjörðum til jafns við aðra landshluta ef fram fer sem horfir með sjávar- útveginn. En hvað er til ráða. Ég full- yrði að þingmenn kjördæmisins eru samstíga í því að vilja vinna saman að lausn mála. Leiðirnar sem þingmenn vilja fara eru hinsvegar ólíkar. Þau sjónar- mið þarf að leiða saman til far- sælla lausna svo íbúarnir finni sér farveg til framtaks og að- gerða því framtak einstakling- anna er lykillinn að framförum. Við eigum að nota afmælisdag lýðveldisins til að strengja þess heit að vinna sem best saman í þágu gróandi þjóðlífs. Nú verða allir að láta verkin tala og ganga til samstarfs við það öfluga fólk sem þið Vest- firðingar hafið valið til þess að leiða bæjarfélögin á Vestfjörð- um og ekki síður að leita sam- starfs við forystumenn atvinnu- lífsins og verkalýðshreyfing- arinnar um lausnir sem duga til þess að efla atvinnulífið á Vest- fjörðum til frambúðar. Það verður ekki gert með úthlutun byggðakvóta. Um það verður aldrei sátt til frambúðar. Í umræðum um þróun byggð- ar og eflingu fjölbreytts atvinnu- lífs hefur mikið verið rætt um nauðsyn þess að fjölga opinber- um störfum. Allt er það eðlilegt og nauðsynlegt. Stjórnvöld eiga að færa sem mest af störfum hins opinbera út í landshlutana og skapa til þess skilyrði. Ekki síst þau störf sem er ætlað að sinni þjónustu við fólkið úti á landsbyggðinni. Ég tel augljóst að Háskólasetrið hér á Ísafirði þróist til þess að verða háskóli með öllum þeim möguleikum sem slíkri starfsemi fylgir. Stór efla þarf rannsóknir tengdar þeim stofnunum og háskóla- starfsemi sem nú þega er til staðar hér á Ísafirði. En vöxtur í heilum lands- hluta verður ekki byggður upp með þeim einum sem eru opin- berir starfsmenn. Heimamenn með eðlilegum stuðningi stjórn- valda verða að efla aðra hluta atvinnulífs á Vestfjörðum með aukinni hlutdeild í sjávarútvegi svo nærri gjöfulum fiskimiðum sem byggðir Vestfjarða eru; með því að efla ferðaþjónust- una sem ég tel að eigi sér mikla möguleika á Vestfjörðum ; með hverskonar þjónustustarfsemi og iðnaðar uppbyggingu. Ég tel nauðsynlegt að gengið verði úr skugga um það að þeir kostir sem tengjast olíuhreins- unarstöð verði til skoðunar. Það má ekki minna vera en að stjórnvöld leggi til fjármuni til þess að láta meta staðarvals- kosti á Vestfjörðum fyrir slíka starfsemi sem auðvitað verður að uppfylla allar ýtrustu kröfum um öryggi og umhverfisvernd sem gilda um slíka starfsemi hér á landi. En við megum eng- an tíma missa. Við verðum að leggja til hliðar fordóma gagn- vart slíkri iðnaðarstarfsemi og við verðum að skjóta styrkum stoðum undir atvinnu lífið til þess að tryggja afkomu okkar sem þjóðar. Aðrir landshlutar svo sem höfuðborgarsvæðið, Suðurnes og miðausturland munu eflast með stóriðjunni og vegna vax- andi fjármálastarfsemi, stjórn- sýslu, þjónustu opinberra stofn- ana sem starfa á landsvísu mun höfuðboragarsvæðið stöðugt eflast. Þeir landshlutar verða að gefa eftir hlutdeildina í sjáv- arútvegi til þeirra landshluta sem geta best nýtt fiskimiðin á hagkvæman hátt og skapað vinnu við sjávarútveginn. Til þess að auka hagkvæmni atvinnulífsins hér á Vestfjörð- um þarf að tryggja hraða upp- byggingu innviða svo sem samgöngukerfisins og tryggja með löggjöf greiðari aðgang að fiskimiðunum frá sjávar- byggðunum sem allt eiga undir nýtingu sjávarfangsins t.d. með auknum veiðiheimildum dag- róðrabáta og almennum að- gerðum sem muni leiða til þess að útgerðin færist aftur til þeirra svæða þar sem spennan er minni á vinnumarkaði og hag- kvæmast er að gera út frá. Slík- ar aðgerðir hljóta að koma til skoðunar við endurskoðun og endurmat á sjávarútvegskerf- inu hjá okkur sem er óhjá- kvæmilegt. Ágætu hátíðargestir. Á þessum degi lítum við yfir sviðið og horfum til framtíðar okkar sem þjóðar. Við eigum að spyrja spurninga sem varða hagsmuni okkar sem heildar. Í hverju eru mestu verðmæti okkar fólgin og hverjar eru hætturnar. Hver eru verðmæti þess að eiga tungumál sem á í varnar- baráttu gagnvart áhrifum enskr- ar tungu og þar með bókmennta arfur okkar, hvers virði er aðgangur að auðlindum til lands og sjávar sem við getum nýtt með sjálfbærum hætti, hvers virði er það sjálfstæði okkar á vettvangi alþjóðasam- félagsins sem við eigum á hættu að glata í skiptum fyrir við- skiptahagsmuni, hvar liggur styrkur okkar sem vopnlaus þjóð sem gæti staðið frami fyrir ofurvaldi hryðjuverkamanna. Allt eru þetta spurningar sem við þurfum að velta upp ekki síst á vettvangi þingsins. Sem smáþjóð mitt á milli Evrópu- sambands ríkjanna og Banda- ríkja Norður Ameríku verðum við að vera á verði um sjálf- stæði okkar og hagsmuni. Bæði gagnvart ofurvaldi stórþjóð- anna, en einnig gagnvart þeim einstaklingum og stórfyrirtækj- um sem vilja drottna í krafti stærðar eða viðskiptalegra afls- muna. Það sannaðist við brott- för varnarliðsins að stórþjóð- irnar sýna smáþjóðum tak- markaða virðingu. Sterkasta varnarlið okkar er fólgið í sjálfstæði og stefnu- festu í alþjóðasamstarfi, ráð- deild, efnahagslegum stöðug- leika og fyrirhyggju við upp- byggingu atvinnuveganna og samstöðu um að byggja landið allt og nýta auðlindirnar frá byggðunum sem næstar eru. Við verðum að sækja styrk okkar inn á við með sama hætti og frelsishetjan Jón Sigurðsson gerði á sínum tíma. Hann sótti fylgi sitt og styrk til fólksins á Vestfjörðum og úr byggðum Breiðafjarðar. Þar stóðu rætur hans djúpt þegar á reyndi. Hann byggði hugmyndir sínar um framfarir á verslunar frelsi og trú á einstaklinginn. Hann náði árangri vegna þess að hann hafði stuðning fólksins. Með sama hætti verða stjórn- málamenn í dag að sækja fram til sóknar og varnar í nánu sam- starfi við íbúa kjördæmisins í þjóðar þágu. Sem forseti Al- þingis mun ég beita áhrifum mínum í ykkar þágu ágætu Vestfirðingar og víkja hvergi fyrir þeim sem er Þrándur í götu hagsmuna kjördæmisins. Hér eiga að geta verið öll skil- yrði til vaxtar og velgengni. Við skulum sameinast um að Ísafjarðarbær og nærliggjandi byggðir eflist á komandi árum. Ég óska öllum Vestfirðing- um til hamingju með daginn. Gleðilega þjóðhátíð.“ – smari@bb.is Breyttar aðstæður atvinnumála vegna fyrirsjáanlegra minkandi þorskveiða kallar á hraðari uppbyggingu samgöngukerfis- ins en ætlað var. Undan því verður ekki vikist. Áform okkar um að byggja upp fiskistofnana með kvóta- kerfinu sem stjórnkerfi fisk- veiða virðist hafa mistekist. Sú staða kallar á allsherjar upp- stokkun á fiskveiðistjórnunar- kerfinu ef marka má niðurstöðu Hafrannsóknastofnunar. Stað- an í sjávarútvegsmálum er því mjög alvarleg og kallar á breyt- ingar ef sjávarbyggðirnar eiga ekki að hrynja. Margt bendir til þess að aflaheimildir safnist á hendur fárra útgerða sem leggja skipum sínum til lönd- unar í útflutningshöfnunum og herða enn frekar á þenslunni í atvinnulífinu þar, allt í nafni hagræðingar sem mun koma hart niður á þeim byggðum sem allt eiga undir veiðum og vinn- slu sjávarfangs. Ástandið og horfurnar í minni sjávarbyggðunum er mjög alvarlegar ef draga verður úr veiðum og sú staða kemur flestum á óvart. Miðað við afla- brögðin við Breiðafjörð á síð- ustu vertíð hvarflaði það ekki að nokkrum manni þar að við ættum eftir að standa frammi fyrir því að skera enn niður veiðiheimildir á næsta fisk- Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis og fyrsti þing- maður Vestfirðinga flytur hátíðarræðu þjóðhátíðar- dagsins á Ísafirði. BÍ/Bolungarvík vann baráttusigur á Víði BÍ/Bolungarvík vann á laugardag sigur á Víði frá Garði í B-riðli 3. deildar. Lokatölur urðu 4-3. Á heima- síðu BÍ/Bolungarvíkur segir að leikurinn hafi verið opinn og skemmtilegur frá fyrstu mínútu. Í hálfleik var staðan 2-0 BÍ/Bolungarvík í vil, en Andri Rúnar Bjarnason skoraði bæði mörkin. Í síðari hálfleik settu Víðismenn strax pressu á Vestfirðingana og voru búnir að minnka muninn eftir aðeins tvær mínútur. Gunnar Már Elíasson skoraði þriðja mark BÍ/Bolungarvíkur, og Sigurgeir Sveinn Gíslason það fjórða, en Víðismenn bættu við tveimur mörkum eftir þetta, því seinna úr vítaskoti. BÍ/Bolungarvík er nú í þriðja sæti riðilsins með níu stig eftir fjóra leiki. Liðið hefur unnið alla leiki sína nema einn.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.