Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 24
föstudagur 27. júní 200824 Helgarblað DV Fyrir fimmtán árum fékk Krist- jana Bára Bjarnadóttir gjöf sem átti eftir að hafa mikil áhrif á hana. Gjöfin var útsöguð belja. Kristjana hreifst af beljunni og ákvað í kjöl- farið að safna fleiri beljum. Í dag, fimmtán árum síðar, segir Kristjana að sumum gestum hennar blöskri hreinlega beljusafnið. „Það hafa margir hneykslast á þessu áhuga- máli mínu en á móti hefur fólk líka verið duglegt að færa mér beljur af öllum stærðum og gerðum,“ segir Kristjana. Aðspurð segist Kristjana ekki hafa verið í sveit sem barn og eigi áhuginn því ekki rætur þang- að að rekja. „Ég er uppalin að mestu í Grímsey og þar voru ekki einu sinni beljur,“ segir Kristjana og hlær. Kristjana, sem fluttist til Reykjavíkur fyrir ellefu árum, starfar nú sem verslunarstjóri Gallerí Kjöts – Fiskisögu. „Það er ekki nóg að ég safni beljum heldur sel ég þær líka.“ Þegar Kristjana er beðin um að nefna nokkra hluti sem hún hef- ur safnað sér í gegnum tíðina veit hún varla hvar á að byrja. „Ég á allt milli himins og jarðar, ég á sængurföt með beljum, nærföt og eyrnalokka svo eitthvað sé nefnt. Einnig á ég hrjótandi belju, dans- andi belju og eina hlæjandi.“ Hún segist hvergi nærri hætt að safna beljum og viðurkennir að hún fái alltaf sama fiðringinn þegar hún sjái nýja belju. Kristjana er innt eftir því skrítnasta sem hún hefur eignast í beljuformi um ævina. „Þegar ég varð fimmtug færði bróðir minn mér lifandi kálf að gjöf. Ætli það sé ekki furðulegasta gjöf sem ég hef fengið en hún vakti engu að síður mikla kátínu hjá mér sjálfri sem og veislugestum. Kálfinum var að sjálfsögðu skilað að lok- inni afmælisveislunni enda ekk- ert pláss fyrir hann í minni blokk- aríbúð.“ Að lokum segist þessi mikla beljuáhugakona vera kölluð amma mu af barnabörnum sínum og það þyki henni vænt um. „Eitt barnbarn mitt býr svo vel að eiga nokkrar ömmur og þurfti að skil- greina mig. Fæddist þá þessi tit- ill, amma mu, og kann ég honum vel,“ segir Kristjana að lokum. Konan Stór morgunverður Ef ætlunin er að fækka aukakílóunum mun mikilvæg- asta máltíð dagsins vera morgunmatur. Það er ekki bara nauðsynlegt að muna eftir honum heldur þarf hann að vera í stærra lagi. Of þungar konur sem neyta helmings daglegs hitaeiningaskammts fyrri hluta dags- ins eiga auðveldara með að léttast en þær sem ekki fylgja slíku mataræði. samkvæmt rannsókn sem gerðar voru í Bandaríkjunum nýlega getur of lítill morgunverð- ur beinlínis aukið löngun í mat.umsjón: kOLBrún pÁLína hELgadóttIr kolbrun@dv.is Kristjana Bára Bjarnadóttir segir DV frá einstöku áhugamáli sínu. Amma mu kristjana Bára Bjarnadóttir er kölluð amma mu af barnabörnum sínum. Safnar beljum og Selur þær Baðherbergið Það er óhætt að segja að beljustemning sé í hverju horni á heimili kristjönu. velkomin Belja býður gesti velkomna . Þessi lætur fara vel um sig Þessi belja lætur fara vel um sig í þessum fína stól. Beljur úti um allt Beljur spila óneitanlega stórt hlutverk á heimili kristjönu. verslun eða heimili skáparnir hjá kristjönu líta óneitanlega út eins og í verslun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.