Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 72

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2008, Blaðsíða 72
n Ellen Kristjánsdóttur tónlistar- konu er umhugað um umhverfi sitt. Það fá umhverfissóðar að reyna ef þeir sóða út þar sem hún er á ferð. Ellen veit nefnilega sem er að fólk á ekki að henda rusli á göturnar. Þegar hún sér fólk gera það tekur hún upp ruslið og skilar því til fólksins með beiðni um að það hendi ruslinu sínu í ruslaföt- ur en ekki á göturnar. „Það þarf að minna fólk á að margt lítið gerir eitt stórt,“ segir Ellen og hvet- ur fólk til að hugsa um hvað það geti gert til að vernda náttúruna og halda umhverfinu hreinu. Að auki hvetur hún fólk til að mæta á stórtónleika Bjarkar og Sigur Rósar í Laugardaln- um á laug- ardag þar sem áhersla verður lögð á umhverfis- vernd. Can‘t Walk Away! Fréttaskot 512 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar. „Þetta er ógurleg ósanngirni. Það er hreinlega verið að refsa manni fyrir að gera við þakið sitt á undan skuss- unum,“ segir Herbert Þ. Guðmunds- son tónlistarmaður. Hann var í gær dæmdur, ásamt konu sinni, Svölu Guðbjörgu Jóhannesdóttur, til að greiða húsfélaginu að Prestbakka 11 til 21 3,9 milljónir Í mars 1991 keyptu þau hjónin húseign að Prestbakka 15 en hún er hluti af raðhúsalengju. Í kaupsamn- ingi kom fram að nauðsynlegt væri að gera við þakið og luku þau viðgerðun- um þá um sumarið. Ekki fór fram við- gerð á öðrum hlutum raðhússins. Í apríl árið 2005 lýsti húsfélag- ið yfir nauðsyn þess að gera við þök hinna eignanna. Forsvarsmenn hús- félagsins lögðu þar fram lagagreinar um fjöleignahús en samkvæmt þeim fellur kostnaður á viðgerðum raðhúsa sem þessara á alla lóðareigendur. Herbert og Svala neituðu að greiða og þegar greiðslur bárust ekki til hús- félagsins var þeim stefnt. Í samtali við DV í maí sagði Her- bert: „Þetta er ofbeldi, fjárhagslegt of- beldi.“ Þegar DV náði tali af honum í gær átti hann eftir að ráðfæra sig við lög- mann sinn um hvort málinu yrði áfrýjað til Hæstaréttar og gat því ekki sagt til um hver niðurstaðan yrði í þeim málum. erla@dv.is n Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona, tók þátt í Stjörnugolfmóti Nova í vikunni. Íslenskir fjölmiðlar létu atburðinn ekki fram hjá sér fara og mættu allir sem einn. Eiður Smári naut óskiptr- ar athygli fjölmiðlamanna, sem kepptust við að ná viðtölum við kappann. Mörgum þótti nóg um, enda orsakaði ágangur íslenskra fjölmiðla miklar tafir á mótinu, þar sem Eiður Smári gaf sér góðan tíma á milli högga til að ræða við blaða- menn. n Svanhildur Hólm Valsdótt- ir, ritstjóri Íslands í dag, var einn þeirra fjölmiðlamanna sem fylgdust með Stjörnugolfmótinu. Í grennd við átjándu holu golfvallarins beið Svanhildur ásamt tökumanni sín- um, Einari Árnasyni, eftir því að Eiður Smári lyki leik. Í innáhöggi Eiðs Smára öskraði hann varnaðar- orðið „fore“ til þeirra Svanhildar og Einars, sem beygðu sig með virktum og gripu um höfuð sér. Þau sluppu við golfboltann, en framganga þeirra uppskar hins vegar mikil hlátrasköll hjá Eiði Smára og sjón- varps- mann- inum Sveppa. Eiður tafði mótið VErNDari umHVErfiSiNS forðaði Sér frá fljúgaNDi golfbolta Herbert Guðmundsson dæmdur til að greiða nágrönnunum 3,9 milljónir: rEfSað fyrir að gEra Við þakið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.