Tímarit Máls og menningar - 01.06.1972, Blaðsíða 149
ljósar ástæður, sameiginlegt mál og
menningarumhverfi ofl., en því fylgir alltaf
sú áhætta að hókmenntir og bókmennta-
rannsóknir hverrar þjóðar einangrist um of.
Bókin um Norðurlandabókmenntir ber þess
merki að bókmenntasöguritun í þessum
löndum hefur verið mjög þjóðemiskennd,
en vöntun á þverskurðarrannsóknum í leit
að dýpri straumum sem streyma þvert á
öll landamæri. Hefði meira verið til af slík-
um undirstöðurannsóknum - vissulega hef-
ur nokkuð verið gert - hefðu inngangs-
kaflarnir getað orðið samfelldari og jafn-
framt gcrt skýrari grein fyrir sambandinu
út á við. Bókmenntimar á Norðurlöndum
hafa ævinlega fylgzt að í mörgu og gagn-
kvæm áhrif verið mikil, einkanlega á þetta
við miðlöndin þrjú. Áhrifin hafa að mestu
verið einhliða til Islands, Færeyja og
Finnlands. Vafasamt virðist að þessi tengsl
fari vaxandi, flest bendir til að gagnkvæm
bókmenntaáhrif séu nú minni en var á
dögum Brandesar, Ibsens og Strindbergs,
en bein áltrif á hvert land að utan hins
vegar mun meiri. Ekki er ástæða til að
kvarta undan ytri áhrifum, en menningar-
tengsl þessara landa em samt sem áður
jafngildi stækkunar þess heimamarkaðs
sem framleiðendur bókmennta reisa vel-
gengni sína á, og það er vonandi að
Umsagnir um bœkur
Nordens litteratur styrki þetta andlega
markaðsbandalag.
Bókin er gefin út með styrk úr Nor-
ræna menningarsjóðnum. Ætla verður að
styrkveiting sjóðsins hafi ekki verði ein-
göngu við það miðuð að stuðla að því að
bók þessi yrði skrifuð og prentuð, heldur
einnig að gera hana að neyzluvöru handa
almenningi á Norðurlöndum, svo að kynn-
ingin sem stefnt er að verði meira en nafn-
ið tómt. En hér er annaðhvort að styrkur-
inn hefur verið of lítill eða einkafyrirtækin
sem að útgáfunni standa hafa brugðizt
hlutverki sínu Ekkert hefur verið gert til
að gera bókina aðlaðandi fyrir almennan
lesanda. Hún er þung í vöfum og engar
myndskreytingar er þar að finna. Þá er
verðlagningin þannig að ólíklegt er að
aðrir kaupi bókina en opinberar stofnanir
og einstaklingar sem eru annaðhvort vel
efnaðir eða geta haft gagn af ritinu í
sambandi við atvinnu sína Eigi verkið
það fyrir höndum að koma í annarri útgáfu
er vonandi að úr þessu verði bætt.
Þrátt fyrir alla annmarka cr Nordens
litteratur mikil fróðleiksnáma og þar
eru margir ljómandi skemmtilegir kaflar.
Bókin getur orðið gott hjálpargagn fyrir
kennara og þá sem sjálfir leiða sjálfa sig.
Vésteinn Ólason.
139