Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Qupperneq 73

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Qupperneq 73
Hnattferð með Helga worth og Keats vegna hins klassíska yfirbragðs, fágunar og ögunar, sem prýða þá umfram aðra, og það er einmitt í viðureign við slík skáld sem þýðingarlist Helga nýtur sín bezt. I þeim kafla bókarinnar sem merktur er „Frá Englandi“ — en sú merking er alls ekki sanngjörn né viðurkvæmileg gagnvart Skotunum Robert Burns og Walter Scott hvað þá Iranum W. B. Yeats sem undir henni verða að dúsa, og hefði auðvitað verið nær að skrifa þar „Frá Bretlandseyjum" — þar rekur lestina T. S. nokkur Eliot, sem sker sig talsvert úr og raunar í bókinni allri, þar eð kvæði hans eru þau einu þar sem vart verður við anda módernisma að einhverju marki. Raunar hefði verið æskilegra að halda tímaröðinni á kvæðum Eliots, svo lesendur mættu marka þar ákveðna þróun, og hafa a. m. k. Orninn svífur síðast þar sem þar hafa orðið nokkur sinnaskipti og tónskipti hjá skáldinu: Hringrás himintunglanna um tuttugu aldir Ber oss fjær Guði og nær duftinu. Ut af fyrir sig er einnig vafamál hvort Eliot eigi heima undir fyrir- sögninni „Frá Englandi", þar sem hann er Bandaríkjamaður að fæðingu og það þótt hann sjálfur hafi kannski gert sér far um að verða brezkari en allt brezkt. Hann hefði því vísast átt betur heima undir yfirskriftinni Norður-Ameríka eða „Norður-Amiríka" eins og Helgi vill stafsetja það (eftir hvers framburði veit ég ekki), því sá ferski kraftur sem Eliot kemur í skáldskapnum er ugglaust meira ættaður frá víðáttum Vesturheims en frá hinu gamalgróna Albíon og Eliot myndar raunar ásamt þeim Walt Whitman og Ezra Loomis Pound einskonar skáldaþrístirni þeirrar álfu, en sá síðastnefndi, Pound (sem hafnaði bandarísku þjóðerni ekki síður en Eliot en viðurkennir þó skyldleika sinn við Whitman) má raunar teljast lærifaðir Eliots í listinni, il miglior fabbro eins og lærisveinninn nefndi hann réttilega, og vann það meðal annars sér til ágætis og okkur til gagns að stytta „The Waste Land“ um helming. Þessir þrír grallarar eru allir vel kynntir í bók Helga, og fer Helgi auðvitað létt með það að íslenzka hin galopnu ljóð Whitmans, og eins kemur mætavel yfir sið- menningarþreyttur fýlutónn Eliots og ekki síður hið hárbeitta háð Pounds í skopljóðum hans, sem að vísu eru ekki nema ein hliðin á skáldskap þessa marghamasta og frjóasta ljóðskálds þessarar aldar. En rúsínan í pylsuendanum í „Amiríku“-þætti Helga eru þó vísur sem bera yfirskriftina Ljób handa betrafólki og eru sagðar eftir „ókunna höf- unda“ en þýðandinn hlýtur að eiga bróðurpartinn í. 423
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.