Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 104

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1983, Page 104
Tímarit Máls og menningar námsár. Bráðabirgðaútgáfa. [Nem- endahefti, Verkefni og Kennsluleið- beiningar.] Rv., Námsgagnastofnun, 1981. Landnám Islands. Samfélagsfræði 4. námsár, 3. eining. [Nemendabók: Landnám Islands. Ytarefni: Land- námsþættir. Landnámsleikur. Kennsluleiðbeiningar.] Rv., Náms- gagnastofnun, 1982 — 83. (Að Land- námsþáttum og Kennsluleiðbeining- um eru Ingvar Sigurgeirsson, Ragnar Gíslason og Sigþór Magnússon skráðir höfundar, að nem- endabókinni þeir sömu ásamt Olafi H. Jóhannssyni og Guðmundi Inga Leifssyni.) Það hefur farið næsta hljótt í umræðum um sagnfræði að nú er verið að vinna að því að endurnýja námsefni í sögu handa barnaskólum landsins. Furðu hljótt má segja, því að þetta er líklega róttækasta endurnýjun námsefnis í þjóðafsögu okk- ar síðan á fyrsta áratug aldarinnar. Og væntanlega eru barnaskólabækurnar víðlesnustu sagnfræðirit, ' okkar (þótt sumum börnum kunni 'að takast að láta þær fara framhjá sér) og þau sem mest áhrif hafa á sögulega sjálfsmynd þjóðar- innar. Mér finnst því kominn tími til að sagnfræðingur láti til sín heyra um það grunnskólaefni sem skólarannsókna- deild Menntamálaráðuneytisins hefur látið semja í samfélagsfræði og einkum fjallar um Islandssögu. Auk þeirra bóka sem eru skráðar hér að framan er tals- verð íslandssaga í námseiningunni Nátt- úrubamfarir og landmótun sem er ætluð 7. námsári. Þar er meðal annars vænt hefti sem heitir Jón Steingrímsson og móðuharðindin, og er þar gerð athyglis- verð tilraun til að flétta saman persónu- sögu, þjóðarsögu og náttúrufræði. Svo- lítið mun líka vera komið inn á útlenda sögu á stöku stað í samfélagsfræðiefn- inu. En ég ætla að láta mér nægja að skoða þær þrjár námseiningar sem kalla má að yfirgnæfandi hluta sögu, ef við kjósum að draga samfélagsfræðiefnið í dilka háskólagreina. Efni I Kjörum fólks á fyrri öldum kýs Haukur Sigurðsson að taka sér stöðu upp úr aldamótunum 1700 til þess að hafa stuðning af Jarðabók Árna Magnús- sonar og Páls Vídalín, einnig af Manntal- inu 1703. Þaðan skyggnist hann um eftir samskiptum landeigenda og leiguliða, húsbænda og hjúa. Þá sýnir hann dæmi um viðskipti almúgamanns við yfirvöld og notar þar mann sem hefur orðið kunnur af annarri bók, Jón Hreggviðs- son á Rein. Nokkuð er sagt frá verkum fólks til lands og sjávar í gamla sveita- samfélaginu. I síðari hluta bókarinnar er fjallað um húsakynni og samgöngur, og eru þá raktir þræðir til steinsteypuhúsa 20. aldar og stofnunar Eimskipafélags Islands. Lýður Björnsson fer stuttlega yfir uppruna frjálshyggju og þjóðernisstefnu í Evrópu í upphafi nemendaheftisins um Jón Sigurðsson og sjálfstæðisbaráttuna og rekur áhrif þróunarinnar á Danaveldi. Síðan kynnir hann Jón Sig- urðsson til sögu og rekur svo stjórn- málalíf Islendinga með hann í miðdepli allt til stjórnarskrár og þjóðhátíðar 1874. Þá er klykkt út með lýsingu á heimilis- haldi þeirra hjóna Jóns og Ingibjargar, andláti og jarðarför. I verkefnaheftinu er dálítið af hagtölum og öðru efni sem gefur tilefni til að koma inn á atvinnu- sögu tímabilsins. Landnám Islands byrjar á umræðu um heimildir. Þá er sviðið sett í Noregi á 454
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.