Fréttablaðið - 27.06.2015, Page 82

Fréttablaðið - 27.06.2015, Page 82
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 38TÍMAMÓT MERKISATBURÐIR 1835 Vísur Íslendinga („Hvað er svo glatt sem góðra vina fund- ur“) eftir Jónas Hallgrímsson fyrst sungnar opinberlega. Söngur- inn fer fram í Hjartakershúsum í Danmörku. 1855 Danska gufuskipið Thor kemur til Reykjavíkur og er það fyrsta gufuskip sem kom til Íslands. 1857 Fyrsta gufuskipið kemur til Akureyrar og er það enska eftir litsskipið HMS Snake. 1903 Fyrsta kvikmyndasýningin á Íslandi fer fram í Góðtempl- arahúsinu á Akureyri. 1920 Fyrsta slys af völdum flugvélar á Íslandi verður er barn varð fyrir flugvél í Vatnsmýrinni í Reykjavík og beið bana. 1921 Rafstöðin við Elliðaár er vígð. 1925 Lög um mannanöfn ganga í gildi á Íslandi og eftir það er bannað að taka sér ættarnafn. 1930 Skógræktarfélag Íslands er stofnað á Þingvöllum. Í marsmánuði árið 2006 var ákveðið að verja 1,5 milljónum til að fjármagna breytingar á grunnforritum Hagstofunnar svo að hægt væri að skrá samkynhneigða í sambúð í þjóðskránni. Tillaga þess efnis var fyrst lögð fram árið 2004 og það tók því langan tíma til þess að fá hana sam- þykkta. Þegar tillagan var lögð fram þá var kirkjan einnig hvött til þess að leyfa samkynhneigðum að giftast í kirkjum landsins sem hún leyfði ekki á þeim tíma. Það tók mun lengri tíma að fá giftingu samkynhneigðra í leyfða, en það var ekki samþykkt fyrr en árið 2010. Fyrir árið 2006 höfðu samkynhneigðir, þannig séð, geta skráð sig í sambúð frá árinu 1996 að einhverju leyti en þó með undantekningum. Til dæmis var það ekki skráð hjá Hagstofu Íslands. Það var einnig lagt til að samkyn- hneigðir mættu ættleiða börn, en fram að þeim tíma höfðu þeir aðeins mátt ættleiða stjúpbörn sín. Stærsta hindr- unin í vegi fyrir samþykkt á breytingu ættleiðingarreglnanna var samskipti við lönd ytra þar sem yfirvöld vildu ekki að samkynhneigð pör ættleiddu börn þaðan. ÞETTA GERÐIST: 27. JÚNÍ 2006 Samkynhneigðir fá að staðfesta samvist sína Á sunnudaginn verður haldið upp á að 35 ár eru liðin frá því að Vigdís Finn- bogadóttir var kosin forseti Íslands. Haldin verður stór hátíð á Arnar- hóli sem hefst klukkan 19.30 og mun standa til klukkan 21.00. Stofnun Vig- dísar Finnbogadóttur annast skipulag hátíðarinnar í samstarfi við Alþingi, Háskóla Íslands, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga, Sam- tök atvinnulífsins, framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna, skógræktar- og landgræðslu- félög ásamt fjölda annarra stofnana og félagasamtaka. Dagskráin verður fjölbreytt og inni- heldur blöndu af tónlist og töluðu máli. Kolbrún Halldórsdóttir er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. „Fyrir þessi merkilegu tímamót langaði okkur að horfa á líf og störf Vigdísar með augum þeirra sem ekki voru vaxnir úr grasi á árunum 1980-1996. Svo við leit- uðum til sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands og Stúdentaleikhússins og fengum til liðs við okkur unga sviðs- höfunda og leikara til þess að kynna sér aðdraganda þess að Vigdís gaf kost á sér í embætti forseta Íslands og árin hennar á forsetastóli,“ segir Kolbrún. Efnið sem þessir ungu listamenn settu saman verður svo eins konar lím í dagskránni, rammi sem teng- ir saman fjölbreytt tónlistaratriði og ávörp. Kolbrún segir unga listafólkið hafa lesið sér vel til um málefni Vigdísar. „Eftir að hafa kafað ofan í efnið og skrifað hugleiðingar sínar, var orðið til tæplega 30 bls. handrit með fjöldanum öllum af skemmtilegum hugmyndum. En þar sem tíminn er afar takmark- aður þarf formið að vera knappt, svo þau sigtuðu sig í gegnum textann með fínlegasta sigtinu í skúffunni og eftir sitja nokkur gullkorn sem þau munu flytja hátíðargestum á sunnudag.“ Alls komu átta sviðshöfundar og leikarar að þessari sköpun og sex þeirra munu standa á sviðinu og flytja afrakstur- inn. „Þetta er búið að vera virkilega gef- andi verkefni, sérstaklega að fá tæki- færi til að skoða þessi merku tímamót í sögu okkar Íslendinga með augum þeirra sem muna Vigdísi ekki sem forseta en finnst hún samt hafa verið nálæg sem leiðtogi og fyrirmynd alla tíð.“ Þau sem koma að verkefninu eru Andrea Elín Vilhjálmsdóttir, Domin- ique Gyða Sigrúnardóttir, Birnir Jón Sigurðsson, Daníel Takefusa Þórisson, Júlíana Kristín Liborius Jónsdóttir og Kristín Ólafsdóttir. Auk þeirra lögðu Guðmundur Felixson og Þorvaldur S. Helgason hönd á plóg við handritsgerð og Andri Snær Magnason var þeim til halds og trausts. -gj Forsetatíð Vigdísar með augum unga fólksins Haldið verður upp á 35 ára kosningaafmæli Vigdísar Finnbogadóttur á sunnudagskvöldið á Arnarhól. Kolbrún Halldórsdóttir er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. ALLT AÐ VERÐA KLÁRT Andrea Elín Vilhjálmsdóttir, nemi á sviðshöfundabraut LHÍ, og Kolbrún Halldórsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR Haldið verður upp á kosninga- afmæli Vigdísar á Arnarhóli á sunnu daginn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÁSGEIRSDÓTTIR áður til heimilis að Garðavegi 9, Hafnarfirði, lést á sjúkrahúsinu á Ísafirði 17. júní. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn 3. júlí kl. 13.00. Lilja Sölvadóttir Ásgeir Sölvason Þórdís Sölvadóttir Erla Sölvadóttir Kristín Sölvadóttir Benedikt Kröyer Steinunn Sölvadóttir Stefán Símonarson barnabörn og barnabarnabörn. 551 3485 • udo.is Davíð útfararstjóri Óli Pétur útfararstjóri Útfararþjónusta síðan 1996 Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför systur okkar og mágkonu, KATRÍNAR SIGRÚNAR GUÐJÓNSDÓTTUR frá Hemru í Skaftártungu, síðast til heimilis í Langagerði 122 í Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólksins þar fyrir nærgætni og frábæra umönnun. Brynrún Bára Guðjónsdóttir Kristín Guðjónsdóttir Rúnar Viktorsson Þórir Páll Guðjónsson Helga Karlsdóttir Hjartans þakkir fyrir sýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, PETRU ÓSKAR GÍSLADÓTTUR áður Hólavegi 26, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 2, Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks, fyrir góða umönnun og kærleika í garð móður okkar. Einnig færum við Flugumýrarsystkinum og mökum ástarþakkir fyrir ómetanlega hjálpsemi og umhyggju. Guð blessi ykkur, Gísli Hafsteinn Einarsson Kolbrún Sigurðardóttir Guðlaug Ragna Jónsdóttir Einar Stefánsson Ingimar Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR Melabraut 9, Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þann 29. júní kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en bent er á Barnaspítalasjóð Hringsins. Guðmundur Jóhannesson Bergljót Helga Jósepsdóttir Alexander Jóhannesson Helga Hafsteinsdóttir Anna Birna Jóhannesdóttir Steingrímur Ellingsen Guðlaug Ingibjörg Hecher Gary Hecker barnabörn og barnabarnabörn. 70 ára afmæli Kristjón Sigurðsson Kæru ættingjar, vinir og félagar. Í tilefni sjötugsafmælis Kristjóns verður opið hús hjá Rafal að Hringhellu 9, Hafnarfirði, þann 4. júlí nk. Stuðið hefst kl. 19.30 og verður fram á nótt. Veislustjóri verður hinn landsþekkti Jóhannes Kristjánsson. Það væri okkur mikill heiður ef þið, ásamt mökum, sjáið ykkur fært að mæta. Í boði eru léttar veitingar og fjölbreytt k Þetta er búið að vera virkilega gefandi verkefni, sérstaklega að fá tækifæri til að skoða þessi merku tímamót í sögu okkar Íslendinga með augum þeirra sem muna Vigdísi ekki sem forseta en finnst hún samt hafa verið nálæg sem leiðtogi og fyrirmynd alla tíð. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 2 B -7 2 E C 1 6 2 B -7 1 B 0 1 6 2 B -7 0 7 4 1 6 2 B -6 F 3 8 2 8 0 X 4 0 0 8 A F B 1 0 4 s _ 2 6 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.