Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.06.2015, Qupperneq 88

Fréttablaðið - 27.06.2015, Qupperneq 88
27. júní 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 44 LAUGARDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 27. JÚNÍ 2015 Tónleikar 12.00 James D. Hicks frumflytur nýtt orgelverk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur í Hallgrímskirkju. Á tónleikunum nýtur hann liðsinnis dóttur sinnar, Virginiu Hicks sópransöngkonu. Miðaverð er 2.000 krónur. 14.00 Arctic Swing Trio leikur swing eins og það gerist best í Menningar- húsinu Hofi í kvöld. Miðaverð er 2.900 krónur. 15.00 Tríóið Fley leikur í summardjass tónleikaröð á Jómfrúnni. Píanóleikarinn Egill B. Hreinsson, kontrabassaleikarinn Gunnar Hrafnsson og trommuleikarinn Kjartan Guðnason auk þess sem Högni Egilsson er sérstakur gestur. Frítt inn. 17.00 Perlur íslenskra sönglaga í Kaldalóni í Hörpu. Listrænn stjórnandi tónleikanna er óperusöngvarinn Bjarni Thor Kristinsson og hafa tónleikarnir verið fastur liður í sumardagskrá Hörpu frá opnun. Miðaverð frá 4.200 krónur. 21.00 Hljómsveitin Oyama spilar á Loft Hosteli í kvöld. 22.00 Hljómsveitin Hundur í óskilum spilar á Café Rosenberg í kvöld. 22.00 Þeir Heiðar Örn Kristjánsson, Baldur Ragnarsson, Jakob Smári Magnússon og Jón Geir Jóhannsson ætla að heiðra hljómsveitina The Clash á Græna hattinum í kvöld. Öll þekktustu lög The Clash leikin ásamt úrvali sem spannar allan ferilinn. Miðaverð er 3.000 krónur. 22.00 Hljómsveitin Melrakkar leikur Metallica-lög og hljómsveitin Bootleg spilar frumsamið efni á Gauknum í kvöld. Miðaverð er 3.000 krónur. 22.30 Bar 11 fagnar tólf ára afmæli um helgina. Í kvöld leika Alchemia og Ottoman. Frítt inn. Opnanir 10.00 Sýningin Að lesa blóm á þessum undarlega sal verður opnuð á Torgi Þjóðminjasafnsins. Sýningin fjallar um brottflutta Íslendinga sem börðust með Kanadaher í fyrri heimsstyrjöldinni en sýningin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Þjóðminjasafnsins. 14.00 Sýningin Beneluz Werkstatte með verkum eftir Helga Þórsson verður opnuð í Kling & Bang í kvöld. Sýningar 20.00 Gamansýningin Let’s talk Artic verður sýnd í Menningarhúsinu Hofi í kvöld. Sýningin fer fram á ensku er bæði hugsuð til fræðslu og skemmt- unnar og er með sögulegu ívafi. Fjöldi sýninga fer fram í sumar. Miðaverð er 2.900 krónur. Hátíðir 21.00 Tónlistarhátíðin Drangey Music Festival – Þar sem vegurinn endar fer fram í kvöld á Reykjum á Reykjaströnd í Skagafirði. Emiliana Torrini, Jónas Sigurðs- son, Contalgen Funeral og Magni koma fram og veitingasala verður á svæðinu. Miðaverð er 6.900 krónur. Söfn 14.00 Kínasafn Unnar, Njálsgötu 33a, verður opið til klukkan 16.00. Boðið upp á te og piparkökur, eftir sýningu kínversku munanna. Uppákomur 13.00 Plöntumarkaður á Bernhöfts Basar á Bernhöftstorfunni. Áhugafólk og fyrirtæki um garðyrkju kemur saman, selur ýmislegt sem tengist plöntum og skiptibasar verður á svæð- inu, blómafóstra veitir ráðgjöf og dj Doodlepops heldur uppi stemningunni. Tónlist 21.00 Deffice Fusion jazz og dj Styrmir á Boston í kvöld. 21.00 Dj Pabbi þeytir skífum á Bar- Ananas í kvöld. 21.00 Dj Dagbjört þeytir skífum á Frederiksen Ale House í kvöld. 21.00 Dj Óli Dóri þeytir skífum á Húrra í kvöld. 22.00 Dj Elvar þeytir skífum á Bravó í kvöld. 22.00 Dj Big Kahuna, Suspect og Ewok á Prikinu í kvöld. 22.00 Dj Ómar Borg þeytir skífum á Dolly í kvöld. 22.00 Trúbadorarnir Alexander og Guð- mann, Eiki og Steini verða á English Pub í kvöld. Jazzhátíð 17.00 Jazzhátíðin JEA fer fram í kvöld í Valaskjálf á Egilstöðum. Meðal þeirra sem koma fram eru Beebee and the Bluebirds, Garðar Eðvalds ásamt stór- sveit, Björn Thoroddsen og Jack Magnet Quintet. Miðaverð er 4.900 krónur. SUNNUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 28. JÚNÍ 2015 Tónleikar 14.00 Arctic Swing Trio leikur á tvennum tónleikum í Menningarhúsinu Hofi í dag. Djasstónlistarmennirnir leika görótt millistríðsára-swing. Seinni tónleikarnir hefjast klukkan 20.00 og er miðaverð 2.900 krónur. 15.00 Tónlistarkonan Mr. Silla kemur fram í gróðurhúsi Norræna hússins og spilar eigin lög í bland við uppháhalds- lög eftir aðra flytjendur. Tónleikarnir eru hluti af Pikknikk tónleikaröðinni. Frítt inn. 17.00 James D. Hicks flytur nýtt orgelverk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur í Hallgrímskirkju. Miðaverð er 2.500 krónur. 17.00 New England Conservatory Youth Philharmonic Orchestra spilar á ókeypis tónleikum í Eldborgarsal Hörpu. Í sveitinni eru níutíu ungmenni á aldrinum 13 til 18 ára. 21.00 Dúettinn Atómbræður heldur tónleika á Ob-La- Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangur er ókeypis. Hátíðir 19.40 Hátíðardagskrá á Arnarhóli vegna þess að 35 ár eru liðin frá forseta- kjöri Vigdísar Finn- bogadóttur. Meðal þeirra sem koma fram eru Baggalútur, Eivør Pálsdóttir, Felix Bergsson og Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, setur hátíðina. Söfn 14.00 Kínasafn Unnar, Njálsgötu 33a, er opið í dag. Uppákomur 13.00 Dúóið Mömmustrákar kemur fram á Heimilislegum sunnudögum á Kexi Hosteli. Lög sem allir, sem eru eða hafa verið í leikskóla, þekkja, allir velkomnir og engin aðgangseyrir. 20.00 Meðgönguljóð bjóða ungum skáldum að koma og skrifa í þögn í klukkustund á Loft Hosteli. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Tónlist 21.00 Dj Creature of the Night þeytir skífum á Kaffibarnum. 21.00 Trúbadorarnir Arnar og Ingunn verða á English Pub. 21.00 Dj Ómar Borg þeytir skífum á Bravó. 21.00 Lo-fi hip hop á Prikinu. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is SIGURLAUG GÍSLADÓTTIR, MR. SILLA, MENGI „Við bræðurnir þurfum að skiptast á græjum, það er skemmtilegt að það skuli gerast á sama kvöldinu,“ segir Snæbjörn Ragnarsson, betur þekktur sem Bibbi í Skálmöld. Hann og bróðir hans, Baldur Ragnars- son, einnig úr Skálmöld, bregða út af vananum þegar þeir koma fram hvor á sínum heiðurstónleikunum til að leika „cover-lög“. Bibbi ætlar að taka af sér bassann sem hann plokkar í Skálmöld og setja upp Gib- son Explorer-gítar í eigu bróður síns og leika Metallica-lög. Á meðan fær Baldur lánaðan Gibson Les Paul frá bróður sínum til að leika Clash-lög. Bibbi kemur fram með Metall- ica-heiðurssveitinni Melrökkum, sem skipuð er miklum kanónum úr tónlistarheiminum, í kvöld á Gauknum þar sem Metallica plat- an Kill ‘Em All verður leikin. Bald- ur kemur fram með hljómsveit, sem einnig er skipuð kanónum úr tónlistar heiminum, sem ætla að leika þekktustu lög The Clash á Græna hattinum í kvöld. Bræðurnir eru lítt þekktir fyrir það að leika svokölluð „cover-lög“ heldur fyrir að vera saman í Skálm- öld og Ljótu hálfvitunum. „Við höfum hvorugur komið nálægt því að spila cover-lög í ansi mörg ár,“ segir Baldur og bætir við að þegar boð um að spila í tökulagasveit sem leikur lög eftir lætishljómsveita sé lítið annað í boði en að stökkva á vagninn. „Við erum búnir að æfa meira en Skálmöld hefur gert síðustu tvö árin. Við erum gríðarlegir félagar, bandið brjálæðislega gott þannig að þetta er hrikalega skemmtilegt,“ segir Bibbi og bætir Baldur við; „Við höfum alveg rosalega gaman af að spila þessa Clash tónlist og hún steinligg- ur alveg.“ Hvorir tveggja tónleikarnir hefj- ast klukkan 22.00. - glp Skálmaldarbræður býtta á græjum Baldur og Snæbjörn Ragnarssynir hafa ekki spilað „cover-lög“ í fj ölmörg ár en ætla gera það í kvöld. BRÆÐUR BÝTTA Bræðurnir Snæ- björn og Baldur Ragnarssynir skiptast á hljóðfærum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ný námslína í samstarfi við César Ritz Colleges í Sviss, sem er einn af virtustu skólum heims á sviði hótel- og veitingahúsarekstrar. Um er að ræða tveggja anna hagnýtt og faglegt nám sem veitir góðan undirbúning fyrir alþjóðlegar stjórnunarstöður innan hótel- og veitingahúsageirans. HÓTELSTJÓRNUN OG VEITINGAHÚSAREKSTUR Á vefnum opnihaskolinn.is eru upplýsingar um öll námskeið, leiðbeinendur, verð og skráningu. klippið Sendu okkur 5 toppa af Merrild umbúðum og þú gætir unnið hina sígildu kaffikönnu frá Stelton. 10 heppnir vinningshafar verða dregnir út í hverri viku frá 30. júní til 1. september 2015, alls 100 talsins. Þátttökuumslög í öllum verslunum. Á Facebook-síðu okkar, Facebook/Merrild á Íslandi, verða birt úrslit auk frekari upplýsinga um leikinn. 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 2 B -3 2 B C 1 6 2 B -3 1 8 0 1 6 2 B -3 0 4 4 1 6 2 B -2 F 0 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 1 0 4 s _ 2 6 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.