Fréttablaðið - 19.06.2015, Blaðsíða 62
19. júní 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
FÖSTUDAGSLAGIÐ
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Þú getur komist
að því með fríu
verðmati.
Framúrskarandi
þjónusta í þína
þágu
510 7900
Þórunn Gísladóttir
Löggiltur fasteignasali.
Kristján Þ. Hauksson
Sölufulltrúi.
696 1122
kristjan@fastlind.is www.fastlind.is
Hlíðasmára 6 201 Kópavogur www.FASTLIND.is/ /
Hversu mikið
hefur eignin
þín hækkað
í verði?
„Ég er mikið að hlusta á Prins Póló,
það er allt svona ekta föstudags, rosa
gott að keyra um og hlusta, þetta er
eitthvað svo gæjalegt.“
Lóa Hjálmtýsdóttir,
söngkona Fm Belfast
Í dag kemur út litabókin Leynigarð-
ur sem ætluð er fullorðnum.
Myndskreytingarnar eru af
trjám, blómum, skordýrum og fisk-
um svo fátt eitt sé nefnt og eru tals-
vert fíngerðar og því þýðir lítið
annað en að vanda til verka þegar
litað er.
„Maður þarf að vanda sig mjög
mikið og nota fíngerða blýanta eða
tússpenna. Myndirnar eru þannig
að þú getur líka ákveðið að lita mjög
lítið og það getur verið mjög fallegt.
Það er ekkert sjálfgefið að þú þurf-
ir að lita alla myndina,“ segir Halla
Helgadóttir, framkvæmdastjóri
Hönnunarmiðstöðvar, en hún er ein
af þeim sem eiga bókina.
Leynigarður var upphaflega gefin
út í Bretlandi og heitir á ensku Sec-
ret Gard en og er höfundur hennar
Johanna Basford. Íslenska útgáf-
an er þýdd af ljóðskáldinu Ing-
unni Snædal og er bókin gefin út af
Bjarti.
1.500.000 eintök hafa verið seld
af bókinni á heimsvísu og hún þýdd
á 14 mismunandi tungumál og tals-
vert verið fjallað um hana í erlend-
um miðlum þar sem hún er sögð
prýðisgóð til þess að slaka á og er
Halla á sama máli.
Sökum anna hefur hún þó ekki
haft mikinn tíma til þess að lita í
bókina en sér fyrir sér í hillingum
tíma þegar minna er að gera.
„Ég á hús uppi í sveit og ég sé mig
fyrir mér sitja á sólríku sumarsíð-
degi með bókina þegar ég hef ekk-
ert annað að gera,“ segir hún hlæj-
andi að lokum.
- gló
Litabók sem ætluð er fyrir fullorðna
Leynigarður er litabók fyrir fullorðna, hana prýða fallegar myndir af trjágróðri, blómum og skordýrum.
LEYNIGARÐUR Litabókin er mynd-
skreytt með fíngerðum teikningum og
því þarf að vanda sig talsvert þegar litað
er í bókina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Shaman Durek, andlegur leiðbein-
andi frá Bandaríkjunum, mun
veita tónlistarhátíðinni Secret
Solstice shamaníska blessun í
dag, skömmu eftir að hún hefst.
„Ég mun tengja tónleikagesti við
rætur sínar,“ segir hann í samtali
við blaðamann. Samkvæmt sham-
anisma er orðið shaman notað um
þá sem eru eins konar miðlar-
ar eða „brú“ á milli hins andlega
sviðs og þess líkamlega.
„Þetta er auðvitað nýjung á
Íslandi; að fá mann eins og Sham-
an Durek til þess að veita hátíðinni
blessun sína,“ útskýrir Ósk Gunn-
arsdóttir, kynningarfulltrúi Secret
Solstice, og bætir við: „Þeir sem
fóru á hátíðina í fyrra fundu auð -
vitað friðinn og róna sem einkenndi
hana. Því er þetta sem Shaman
Durek gerir nákvæmlega það sem
Secret Solstice gengur út á.“
Nýtur Íslands
Shaman Durek kom hingað til
lands fyrr í mánuðinum og dvel-
ur hér á landi næsta mánuðinn
þar sem hann miðlar af reynslu
sinni. Þetta verður ekki fyrsta
tónlistarhátíðin sem hann kemur
fram á, hann hefur ferðast víða
og iðkað shamanisma uppi á sviði.
„Ég hef komið fram á hátíðum í
London, Los Angeles, Kaliforníu,
New York, Miami, Tyrklandi, Ísra-
el og er svo á leið til Ibiza innan
skamms,“ útskýrir hann. Shaman-
ismi er iðkaður víða um heim.
Shaman Durek hefur vitað það frá
unga aldri að þetta yrði hans hlut-
verk í lífinu. „Amma mín var frá
Afríku og gegndi þessu hlutverki.
Hún valdi mig sem eftirmann
sinn þegar ég var fimm ára, þann-
ig að ég hef undirbúið mig fyrir
þetta alla mína ævi. Ég hef hlot-
ið þjálfun víða um heiminn. Ferð-
aðist meðal annars til frumskóga
Amason og hef einnig lært inn á
öll helstu trúarbrögð heimsins.
Í shamanisma trúum við því að
ástin sé hin sanna leit hverrar
manneskju,“ útskýrir hann fyrir
blaðamanni.
Sameinast í eins konar
hugleiðslu
Hin shamaníska bless-
un fer þannig fram að
Shaman Durek talar
við tónleikagesti
og fer svo með
þeim í gegnum
ýmsar æfingar,
sem hann segir til þess fallnar að
komast betur í tengsl við sjálfa sig.
Hann segir Ísland vera mjög sér-
stakt land og finnst shamanism-
inn vel til þess fallinn að útskýra
hegðun Íslendinga. „Hér eruð þið
með tvær sterkar andstæður í hinu
mikla myrkri yfir vetrartímann og
birtunni á sumrin. Á vet-
urna getur maður því
lært hluti innan frá og
á sumrin, þegar birtir
til, getur maður fært
það sem maður lærir
út í ljósið. Ég mun
meðal annars ræða
um þetta í dag,“
segir hann.
Shaman Durek
mun einnig fá
gestina til þess
að íhuga af
hverju þeir
eru staddir
á tónleikahá-
tíð og hversu
mikill samein-
ingarkraftur
getur myndast
á svona hátíð.
„Tónlistin sam-
einar fólk. Hún
getur hjálpað
fólki að komast
í tengsl við arf-
leifð sína, við
forfeður sína. Þetta munum við
allt fjalla um í dag.“
Undirbúningur gengur vel
Ósk Gunnarsdóttir segir að allur
undirbúningur fyrir hátíðina
gangi eins og í sögu. „Miðasalan
hefur líka gengið ótrúlega vel.
Ég veit að það eru enn til bara ör-
fáir miðar, þannig að það fer hver
að verða síðastur að tryggja sér
miða á hátíðina. Veðurspáin lofar
líka góðu, þannig að við erum bara
ótrúlega spennt að bjóða alla gesti
okkar velkomna.“
Undanfarna daga hefur verið
umræða um að einhver þaul-
reyndur bandarískur rappari sé
á leið til landsins og verði leyni-
gestur á hátíðinni. Ósk segir ekki
hægt að greina frá hver það sé að
svo stöddu. „En ég get lofað því að
fólk verður ekki fyrir vonbrigðum.
Þetta verður punkturinn yfir i-ið.“
kjartanatli@frettabladid.is
Veitir Secret Solstice
shamaníska blessun
Shaman Durek, andlegur leiðbeinandi frá Bandaríkjunum, ætlar að blessa
Secret Solstice-tónlistarhátíðina í dag. Hann ætlar að tengja tónleikagesti við
hjarta sitt, arfl eifð og forfeður með andlegri íhugun og þar til gerðum æfi ngum.
Tónlistin sameinar
fólk. Hún getur hjálpað
fólki að komast í tengsl
við arfleifð sína,
við forfeður sína.
Þetta munum við allt
fjalla um í dag.
HEFUR FARIÐ VÍÐA Shaman Durek hefur ferðast víða um heim og komið fram á
fjölmörgum tónlistarhátíðum.
SPENNT Ósk Gunnars-
dóttir er spennt fyrir
hátíðinni og er búist
við góðu veðri og fjölda
gesta.
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
3
1
-7
C
5
C
1
6
3
1
-7
B
2
0
1
6
3
1
-7
9
E
4
1
6
3
1
-7
8
A
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
6
4
s
_
1
8
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K