Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 73

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1988, Page 73
Aukin menningarbyrði hektara af frumskógi á mínútu, ásamt alls konar óskiljanlegum veðurfars- breytingum og vistfræðilegum vandamálum, sem enginn kann skil á. Hér er að sjálfsögðu átt við pólitík „gömlu flokkanna“ á þingi, en sem betur fer er andspyrna almennings að aukast og sífellt fleiri sem taka til máls um atvinnuleysi og mengun og láta sig varða um þessar hörmungar. I stuttu máli: burtséð frá atvinnuleysinu og menguninni er ástandið nokkurn veginn eins og á Islandi. Eg hef nú búið 6 og hálft ár á Islandi, og kemst aldrei hjá því að bera saman Danmörku og Island. Það eru kostir og gallar við bæði löndin, íbú- arnir hafa sínar dyggðir og sína lesti. Það væri illa gert að setja fram alnæf- ingu sem segði Danmörk er meira svona . . . og Island er meira hinsegin . . . andstætt Islendingum eru Danir . . . og svo framvegis, en maður kemst sem sagt ekki hjá samanburðinum, og munurinn er áberandi. Eitt það sem einkennir Islendinga er hvað þeir eru útkjálkalegir. Það þýðir að þið teljið ykkur ekki þurfa að fylgja straumum meginlandsins, og þið getið haldið áfram að skrifa bókmenntir með Islendingasögurnar sem fyrirmynd, og kennt bókmenntafræði út frá fílológíunni, en látið nýjar að- ferðir og nýjar stefnur næstum því afskiptalausar. Síðmódernisminn Umræðan um síðmódernismann er dæmi um bylgju sem hefur farið yfir Evrópu og Bandaríkin án þess að hafa hina minnstu þýðingu fyrir menn- inguna á Islandi. Umræðan um síðmódernisma snýst fyrst og fremst um, hvort síðmódernisminn sé yfirleitt til, og ef fyrirbærið sé til, hvort það sé þá gott eða vont. Rökin ganga út á að við séum á leiðinni inn í nýtt tímabil mannkynssögunnar, þar sem þróunin stjórnast ekki lengur af skynsemi en ný gildi taka við. Það er varla til sá maður sem telur sig vera síðmódernista, enda væri það þversögn, en það eru til heimspekingar sem telja að hinar víðtæku frásagnir eða stóru goðsagnir, séu fallnar úr gildi sem leiðarvísir mannkynsins. Þeir halda því fram að frásagnir eða goðsagnir í skáldskap jafnt sem vísindum, sem lúta að inntaki tilverunnar, séu ekki lengur trúverðugar og að vörur jafnt sem merking hrærist skipulagslaust í tómarúmi. Hinar víðtæku frá- sagnir geta verið allt frá trúnni á Guð, Sögunni, Skynseminni, Markaðnum, Sósíalismanum, og jafnvel Gagnrýninni. Og það eru til rithöfundar, sem skrifa út frá þessari tilfinningu, að við séum á leið inn í síðmódernískt þjóðfélag, án þess þó að þeir taki afstöðu með eða á móti. Margir halda því fram að allar hugmyndir um síðmódernisma séu tóm blekking, meðal annars með þeim rökum að það sé ekki hægt að gagnrýna skynsemina án þess að gera það út frá annarri og æðri skynsemi, og að það 463
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.