Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Side 21

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1989, Side 21
Adrepur með landafræði, sagnfræði og persónufróðleik að leiðarljósi; hverjum sé frjálst að hafa það gagn og gaman af þessum bókmenntum sem hann kýs. Og sé það hlutleysisbrot játum við það fúslega á okkur. Við sjáum hins vegar ekki betur en sú aðferð sem EMJ boðar þröngvi les- endum enn frekar en aðferð okkar til að lesa sögurnar í ákveðnu samhengi. Hann segir: Markmið fornsagnaútgáfu hlýtur að vera að menn noti hana ekki einungis til uppflettingar heldur líka til að lesa sögurnar í einhverju rökréttu samhengi, og er naumast hægt að finna skýrari leiðarvísi fyrir lesendur en einhverja slíka röðun (þ.e. landfræðilega röðun, innsk. okkar). (123-124) Sem betur fer nota fæstir lesendur fornrita þau fyrst og fremst til uppflettingar þó EMJ kunni að njóta þeirra einkum þannig, og enn síður á það við um lestr- arútgáfur á borð við útgáfu Sáh. Það er svo annað mál og þessari þrætubók óviðkomandi að það hefur lengi gætt íslendinga sögur sérstöku lífi að leik- sviðið er allt í kringum okkur og örnefnin lifa; lesendur geta sviðsett atburði á kortum eða „þar sem þeir gerðust" ef þeim býður svo við að horfa og síst vilj- um við kasta rýrð á þá iðju. Til glöggvunar á þeirri aðferð sem EMJ hugnast, og er sami háttur og beitt er í IF, getum við litið á eitt bindið í þeirri ritröð: í þriðja bindi bókaflokksins eru nokkrar sögur gefnar út undir heitinu Borgfirdinga sögur. Þessar sögur eru: Hænsna-Þóris saga, Gunnlaugs saga ormstungu, Bjarnar saga Hítdælakappa og Heiðarvíga saga. Að auki er svo einn þáttur prentaður með, Gísls þáttur Illuga- sonar. Hvað eiga þessar sögur sameiginlegt annað en það að gerast í Borgarfirði að einhverju leyti? Tvær þeirra má kalla skáldasögur (sbr. t.d. bók Bjarna Ein- arssonar um þann flokk sagna), þ.e. sögur Gunnlaugs og Bjarnar, og gerast að hluta til í útlöndum, Hænsna-Þóris saga fjallar um afmarkað deilumál í litlu héraði og þar er sjónarhornið þröngt, sjónarhorn Heiðarvíga sögu er víðara, at- burðir hennar verða í þremur héruðum, sagan hefst í Breiðafirði og sögusvið síðari hlutans er fremur Húnaþing en Borgarfjörður. Gísls þáttur Illugasonar gerist erlendis og hefur verið felldur inn í konungasögur og Jóns sögu helga. Það er því ekki megineinkenni þessara sagna að þær gerist í Borgarfirði enda þótt þeir Sigurður Nordal og Guðni Jónsson, útgefendur þessa bindis, rök- styðji val sagna og þátta meðal annars með þessum orðum: „Sögur þær, sem hér fara á eftir, hafa verið settar í sama bindi vegna þess, að þær eru allar að miklu leyti um atburði og menn úr sama héraði. Þeim hefur verið raðað bæði eftir sögustöðvum og tímatali." (v) En eins og þeir benda síðar á vantar þekkt- ustu söguna úr Borgarfirði í þetta bindi, þ.e. Egils sögu Skalla-Grímssonar. Og hvað með sögur sem gerast að nokkru leyti í Borgarfirði, t.d. Laxdæla sögu? Er ekki gagnlegt fyrir fróðleiksfúsa lesendur að hafa þær við hendina þegar þeir lesa „borgfirskar" sögur? 147
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.