Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Síða 20

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1990, Síða 20
alla. Skoða má atburðinn í porti Miðbæjar- skólans sem slíkan margfaldan punkt. í einni andrá tvinnast saman fjarlæg tímasvið sögunnar í vitund Önnu þannig að hún upp- lifir þau sem eina órjúfanlega heild. Sá skilningur á tímanum sem hér birtist er huglægur og byggir algerlega á þeim innri tíma sem tifar í huga aðalpersónunnar. Séð með augum Genettes þýddi það að í einum punkti frásagnarinnar er þjappað saman ólíkum tímasviðum sögunnar og þau öll látin gerast í einni andrá. Andstætt hlut- lægum, ytri tíma sem ræður gangi þjóð- félagsins umhverfis er stillt upp huglægum tíma sem Anna mælir með líf sitt. Þar felur augnablikið í sér allt sem gerst hefur og á eftir að gerast. Hvað er tíminn? Þessar vangaveltur um tímann og þýðingu hans fyrir skilning okkar á heiminum ættu að vera lesendum Gunnlaðar sögu vel kunnar. Líkt og í „Endurkomu“ stillir Svava upp andstæðu línulegs tíma og hringlaga en munurinn á þessum tveimur verkum er einkum sá að goðsöguleg vídd tímans er uppistöðuþáttur í Gunnlaðar sögu en fyrir- finnst ekki í „Endurkomu". Því er látið ósvarað í lok „Endurkomu“ hvort sá hug- lægi tími sem Anna upplifir sé einskonar önnur vídd eða ekki. Goðsögulegur tími er tími hinnar eilífu endurtekningar og á viss- an hátt má segja að huglægur tími Önnu sé af þeim toga en ýmislegt mælir þó gegn því. Áherslan á hið goðsögulega í Gunnlaðar sögu byggist einkum á því að þar er skapað forsögulegt samfélag sem byggir trúar- brögð sín og söguskilning á eilífri endur- tekningu. Samhliða þessu er um að ræða einstaklingsbundna upplifun persónanna á hringferlum tímans og sú reynsla kallast á við reynslu Önnu í „Endurkomu“. Reynsla Dísar og móðurinnar í Gunnlaðar sögu telst þá fyrst goðsöguleg þegar hún tengist hinu goðsögulega samfélagi en það gerir reynsla Önnu aldrei. Huglægi tíminn er fyrst og fremst huglægur af því að hann er bundinn við skynjun Önnu einnar. í þessu sambandi vaknar óhjákvæmilega sú spuming hvort það skipti máli að Anna er kona. Hvort sá tímaskilningur sem birtist í textanum mótast af kynferði hennar. I grein sem Dagný Kristjánsdóttir hefur skrifað um Gunnlaðar sögu (og tvær skáld- sögur aðrar, Móðir, kona, meyja og Hring- sól) veltir hún þessu fyrir sér og kemst að því að svo sé.4 Athuganir sínar byggir hún á ritgerð eftir Juliu Kristevu, „Tími kon- unnar“. En inntak hennar er í stuttu máli á þann veg að sjálfsvera konunnar leggi annan skilning í tímann en gert er í vest- rænum menningarheimi. Þessi skynjun er byggð á líffræðilegri hrynjandi konunnar og felur í sér nokkurs konar tímaleysi eða nærvem alls tíma í einu andartaki líkt og kemur fram í „Endurkomu". Telur Dagný að þessi kvennatími móti alla formgerð Gunnlaðar sögu því verkið byggi á hring- formum sem „opnast og lokast á sama tíma og byrja svo aftur á nýjum hring.“ (bls. 55) Án efa mætti segja það sama um „Endur- komu“. Reynsla Önnu í porti Miðbæjar- skólans er samkvæmt forsendum Kristevu kvenleg reynsla af tímanum sem henni hlotnast sökum kynferðis síns. Því má hins vegar ekki gleyma að meginandstæða tíma- hugtaka í textanum er andstæða huglægs tíma og hlutlægs en ekki kvenlegs og karl- legs, eins og hér hefur komið fram. Spum- ingin um kvenlegan tíma er athyglisverð og ögrandi en fellur utan umræðunnar um hlut- 18 TMM 1990:3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.