Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Page 27

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Page 27
föðurlaust og tilfinningasvelt í fósturfjölskyldu sinni. Þannig börn hittum við fyrir í Af manna völdum, í Þeli, í Hvatt að rúnum en þó fyrst og fremst í Hringsóli (1987). — Já, en það á sér enga skírskotun til minnar eigin bernsku, því að ég átti ljúf uppvaxtarár. Ég sá hins vegar hrjáð börn, norsk og síðar þýsk, sem komu hingað í stríðinu og mynd þeirra greyptist í huga minn. Þau voru í gjafaföt- um, allt of stórum, og litu satt að segja ekki vel út. Ég man að ég varð gripin ótta um að „týna“ mömmu og pabba. En Evrópa var ekki bara full af munaðarleysingjum eftir stríðið. Hér á íslandi hafði fólk orðið að láta börn frá sér sökum fátæktar og aðstöðuleysis, eins og faðir Boggu í Hringsóli. Ég þekkti konur mér eldri, sem var komið í fóstur og töldu aðskilnaðinn við móðurina hafa skipt sköpum í lífí sínu. Ég held hins vegar að hið tilfinninga- lega öryggi sem fólk telur sig hafa haft í kjarnafjölskyldunni geti verið blekking eða falskt öryggi. Allir verða fyrir einhverjum tilfinningalegum missi fyrr eða síðar og það skilur eftir misdjúp sár. Það er þó ekki missirinn sem ég vil skrifa um heldur saknaðartilfinningin, þráin eftir einhverju sem menn telja sig hafa misst. — í Hringsóli er móðurmissir sögumannsins og harmur hennar bæði raunverulegur og skiljanlegur. En það hve mótandi hann verður fyrir per- sónuleika og líf Boggu er þá önnur saga. Hún stjórnast þá af þessum söknuði eftir einhverju sem er horfið — en var kannski aldrei til? — Einmitt. Það verður ekki Paradísarmissir vegna þess að það er ekki staður eða áþreifanlegt fyrirbæri sem hverfur heldur er það innri missir sem málið snýst um. Okkur hættir til að leita hins fullkomna öryggis í samskipt- um við aðra. Við viljum helst styðja okkur tilfmningalega við aðra. Um leið gerum við kröfu til annars fólks sem það getur ef til vill ekki staðið undir... —... það getur aldrei staðið undir kröfunni, að minnsta kosti ekki í bókum þínum. — Þú segir það. Ég er hins vegar hrædd um að þetta sé ekki bara svona í bókunum mínum. Þó að fólk standi misvel undir sér eru jafnvel þeir sterk- ustu háðir öðru fólki. Og enginn getur gengið að tilfinningum annars manns vísum. öryggisleysi hvað það varðar er einfaldlega hlutskipti mannanna. Um hið nálæga og hið fjarlæga — Er það rétt hjá mér að bækur þínar verði æ fjarlægari og óhlutstæðari, Álfrún? í Þel fjallar þú til dæmis í sögu Einars um stúdentalíf á Spáni undir fasistastjórn Franco eða m.ö.o. ákveðið, afmarkað og nálægt tímabil. Ein- ræðisríkið í sögu Stefáns í Hvatt að rúnum er tilbúin ógnarstjórn, eða dæmi um ógnarstjórn, einhvers staðar í Evrópu „fyrr á öldum“. TMM 1994:1 17
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.