Fréttablaðið - 23.07.2015, Qupperneq 21
FIMMTUDAGUR 23. júlí 2015 | SKOÐUN | 21
Ef óður maður misþyrmir
gamalli konu, þá segja menn
ekki: Sjaldan veldur einn þá
tveir deila. Ef þingmenn þókn-
ast sérhagsmunum með því að
salta stjórnarskrá sem 2/3 kjós-
enda hafa samþykkt í þjóðarat-
kvæðagreiðslu, þá segja menn
ekki: Lýðræðistilraunin tókst
ekki. Þvílíkt orðaval á ekki við
en það markar samt opinbera
orðræðu í ýmsum löndum þar
sem venjulegt fólk hefur of
lítil völd og stjórnmálamenn of
mikil. Vandinn er vel þekkt-
ur í alræðisríkjum eins og t.d.
saga Rússlands vitnar um og
George Orwell lýsti vel í bók
sinni 1984, og hann teygir anga
sína ennþá hingað heim þar
sem stjórnmálaumræða fer að
miklu leyti fram í öfugmæla-
stíl og margir opinberir starfs-
menn og aðrir skjálfa af ótta
við valdið nema þeir séu valdið.
Hér segir frá fjórum pró-
fessorum í Háskóla Íslands og
framgöngu þeirra.
Fjórir prófessorar hafa orðið
Prófessor A sér öll tormerki á
að Alþingi staðfesti nýja stjórn-
arskrá sem 2/3 kjósenda sam-
þykktu í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni 2012 og hefur hamrað
á að kjörsókn hafi verið lítil
(49%). Sami prófessor sagði í
sjónvarpsfréttum 13. apríl sl.
um kjörsókn í rektorskjöri í
Háskóla Íslands (45%): „Kjör-
sóknin var mjög góð.“
Prófessor B hafði þetta að
segja í Morgunblaðinu 13. des-
ember 2012, sjö vikum eftir
þjóðaratkvæðagreiðsluna: „Í
fyrsta lagi er þjóðfundur ekki
viðurkennd aðferðafræði …
Það eru einkum tveir hópar
sem ég held að þurfi að koma
að samningu stjórnarskrár …
Annars vegar reyndir stjórn-
málamenn ... Hins vegar eru
það sérfræðingarnir … ákveðin
elíta hefur það starf að kynna
sér mál.“ Ómari Ragnarssyni
var ekki skemmt aldrei slíku
vant. Hann sagði í Mogga-
bloggi sínu: „Viðtalið er fullt af
mótsögnum og rangfærslum.”
Trampe greifi má hins vegar
una glaður við ummælin um
þjóðfundinn.
Prófessor C telur „ekki þörf
á að gera miklar breytingar
á [stjórnarskránni] … vegna
þess að ég tel að stjórnarskrár
eigi almennt að vera stöðugar“
eins og var haft eftir honum í
Fréttablaðinu 13. september sl.
líkt og engin þjóðaratkvæða-
greiðsla hefði farið fram. Hann
var formaður stjórnarskrár-
nefndar Alþingis.
Prófessor D sagði þetta í við-
tali við Frjálsa verslun (svör-
in voru skrifleg, sjá heimur.
is 4. janúar 2013): „Frumvarp-
ið er ótrúlegt plagg. Stór hluti
mannréttindakaflans er vað-
all ...“ Mannréttindakaflinn
geymir m.a. ákvæðið um auð-
lindir í þjóðareigu sem 83%
kjósenda lýstu stuðningi við í
þjóðaratkvæðagreiðslunni tíu
vikum fyrir viðtalið og einn-
ig umhverfisverndarákvæð-
in. Sami prófessor hafði áður
skrifað í Morgunblaðið 2. marz
2011: „Þeir einir eru valdir til
að semja nýja stjórnarskrá sem
taka ekki mark á stjórnarskrá
lýðveldisins.“ Hann var skip-
aður í ráðgjafaráð fjármálaráð-
herra 2013.
„Háborð sýndarveruleikans“
Þessir fjórir prófessorar
endurspegla ekki Háskóla
Íslands, öðru nær. Fjölmarg-
ir prófessorar veittu mér og
öðrum fulltrúum í stjórnlaga-
ráði örláta aðstoð við samn-
ingu stjórnarskrárfrumvarps-
ins 2011 og studdu verkið með
ráðum og dáð. Ég hygg að
Svanur Kristjánsson prófessor
hafi mælt fyrir munn margra
háskólamanna og annarra
kjósenda þegar hann kallaði
frumvarpið „eitt merkilegasta
skjal sem til hefur orðið í allri
stjórnmálasögu landsins“ enda
er frumvarpið í góðu samræmi
við niðurstöðu þjóðfundarins
2010. Fulltrúarnir á þjóðfund-
inum voru valdir af handahófi
úr þjóðskrá og endurspegluðu
því þjóðarviljann.
Þegar Alþingi hafði boðað
til þjóðaratkvæðagreiðslunnar
2012 með lögboðnum þriggja
mánaða fyrirvara sendu Sam-
tök um nýja stjórnarskrá
áskorun til rektora háskól-
anna um að halda fræðslu-
fundi um frumvarpið kjós-
endum til glöggvunar. Þeirri
áskorun var ekki sinnt. Eftir
þjóðaratkvæðagreiðsluna tóku
nokkrir sjálfvaldir prófess-
orar sig til og héldu sjö fundi
um málið. Til að ávarpa fund-
ina voru nær eingöngu fengnir
andstæðingar frumvarpsins,
sumir þrisvar (t.d. prófessor A
og prófessor B), aðrir tvisvar
(t.d. fv. formaður SUS). Engum
fulltrúa úr stjórnlagaráði var
boðið að ávarpa þessa háskóla-
fundi og sátu þó í ráðinu m.a.
fimm prófessorar, þrír aðrir
háskólasérfræðingar og fjórir
lögfræðingar. Um einn þess-
ara funda sagði Guðmundur
Gunnarsson fv. stjórnlagaráðs-
fulltrúi í tímaritinu Herðu-
breið: „Háskólinn varð þannig
að háborði sýndarveruleikans,
þar fengu einungis að taka til
máls skoðanabræður valda-
stéttarinnar.“ Annar fv. stjórn-
lagaráðsfulltrúi, Vilhjálmur
Þorsteinsson, tók í sama streng
á eyjan.is: „Mikið vildi ég óska
að frummælendur á fundinum
í dag hefðu meiri yfirsýn um
og ábyrgðartilfinningu gagn-
vart því sögulega stjórnar-
skrárferli sem hér hefur átt
sér stað frá árinu 2010 og hefur
vakið athygli og aðdáun víða
um heim. Og skildu betur inn-
tak þess að allt vald kemur frá
þjóðinni.“ Margir aðrir sem
fylgdust með þessum fundum
utan úr sal segja sömu sögu.
Vantraust kallar á viðbrögð
Meðvirkni, valdhlýðni og hlut-
drægni prófessora grafa undan
trausti almennings til háskóla.
Skv. þjóðarpúlsi Capacents
hefur traust fólksins í landinu
til Háskóla Íslands dvínað um
fimmtung frá 2008, úr 90% í
72%. Dvínandi traust kallar á
viðbrögð. Nýs rektors Háskóla
Íslands, Jóns Atla Benedikts-
sonar, bíða brýn verkefni. Eitt
þeirra er að efla innri starfs-
hætti í ætt við þá sem erlendir
háskólar nota til að verðskulda
traust og virðingu. Færar leiðir
að því marki eru efni í aðra
grein.
Meðvirkni, valdhlýðni
og hlutdrægni pró-
fessora grafa undan trausti
almennings til háskóla.
Í DAG
Þorvaldur
Gylfason
hagfræðiprófessor
Taglhnýtingar valdsins
Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi .
Sendu greinina þína á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta.
S a m k væmt aug lýs -
ingu frá Verðlagsnefnd
búvara dagsettri 17.
júlí 2015 hækkaði verð
á mjólkurvarningi um
3,6%. Undantekningin
er verð á smjöri sem
var hækkað um 12%
enda í miklu uppáhaldi
hjá neytendum nú um
stundir! Um þá hækkun
og aðrar hækkanir sem
Verðlagsnefndin ákvað
17/7 má hafa mörg orð. En hér
skal staldrað við ákvörðun
nefndarinnar um heildsöluverð
gerilsneyddrar mjólkur í lausu
máli annars vegar (105 krónur
á lítra) og verði á mjólk í eins
lítra fernu hins vegar (121 króna
á lítra). Þ.e.a.s. það virðist mat
nefndarinnar að kostnaður við
pökkun hvers lítra sé 16 krónur.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem mér hefur tekist að afla
mér kostar pappírsfernan sjálf
komin í átöppunarsal á bilinu 16
til 18 krónur. Þá á eftir að koma
mjólkinni í fernuna. Til þess að
gera það þarf mikið húsnæði,
stóra og dýra vélasamstæðu
auk nokkurs mannafla. Varlega
áætlað kostar það 10 krónur á
hvern lítra að koma mjólkinni
úr tanknum í fernuna.
Helstu kaupendur ópakkaðr-
ar mjólkur eru aðilar sem eru í
samkeppni við Mjólkursamsöl-
una í framleiðslu og sölu afurða
sem unnar eru úr ópakkaðri
mjólk. Í Verðlagsnefnd búvara
sitja fulltrúar bænda og full-
trúar afurðastöðva (sem eru
sameignarfyrirtæki bænda!),
fulltrúi atvinnu- og nýsköp-
unarráðuneytisins auk full-
trúa velferðarráðuneytisins
sem ætlað er að gæta „hags-
muna“ neytenda, en því hlut-
verki sinntu fulltrúar ASÍ og
BSRB áður. Afurðastöðvafull-
trúarnir mata nefndina á upplýs-
ingum um framleiðslukostnað
og á grundvelli þeirra upplýs-
inga ákveður nefndin heildsölu-
verð hinna ýmsu afurða. Í
fréttatilkynningu verðlags-
nefndarinnar er lögð áhersla á
að samþykktir hennar hafi verið
samhljóða.
Dæmið hér að ofan um van-
mat nefndarinnar á kostnaði
við átöppun mjólkur á fern-
ur benda til þess að fulltrúar
ráðuneytanna tveggja hafi ekki
sinnt upplýsingaöflunarskyldu
sinni af þeirri kostgæfni sem
eðlilegt er og búvörulög kveða
á um. Það er ekki nóg að láta
fulltrúa Mjólkursamsölunnar
segja sér hvað kostar að tappa
mjólk á fernu. Það þarf að afla
sjálfstæðra upplýsinga. Sem er
auðvelt því Mjólkursamsalan
er ekki ein um að tappa vökva í
TetraPakk-umbúðir hér á landi!
Í ljósi þess að miklir hagsmun-
ir samkeppnisaðila Mjólkursam-
sölunnar annars vegar og neyt-
enda hins vegar eru í húfi fer ég
fram á að Verðlagsnefnd búvara
endurskoði verðlagningu sína
frá 17. júlí 2015 og lækki heild-
söluverð á ópakkaðri mjólk um
minnst 10 krónur á lítrann. Jafn-
framt fer ég fram á að nefndin
geri opinberlega grein fyrir rök-
stuðningi fyrir verðbreyting-
um sem ákveðnar voru nú í júlí.
Geti nefndin það ekki er eðlilegt
að auglýsingin frá 17. júlí verði
dregin til baka uns ákvörðun
sem þolir almenna skoðun ligg-
ur fyrir. Jafnframt skora ég á
Alþingi að fella mjólkurfram-
leiðsluna undir samkeppnislög
við allra fyrsta tækifæri.
Enn af verðofbeldi
LANDBÚNAÐUR
Þórólfur
Matthíasson
prófessor
➜ Það er ekki nóg
að láta fulltrúa
Mjólkursamsölunnar
segja sér hvað kostar
að tappa mjólk á
fernu. Það þarf að
afl a sjálfstæðra upp-
lýsinga.
2
2
-0
7
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
8
A
-0
4
0
C
1
5
8
A
-0
2
D
0
1
5
8
A
-0
1
9
4
1
5
8
A
-0
0
5
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K