Morgunblaðið - 11.02.2015, Side 36

Morgunblaðið - 11.02.2015, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 42. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. Ástin á tímum hryðjuverkanna 2. Andlát: Kjartan Halldórsson 3. Rikka og Skúli í stuði á árshátíð… 4. Varð aftur glöð eftir að hún léttist »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hverfisgata 71a, viðbygging hönn- uð af Studio Granda við gömul hús við Hverfisgötu, er ein af 40 nýjum byggingum sem enduðu í úrvali fram- úrskarandi nýbygginga sem keppa um hin virtu Mies van der Rohe- arkitektúrverðlaun sem Evrópusam- bandið veitir ár hvert. Harpa hlaut þessi eftirsóttu verðlaun 2013. Þrjár íslenskar byggingar voru í fyrsta úrtakinu með 420 verkefnum. Auk hússins við Hverfisgötu voru það Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, hannaður af A2F Arkitektum/ Aðalheiði Atladóttur og Falk Krüger, og einbýlishús á Kálfaströnd 1 við Mývatn hannað af VA Arkitektum/ Ólafi Óskari Axelssyni. Hverfisgata 71a til- nefnd til verðlauna  Fúsi, nýjasta kvikmynd Dags Kára Péturssonar, sem sýnd er á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín, fær á heildina litið jákvæða gagnrýni á kvik- myndavefjunum Hollywood Reporter og Screen Daily. Í gagnrýni Hollywood Reporter segir m.a. að myndin sé hlý- leg og fyndin lýsing á góðhjörtuðum manni sem eigi erfitt með að laga sig að samfélagi sínu. Myndin sé hins veg- ar of sæt og þægileg til að hafa var- anleg áhrif á áhorfandann. Screen Daily er einnig á jákvæðum nótum og ber mikið lof á frammi- stöðu Gunnars Jóns- sonar sem fer með hlutverk Fúsa og Ilmar Kristjáns- dóttur sem fer með eitt af aðal- hlutverk- unum. Hlýleg og fyndin mannlýsing í Fúsa Á fimmtudag Breytileg átt, 3-10 m/s og skýjað með köflum, en él nyrst framan af degi. Vaxandi austanátt um kvöldið og fer að snjóa sunnanlands. Frost 1 til 13 stig, mest inn til landsins. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestan og norðvestan 8-15 m/s, hvassast við suður- og austurströndina, en norðlægari norðvestantil um kvöldið. Kólnandi veður og frost 1 til 10 stig, mest inn til landsins. VEÐUR Haukar og Grótta komust í gærkvöld í undanúrslit Coca Cola-bikars kvenna í hand- knattleik. Haukar lentu í hörkuleik gegn Selfossi á Ásvöllum þar sem heima- konur tryggðu sér sigurinn, 26:22, með því að skora síð- ustu fjögur mörk leiksins, og komust því í Laugardals- höllina annað árið í röð. Grótta átti ekki í neinum vandræðum með að slá HK út á Seltjarnarnesi. »3 Haukakonur end- urtóku leikinn Birgir Leifur Hafþórsson, Íslands- meistari í golfi, mun leika mun meira erlendis á árinu en hann hefur gert um langa hríð. Birgir komst síðasta haust á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina og fyrir vikið á hann mikinn keppnisrétt á Áskorendamótaröð Evrópu sem er sú næststerkasta í álf- unni. Þann rétt ætl- ar Birgir að reyna að nýta sér eins og hægt er. »2 Birgir Leifur verður á Áskorendamótaröðinni „Að fenginni reynslu þori ég nú ekki að gera mér of miklar væntingar, því vonbrigðin í kjölfar fyrri aðgerða hafa verið mikil. En vissulega kviknar smá von við þetta,“ segir Eyjólfur Héðins- son knattspyrnumaður meðal annars í samtali við Morgunblaðið. Hefur hann verið frá keppni í tíu mánuði samfleytt vegna nárameiðsla, en er nú á leið í aðgerð í þriðja sinn. »4 Eyjólfur Héðinsson fer í aðgerð í þriðja sinn ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Þetta var frábær lífsreynsla, mjög lærdómsríkt og alveg rosa- lega skemmtilegt,“ segir Pétur Magnússon um þátttöku sína í norrænum frumkvöðlabúðum í Finnlandi á vegum Erasmus+. Hann var einn af fjórum nem- endum í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti sem voru valdir úr hópi umsækjenda. Verkefnið nefnist International Nordic Entrepreneurship og er samstarfsverkefni FB og Nýsköp- unarmiðstöðvar Íslands í sam- vinnu við starfsmenntaskóla í Nor- egi, Danmörku og Finnlandi. Hópurinn, fjórir nemendur ásamt þremur kennurum úr skól- anum, dvaldi í bænum Turku í Finnlandi í tæpa viku. Fjórir nem- endur komu frá hverju landi og þeim var skipt niður í jafn marga hópa sem unnu saman í frum- kvöðlabúðunum, einn frá hverju landi. Stofnuðu fyrirtæki frá A til Ö Ungmennin fengu það verkefni að búa til fyrirtæki sem tengdist endurvinnslu. Þau þurftu að stofna fyrirtæki, búa til kostnaðaráætlun, reikna launakostnað starfsmanna, og margt fleira; í raun allt sem tengist fyrirtækjarekstri. Öll þessi vinna fór fram á sólarhring, þau unnu frá kl. 10 á miðvikudegi og fram til kl. 8 morguninn eftir. Þá fengu þau tveggja tíma svefn áður en þau kynntu hugmyndina að fyr- irtækinu fyrir dómnefnd sem valdi út besta nýsköpunarverkefnið. „Það erfiðasta var að vera vak- andi svona lengi. En það sem maður lærði voru ákveðin vinnu- brögð; ef maður gerir þetta ekki sjálfur þá gerir þetta enginn ann- ar, því enginn gerir hlutina fyrir þig. Þú þarft alltaf að gera þá,“ segir Pétur og bætir við að það sé mikilvægt í hópvinnu að vera op- inn fyrir öllu og vera óhræddur að koma með hugmyndir því engin er léleg. Krakkarnir töluðu saman á ensku og segir Pétur það hafa gengið frekar vel. Hann segir tungumálið hafi ekki hamlað þeim í samstarfinu. Þau hafi einstaka sinnum gripið til dönskunnar í spjalli við Danina, annars hafi enskan verið ofan á. „Ég hef mikinn áhuga á frum- kvöðlavinnu og það hefur lengi verið draumur að verða frum- kvöðull,“ segir Pétur sem mælir hiklaust með búðunum. Í ofanálag þá hafi þau kynnst fullt af skemmtilegum krökkum sem þau eru í góðum samskiptum við. Unnu sleitulaust í sólarhring  Tóku þátt í frumkvöðlabúðum í Finnlandi Frumkvöðlar Íslendingarnir lituðust um í borginni Turku. Frá vinstri: Pétur Magnússon, Inga Dís Finnbjörnsdóttir, Ágústa Unnur Gunnarsdóttir kennari, Gréta Jónsdóttir og Ísól Eir Svansdóttir, sem var í sigurliðinu. Verkefnið, International Nordic Entrepreneurship, er til tveggja ára. Nýsköpunarmiðstöðvar allra landanna fjögurra, Íslands, Dan- merkur, Noregs og Finnlands, vinna markvisst að því að tengja atvinnulíf og skóla saman. Næstu frumkvöðlabúðir verða haldnar í Danmörku í haust og á næsta ári verða þær í FB. Frumkvöðlabúð- irnar verða í nánu samstarfi við Fab Lab (Fabrication Laboratory) sem er í Eddufelli við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti. „Við stefnum að því að verða leiðandi í frumkvöðlabúðum fyrir framhaldsskólastigið og stefnum að því að vera með fyrstu búð- irnar næsta haust,“ segir Ágústa Unnur Gunnarsdóttir, verkefna- stjóri frumkvöðlabúðanna, og leggur áherslu á mikilvægi sköp- unar í skólum og tengsl við at- vinnulífið. Skólinn leiðandi í sköpun FRUMKVÖÐLABÚÐIR Í FJÖLBRAUTASKÓLANUM Í BREIÐHOLTI 2016

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.