Húnavaka - 01.05.1972, Blaðsíða 179
HÚNAVAKA
177
bónus af bifreiðaeigendum, þótt
þeir hafi orðið fyrir því að brjóta
rúðu hjá náunganum, því að það
er vafasamt að kenna bifreiða-
stjórum um slíkt tjón. Sama er
að segja um þá sem ekið hafa á
skepnur. Tilgangur okkar með
því, var að fá tjónvaldinn til að
segja frá tjóninu, en ekki eins og
því miður allt of mörg dæmi eru
um, að skepnur hafa verið skild-
ar eftir verr leiknar en dauðar.
Og þegar ekki hefur fundizt
tjónvaldur, hefur bóndinn ekki
fengið bætur fyrir viðkomandi
skepnu. Af bruna- og heimilis-
tryggingum höfum við gefið
10% arð frá upphafi reksturs
félagsins.
í haust var stofnað á Akureyri
nýtt tryggingafélag, „Norðlenzk
trygging“. Kom eitthvað til tals
að Byggðatrygging tæki þátt í
þessu nýja félagi, og hvernig hef-
ur þeim málum reitt af?
Já, það kom til tals að þessi
tvö félög yrðu sameinuð, og þá
undir heitinu Byggðatrygging.
Við ræddum lítillega við ráða-
menn þessa félags á Akureyri, og
síðar komu þeir hingað til
Blönduóss. Stjórn Byggðatrygg-
ingar fannst það lægi ekki nógu
ljóst fyrir hvernig starfsemi
Norðlenzkrar tryggingar yrði
hagað, og hver staða okkar yrði
innan þess, jrannig að á aðal-
fundi sl. haust var samþykkt að
bíða átekta með ákvörðun. Hins
vegar er ekki loku fyrir það skot-
ið, að um samstarf verði að ræða
í framtíðinni. Einnig var það, að
við vorum með endurtrygginga-
samninga, og það var ekki við
sama félag og Norðlenzk trygg-
ing stefndi á, þannig að þessi
mál lágu ekki það ljóst fyrir að
hægt væri að taka endanlega
ákvörðun.
Og það má því reikna með að
Byggðatrygging starfi sjálfstætt á
næstunni?
Já, í dag er ekki annað vitað.
Hvernig álítur þú að framtíð
Byggðatrygginga sé?
Það er spurning sem erfitt er
að svara. Það eru ýmsar blikur á
lofti í tryggingamálum, og mað-
ur veit varla hvernig trygginga-
félög standa í dag. Það eru ný-
komin bráðabirgðalög sem kveða
á um sjálfsábyrgð í bifreiðatrygg-
ingum, allt að kr. 7.500,00 í
hverju tjóni. Hvernig þettareyn-
ist þori ég ekki um að spá. Einn-
ig eru ýmis önnur mál sem grípa
þarna inná.
Ég hef unnið hér að hálfu
þessi ár, en þetta er orðið að
fullu starfi fyrir mann, ef hann
ynni hér allan daginn myndi
hann sinna þessu meir en ég hef
getað gert. Það er aldrei gott að
skipta sér milli tveggja aðila, og
það hlýtur að koma fram á öðr-
um eða jafnvel báðum. Og það
12