Húnavaka - 01.05.1972, Blaðsíða 202
200
HÚNAVAKA
kempa, 97 ára, á kvöldvökuna og
hélt snjalla og skemmtilega
ræðu.
Núverandi stjórn skipa: Dóm-
hildur Jónsdóttir, Skagaströnd,
formaður, Emma Hansen, Hól-
um, ritari og Sigríður Guðvarð-
ardóttir, gjaldkeri.
Pétur Þ. Ingjaldsson.
FRÁ BLÖNDUÓSHREPPI.
Á sl. ári var mikið um fram-
kvæmdir á vegum hreppsins.
Fjárframlag til barna- og ungl-
ingaskólans var kr. 5.550.000,00.
Á árinu var lokið viðbyggingu
við skólann, og er það hið bezta
hús.
Allmiklar nýjar framkvæmdir
þurfti að gera við holræsakerfi í
staðnum, og var veitt til þeirra
kr. 480.000,00.
Haldið var áfram við undir-
byggingu Húnabrautar undir
varanlegt slitlag, framlag til
verksins var kr. 367.000,00. Ekki
er enn ákveðið hvenær slitlagið
verður sett á Húnabrautina, né
hvaða efni verður í því, en það
mun verða gert svo fljótt sem
kostur verður. Til viðhalds og
nýbygginga annarra vega í
hreppnum var varið kr.
350.000,00.
Vegna endurbyggingar slátur-
hússins, og ýmissa annarra not-
enda var nauðsyn endurbóta á
hluta af vatnsveitu staðarins. í
því sambandi var lögð ný 5” æð
frá Blöndubrú og upp fyrir
Kleifa, auk ýmissa annarra fram-
kvæmda. Til vatnsveitu var því
veitt allhárri upphæð, eða kr.
600.000,00.
Mjög hefur þrengzt í beiti-
landi Blönduósinga undanfarin
ár, svo að til vandræða hefur
horft, og má segja að landið sé á
barmi þess að fara í algjöra ör-
tröð. Úr þessu rættist nokkuð á
árinu, er jörðin Vatnahverfi
reyndist föl til kaups. Blönduós-
hreppur keypti jörðina, sem
kostaði 1.2 millj. kr. Til viðbót-
ar við beitiland er þarna ágæt að-
staða til útivistar.
Sl. haust voru ásettar skepnur
í Blönduóshreppi sem hér segir:
Sauðfé 1325, hross 210, nautgrip-
ir 12 og svín 17.
E. Þorl.
FRÉTTIR ÚR HÖFÐAKAUPSTAÐ.
Fiskveiðar: Fiskafli var sæmileg-
ur á vetrarvertíð. Sumarfiskirí
gott framan af, en á seinni hluta
sumars og haustvertíð léleg afla-
brögð.
Örvar og Arnar stunduðu tog-
veiðar allt árið og lögðu upp á
Skagaströnd, utan þess þeir
sigldu með aflann til Englands
og voru það þrjár söluferðir.