Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Side 78

Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Side 78
UPPELDI OG MENNTUN/ICELANDIC JOURNAL OF EDUCATION 24(2) 201578 SKÓLAÞÁTTTAKA OG UMHVERFI 8–17 ÁRA GETUMIKILLA BARNA MEÐ EINHVERFU Skólinn Í 2. grein laga um grunnskóla (nr. 91/2008) og framhaldsskóla (nr. 92/2008) er áréttað að hlutverk þessara skólastofnana sé að stuðla að alhliða þroska og þátttöku allra nemenda í lýðræðisþjóðfélagi og að bjóða hverjum nemanda nám við hæfi. Grunn- skólar á Íslandi starfa samkvæmt hugmyndafræðinni um skóla án aðgreiningar sem kveður á um rétt allra barna til skólagöngu í heimaskóla, óháð líkamlegu eða andlegu atgervi (Hafdís Guðjónsdóttir og Jóhanna Karlsdóttir, 2009). Í grunnskólalögum er gerð krafa um að skólar og kennarar komi til móts við þarfir nemenda með sérþarfir, bæði hvað varðar námsefni og kennsluhætti, og í 9. kafla laganna er kveðið á um að sveitarfélög skuli tryggja að sérfræðiþjónusta sé veitt í skólum. Nemendur með sérþarfir teljast þeir sem eiga erfitt með nám, meðal annars vegna sértækra náms- örðugleika, tilfinningalegra eða félagslegra örðugleika og/eða fötlunar, sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðs fólks (Lög um grunnskóla nr. 91/2008; Lög um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992). Rannsókn á skipulagi og framkvæmd stefnunnar hér á landi leiddi í ljós jákvætt viðhorf meðal starfsfólks skóla en að það væri þó ávallt mats- og/eða túlkunaratriði hvað fælist í námi við hæfi og hvað jafnrétti til náms væri í reynd (Hafdís Guðjónsdóttir og Jóhanna Karlsdóttir, 2009). Í aðalnámskrá grunnskóla segir um almenna menntun að hún stuðli að aukinni hæfni einstaklingsins til að takast á við áskoranir daglegs lífs. Þar segir einnig að almenn menntun skuli miða að því að efla skilning einstaklingsins á eiginleikum sínum og hæfileikum og þar með hæfni til að leysa hlutverk sín í flóknu samfélagi (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2012). Auk hefðbundins náms fara fjölbreytt- ar og ekki síður mikilvægar athafnir fram innan og utan skólans sem efla færni nem- andans á ýmsum sviðum. Má þar nefna þátttöku í félagsstarfi innan skólans (t.d. setu í skólanefnd, skólaráði, klúbbastarfi), samskipti við jafnaldra og starfsfólk innan og utan kennslustofu, svo sem í matsal og opnum rýmum, og ýmis önnur ábyrgðarhlutverk sem nemendum er ætlað að gegna. Þátttaka barna í öllum þeim fjölbreyttu athöfnum sem felast í almennu skólastarfi er því mikilvæg forsenda skóla án aðgreiningar. Höf- undum er ekki kunnugt um rannsóknir á þátttöku íslenskra barna með einhverfu í athöfnum í skólanum. Í greinargerð samstarfshóps um samhæfða þjónustu við nem- endur með einhverfu kom hins vegar fram að 90% starfsfólks leik- og grunnskóla telji þekkingu til að mæta þörfum nemendahópsins góða (Reykjavíkurborg, Menntasvið, 2010). Sambærilegar niðurstöður komu fram í nýlegri könnun meðal 863 íslenskra kennara. Meirihluti kennaranna hafði reynslu af því að starfa með nemanda með ein- hverfu og rúmlega helmingur þeirra hafði hlotið viðbótarfræðslu um einhverfu sem skilaði aukinni þekkingu. Rannsakandi taldi að þekking kennara á einkennum ein- hverfu væri nokkuð góð (Björn Gauti Björnsson, 2012). Hins vegar benda rannsóknir til þess að foreldrar barna með einhverfu séu óánægðari með þjónustu til handa börnum sínum en foreldrar barna með annars konar skerðingar (Dóra S. Bjarnason, 2010; Snæfríður Þóra Egilson og Sara Stefánsdóttir, 2014). Foreldrar barna með ein- hverfu kvörtuðu meðal annars frekar en aðrir foreldrar yfir misvísandi upplýsingum og ómarkvissri þjónustu (Dóra S. Bjarnason, 2010).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.