Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2012, Side 14
Skúli MogenSen er MilljarðaMæringur 14 Fréttir 27.–29. júlí 2012 Helgarblað S kúli Mogensen og eiginkona hans Margrét Ásgeirsdótt- ir eru ríkustu Íslendingarn- ir. Þetta kemur fram í töl- um ríkisskattstjóra vegna auðlegðarskattsálagningar fyrir árið 2011 sem birt var í vikunni. Þar kem- ur fram að hjónin borgi hátt í 150 milljónir króna í auðlegðarskatt, sem er sérstakur skattur sem lagður er á hreina eign. Þetta þýðir samkvæmt útreikningum DV að hrein eign þeirra hjóna nemur 7,5 milljörðum króna. Tæp tvö prósent greiða auð- legðarskatt Auðlegðarskattur er þrepaskiptur skattur sem lagður er á hreinar eign- ir fólks, það er eignir umfram skuld- ir, sem nema meira en 75 milljónum króna hjá einstaklingum og 100 millj- ónum króna hjá hjónum. Skattur- inn nemur 1,5 prósentum af hreinni eign á bilinu 75–150 milljónir hjá einhleypum og 100–200 milljónum hjá hjónum en 2 prósenta skattur er lagður á eignir umfram þessi mörk. Samkvæmt upplýsingum frá ríkis- skattstjóra eru 5.212 einstaklingar á landinu sem greiða auðlegðar- skatt, eða sem nemur 1,6 prósentum þjóðarinnar. Langríkustu Íslendingarnir Af þeim Íslendingum sem DV skoð- aði voru Skúli og Margrét langríku- stu Íslendingarnir á síðasta ári. Skúli kom eins og stormsveipur inn í ís- lenskt viðskiptalíf í kjölfar hrunsins en þá kom hann með fullar hendur fjár til landsins og byrjaði að fjárfesta í fyrirtækjum hins fallna Íslands. Skúli hafði þá búið í Kanada þar sem hann byggði upp hugbúnað- arfyrirtækið OZ að nýju en það var hálfgerður gullkálfur íslensks við- skiptalífs í byrjun aldarinnar. Eft- ir nokkurra ára rekstur hér á landi varð fyrirtækið nær gjaldþrota og fór Skúli með leifarnar til Kanada þar sem hann hóf uppbygginguna á ný. Hann seldi svo fyrirtækið til finnska farsímarisans Nokia síðla árs 2008 og kom aftur heim. Skúli keypti fljótlega eftir heimkomuna stóran hlut í MP banka og Advania auk þess að setja á fót nýtt flugfélag, WOW air. Á síðasta ári var Skúli í þriðja sæti á lista yfir þá sem greiddu mest í op- inber gjöld en hann greiddi rúmar 111 milljónir króna. Í ár er hann hins vegar kominn niður í áttunda sætið yfir þá sem greiða hæstu opinberu gjöldin. Skattakóngurinn annar ríkastur Skattakóngurinn Þorsteinn Hjalte- sted var næstríkasti Íslendingurinn en svo virðist sem skuldir Þorsteins dragi hann niður í annað sætið yfir ríkustu Íslendingana. Þorsteinn er einn fárra óðalsbænda á Íslandi en hann auðgaðist mikið á samningum við Kópavogsbæ um landið á Vatns- enda. Hann býr sjálfur ennþá við El- liðavatnið þar sem gamli sveitabær- inn sem hann erfði stendur enn, ryðgaður og illa farinn. Harðvítugar deilur hafa verið í áraraðir á milli Þorsteins og föður- bræðra hans vegna landsins en þar sem það tilheyrði óðalsbúi föður hans, Magnúsar Hjaltested, var það Þorsteinn einn og sér, elstur systkina sinna, sem erfði allt. Þorsteinn er skattakóngur Íslands en í fyrra greiddi hann tæpar 162 milljónir króna í skatta. Lyf og fiskur verðmæt Margir af ríkustu Íslendingunum eignuðust auð sinn í gegnum Actav- is. Það er tilfellið á Íslandi hjá hjón- unum Kristni Gunnarssyni og Ólöfu Vigdísi Baldvinsdóttur. Þau seldu hlut sinn í Actavis árið 2007 en lyfja- fyrirtækið er eitt verðmætasta fyrir- tæki á Íslandi. Eftir söluna varð Krist- inn skattakóngur Íslands, tveimur sætum fyrir neðan hann var svo Vil- helm Róbert Wessmann, fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins. Kristinn og Ólöf hafa fjárfest í ýmsum fyrirtækj- um undanfarin ár og er ljóst að eign- ir þeirra eru umtalsvert verðmætar. Guðbjörg M. Matthíasdóttir, út- gerðarkona í Vestmannaeyjum, hef- ur hins vegar grætt háar fjárhæð- ir í sjávarútvegi. Hún er eigandi Ísfélagsins í Eyjum en hún hefur auk þess fjárfest í ýmsum fyrirtækj- um. Hún er til að mynda einn aðal- eigandi Morgunblaðsins. Guðbjörg hefur átt sæti á lista yfir skattakónga landsins undanfarin ár en hún var skattadrottningin árið 2009, þegar hún borgaði tæplega 343 milljónir króna í opinber gjöld. Formaður Framsóknar ríkasti þingmaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er ríkasti þingmaðurinn. Hann fær ágætar tekjur fyrir þingstörf sín en það er bara dropi í hafið fyrir hann ef litið er til hreinna eigna hans og eiginkonu hans, Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur. Hún er dóttir Páls Samúelssonar sem hagnaðist mikið þegar hann seldi út- gerðarmanninum Magnúsi Kristins- syni í Vestmannaeyjum Toyota-um- boðið fyrir um sjö milljarða króna árið 2005. Líklegt er að Anna hafi í kjölfar- ið fengið fyrirframgreiddan arf frá föður sínum en slíkt er stundum gert þegar börn sterkefnaðra einstaklinga Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Launin dropi í hafið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er ríkasti þingmaðurinn. Hann og eiginkona hans Anna Sigurlaug Pálsdóttir eiga meira en milljarð króna í hreinni eign. Mynd RóbeRT ReyniSSon Skattakóngurinn Þrátt fyrir að eiga ekki mest er Þorsteinn Hjaltested skattakóngur Íslands annað árið í röð. Auðlegðarskattur- inn nær aðeins til eigna umfram skuldir. Mynd bjöRn bLöndaL Hefur það gott Það er sama hvernig á málið er litið – ekki er hægt að segja að Skúli Mogensen og eiginkona hans Margrét Ásgeirsdóttir séu á flæðiskeri stödd. Skúli Mogensen og Margrét Ásgeirsdóttir 7.495.442.400 kr. Þorsteinn Hjaltested og Kaire Hjaltested 4.091.669.600 kr. Ólöf Vigdís Baldvinsdóttir og Kristinn Gunnarsson 3.562.678.900 kr. Guðbjörg M. Matthíasdóttir 3.074.185.000 kr. Gunnar I. Hafsteinsson og Guðrún Þorsteinsdóttir 2.906.866.500 kr. Finnur Reyr Stefánsson og Steinunn Jónsdóttir 2.568.590.600 kr. Kristján V. Vilhelmsson og Kolbrún Ingólfsdóttir 2.468.880.000 kr. Ingunn Gyða Wernersdóttir 1.889.597.250 kr. Guðmundur Steinar Jónsson og Gígja Jónatansdóttir 1.870.352.100 kr. Sigurður Örn Eiríksson og Berglind Björk Jónsdóttir 1.830.831.300 kr. Benedikt Sveinsson og Guðríður Jónsdóttir 1.689.080.400 kr. Sigurður Gísli Pálmason og Guðmunda Helen Þórisdóttir 1.387.812.900 kr. Arnór Víkingsson og Ragnheiður Jóna Jónsdóttir 1.270.386.500 kr. Eiríkur S Jóhannsson og Friðrika Tómasdóttir 1.260.970.800 kr. Þorsteinn Már Baldvinsson 1.244.020.400 kr. Stanley Pálsson og Ágústa Hrefna Lárusdóttir 1.199.247.700 kr. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Sigurlaug Pálsdóttir 1.114.975.800 kr. Helga S. Guðmundsdóttir 975.754.800 kr. Guðmundur Sveinn Sveinsson og Valgerður Kristín Gunnarsdóttir 893.440.400 kr. Baldur Guðlaugsson og Karítas Kvaran 835.197.700 kr. Eiríkur Þorgeirsson og Ragnheiður Guðmundsdóttir 813.794.000 kr. Björg Hildur Daðadóttir og Jakob Valgeir Flosason 765.878.400 kr. Sverrir Sveinsson og Ásgerður Geirarðsdóttir 762.210.600 kr. Guðbjörg Edda Eggertsdóttir og Eyjólfur Haraldsson 760.228.000 kr. Birkir Kristinsson og Ragnhildur Gísladóttir 749.760.000 kr. Guðbjörg Astrid Skúladóttir 729.705.800 kr. Hreggviður Jónsson og Hlín Sverrisdóttir 700.127.800 kr. Arngrímur Jóhannsson 632.134.900 kr. Frosti Bergsson og Halldóra Mathiesen 620.880.100 kr. Sigríður Sverrisdóttir og Hlöðver Örn Rafnsson 620.367.000 kr. Eiríkur Vignisson og Ólöf Linda Ólafsdóttir 599.400.000 kr. Gunnar Hjaltalín og Helga R Stefánsdóttir 591.994.400 kr. Magnús Gunnarsson og Gunnhildur Gunnarsdóttir 572.216.000 kr. Ástmar Ingvarsson og Íris Wigelund Pétursdóttir 569.770.000 kr. Sigurður Helgason og Peggy Oliver Helgason 545.579.400 kr. Þórólfur Gíslason og Andrea Dögg Björnsdóttir 533.572.900 kr. Ingimundur Sveinsson og Sigríður Arnbjarnardóttir 532.756.800 kr. Bryndís Anna Rail og Októ Einarsson 525.997.400 kr. Ágúst Einarsson og Kolbrún Ingólfsdóttir 521.857.800 kr. n Hreinar eignir 499 ríkra Íslendinga n Skattakóngurinn Þorsteinn Hjaltested borgar næsthæstan auðlegðarskatt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.