Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Blaðsíða 10
Þriðjudagur 28. Október 200810 Neytendur Lof&Last n Lofið fær Herragarðurinn fyrir að bjóða upp á 20 prósenta afslátt af öllum vörum í kreppunni. Herragarðurinn mun aukinheld- ur ekki hækka vöru- verð það sem eftir lifir ársins. „Þá kostar eterna-skyrtan 796 krónum minna en hún gerði árið 2001.“ Gullinbrú 158,9 178,6 Bensín dísel Skeifunni 157,2 176,9 Bensín dísel Skógarhlíð 158,9 178,6 Bensín dísel Dalvegi 153,1 172,8 Bensín dísel Fjarðarkaupum 153,8 173,5 Bensín dísel Fellsmúla 157,2 177,0 Bensín dísel Skógarseli 157,5 177,1 Bensín díselel d sn ey t i Sá sem lætur frysta húsnæðislánið sitt þarf ekki að borga krónu á meðan. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að fólk eigi ekki að geta tapað á því að láta frysta lánin. Hann kallar eftir skýrari fyrirmælum viðskiptaráðuneytisins en tilmæli ráðherra ná ekki til bílalána í erlendri mynt. Við mælum með... ...því að foreldrar sinni börnum sínum í kreppunni. Þegar peningarnir eru hættir að byrgja sýn kemur upp úr krafsinu að fjölskyldan er það sem mestu máli skiptir. Skemmtileg afþreying þarf ekki alltaf að kosta peninga. Víða má finna opna leikvelli og útivistarsvæði þar sem fjölskyldan getur notið samvista. Slíkar stundir munu, þegar frá líður, skilja miklu meira eftir sig en verslunar- eða bíóferðir. bæði í sálinni og í pyngjunni. „Hugmyndin er sú að bjóða fólki sem er með húsnæðislán í erlendri mynt, eða svokölluð myntkörfu- lán, upp á þann valkost að geta fryst bæði afborgun og vexti þar til ró fær- ist á gjaldeyrismarkaðinn. Eða þar til hann réttir úr sér og gengi krón- unnar styrkist á nýjan leik,“ segir Þorfinnur Ómarsson, upplýsinga- fulltrúi viðskiptaráðuneytisins. Nokkurrar óvissu hefur gætt meðal almennings um það hvað slík frysting feli í sér, en Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sendi þau tilmæli til bankanna 14. október að þeir veittu fólki frystingu á lánum sínum. Fyrstu dagana voru hnökr- ar á þessu og fréttir bárust af því að fólki hefði verið neitað um frystingu. Þorfinnur segir að nú eigi þetta að ganga snurðulaust fyrir sig og hann hvetur fólk til að láta ráðuneytið vita ef svo er ekki. Tímabundið ástand „Með þessu áttu að geta frestað því að borga þessar afborganir á meðan gjaldeyrismarkaðurinn er frosinn. Þess er vænst að það þurfi ekki að taka of mikinn tíma miðað við þær aðgerðir sem gripið hefur verið til,“ segir hann og bendir á fyr- irhugaða aðstoð frá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum. Sú aðstoð eigi að hleypa gjaldeyrismarkaðnum í gang aftur og laga gengi krónunnar fljót- lega í kjölfarið. Óvíst er þó hvenær það verður en vonir standa til um að ástandið batni innan fárra mánaða. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að fólk eigi ekki að geta tapað á því að frysta lánin sín. Frystingin eigi að vera fólki að kostnaðarlausu. „Spurning- NoTaðu krediTkorTið Notaðu kreditkortið til daglegra innkaupa í stað þess að nýta yfirdráttarheimildina. Það er að segja ef þú átt kreditkort á ann- að borð. Vextir af yfirdráttarlánum eru oft um 25 prósent á meðan kreditkortafyrir- tækin lána þér vaxtalaust í einn mánuð. gættu þess þó að eiga fyrir reikningnum því annars verða vextirnir jafnháir yfirdrátt- arvöxtum.neytendur@dv.is umSjóN: baLdur guðmuNdSSON, baldur@dv.is Neyten ur BaLdur GuðMuNdSSoN blaðamaður skrifar baldur@dv.is BaLdur GuðMuNdSSoN blaðamaður skrifar baldur@dv.is Láttu frysta húsnæðisLánið „Með þessu áttu að geta frestað því að borga þessar afborganir á meðan gjaldeyrismarkaðurinn er frosinn.“ Fólk á ekki að þurfa að greiða neinn kostnað vegna frystingar Með frystingu húsnæðisláns þarf fólk ekki að borga krónu í þá mánuði sem frystingin gildir. n Lastið að þessu sinni fær Caruso. Hópur sem fór á veitingastaðinn um helgina þurfti að bíða í heilan klukkutíma áður en hann fékk matseðla á borð. Fullt var út úr dyrum en starfsfólkið annaði ekki fjöldanum. Flestir pöntuðu pitsur sem smökkuð- ust vel eftir alla biðina. in er aðallega sú hvernig stjórnvöld bregðast við þegar markaðaðurinn opnar að nýju,“ segir Jóhannes. Borga ekki krónu Fólk með húsnæðislán í erlendri mynt þarf því ekki að borga krónu af lánum sínum á næstu mánuð- um, hafi það óskað eftir frystingu. Fólk þarf hvorki að borga inn á lánið sjálft né vexti af láninu. Þessi aðgerð á heldur ekki að kosta krónu. Þorfinnur ráðleggur fólki að leggja fyrir til að lenda ekki í greiðsluerfið- leikum þegar gjaldeyrismarkaður- inn opnar á nýjan leik. „Fólk ætti að vara sig á því að það er ekki verið að gefa afborganir, heldur standa von- ir til þess að fólk fái afborganirnar á betri kjörum síðar meir. Við- skiptaráðherra hefur auk þess beint þeim ráðlegging- um til al- mennings að taka mánaðar- lega frá hefðbundna afborgun á eðlileg- um kjörum og leggja fyrir inn á ör- ugga reikninga í bankanum,“ segir hann. Vill fyrirmæli í stað tilmæla Jóhannes gagnrýnir ríkisstjórn- ina fyrir óljósar upplýsingar um frystingu myntkörfulána. Hann vill sjá skýrari skilaboð frá viðskipta- ráðherra. „Vandamálið er að okkar mati það að í stað þess að fyrirskipa beinir hann tilmælum. Get- ur eigandinn ekki gefið fyrir- mæli?“ spyr Jóhannes. Í fjölmiðlum hefur kom- ið fram að bankarnir hafi mismunandi útfærslur á frystingu lánanna. „Mað- ur hefði viljað sjá ná- kvæmlega sömu útfærslu hjá öllum bönkunum,“ segir Jóhannes en Neyt- endasamtökin sendu í síð- ustu viku frá sér yfirlýsingu þar sem óskað er eftir skýr- ari upplýsingum til neyt- enda. Hana má lesa á vef Neytendasamtakanna, ns.is. Gildir ekki um bílalán Tilmæli ríkisstjórnarinnar náðu bæði til nýju ríkisbankanna þriggja og annarra lánastofn- ana í landinu. Aðspurður segir Þorfinnur að til- mælin eigi ekki við um bílalán jafnvel þótt fjármálafyrirtæki hafi eftir atvikum veitt frystingu á bílalánum í erlendri mynt. „Þess er ekki óskað af ríkisstjórnini beint, heldur er það undir fjárámálastofn- unum komið. Okkur er kunnugt um að þau hafi gert það og því getur þá fylgt kostnaður,“ segir Þorfinnur að lokum. Á ekki við um bílalán segir upplýsingafulltrúi Þorfinnur ómarsson segir tilmælin um frystingu ekki ná til bílalána. Vill skýrari fyrirmæli ráðherra jóhannes gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að fólk eigi ekki að geta tapað á frystingu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.