Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Blaðsíða 20
Þriðjudagur 28. Október 200820 Fókus Jerry og Rachel þekkjast hvorki né eiga neitt sameiginlegt annað en undarleg símtöl sem þeim ber- ast skyndilega. Með bellibrögðum og hótunum eru þau sett í ferli sem sér ekki fyrir endann á. Endanleg- ur tilgangur er þeim ekki ljós fyrr en undir lokin og þá virðist vera of seint að hætta við. Þetta virðist vera eitt- hvað almáttugt apparat sem knýr þau áfram til verkanna sem birtist manni sem tölvuvætt Kafkaævin- týri með ofsóknarbrjálæðinu sem því hlýtur að fylgja. Jerry er tekinn í hið lagalega svarthol sem nýleg hryðjuverkalöggjöfin hefur mótað. Ekki í fyrsta skipti sem menn lenda í þeim óhugnaði. Með eftirlitstækninni sem nú er orðin að veruleika og birtist manni í þessari mynd, hlýtur maður að spá því að 1984 verði endurgerð á næstu árum. En sú mynd hefur engu að síður miklu betri sögu en hér birt- ist manni. Byrjun Auga arnarins er kraftmikil. Grafík, brellur og hljóð eru til fyrirmyndar að ógleymdum svakalegum bílasenum. Shia La- Beouf leikur allavega nógu vel til að fá samúð manns. Ekki síst í jarð- arfararsenu nokkurri sem er flott í sinni dramatík. FBI-fulltrúinn er leikinn af Billy Bob Thornton sem er alltaf skemmtilegur, þótt hann fái nú ekki alltaf bestu hlutverk- in. Hasarinn er góður og spenn- an helst framan af þar til formúlan tekur öll völd undir lokin. Við fáum góðan slatta af þjóðernisþvælu sem er löngu búið þema og allir hafa fengið nóg af, blaktandi fánar, þjóð- söngur og gubb. Myndin lofar góðu í upphafi en tæplega er hægt að gagnrýna Pandórubox eftirlitssamfélags- ins á snyrtilegri hátt en þetta. Formúlumyndir rista einfaldlega ekki dýpra en þetta. Og svo þarf við fyrsta tækifæri að reka Holl- ívúdd-hljóðmanninn sem læt- ur tölvur og skordýr öskra. Kvik- myndagerðarmönnunum á bak við Auga arnarins tekst ætlun- arverkið, að gera formúlumynd með örlitlum boðskap. Ef það er nóg fyrir þig, þá verði þér að góðu. Erpur Eyvindarson á þ r i ð j u d e g i dick Tracy í Bæjarbíói kvikmyndasafnið sýnir spennu- og ævintýramyndina Dick Tracy í bæjarbíói í kvöld klukkan 20. Myndin er byggð á vinsælli teiknimyndasögu um samnefndan leynilögreglumann og viðureign hans við bófagengi í undirheimum stórborgar- innar. Mörgum finnst að aldrei hafi betur tekist til við að yfirfæra teiknimynda- sögu í kvikmyndabúning. Warren BeaTTy leikstýrði, framleiddi og lék aðalhlut- verkið í myndinni. Vandræðalegir grínarar Ég vaknaði með Simma og Jóa á laugardagsmorguninn en þeir félag- ar fara í loftið klukkan níu. Að vanda voru fjölmiðlamennirnir þjóðþekktu í miklu stuði og glöddu hlustendur með föstum liðum eins og leynigesti og kökugjöfum. Leynigesturinn var að þessu sinni Dagur B. Eggertsson og Simma og Jóa kökuna gáfu þeir meðal annars henni Soffíu hans Stjána stuð sem hringir víst reglu- lega inn og rabbar um daginn og veginn. Þegar komið var að enn einum föst- um lið þáttarins ákváðu þeir félagar þó að breyta aðeins til. Vaninn er sá að vekja einn þjóðþekktan ein- stakling en þennan laugardaginn ákváðu þeir að hringja í sauðsvartan almúgann eins og þeir sjálfir orð- uðu það. Þeir hringdu af handa- hófi í Hermóð nokkurn. Hermóður var valinn vegna þess hve sjaldgæft nafn hans er. Ekki var Hermóður að springa úr kátínu og ákváðu spaug- ararnir þar af leiðandi að hringja í hana Hermínu úti á landi. Karl- mannsrödd svaraði og þegar Simmi og Jói óskuðu eftir að fá að tala við Hermínu svaraði karlmannsrödd- in: Hún Hermína er bara dáin. Lagi var skellt á fóninn á núll einni og þetta vandræðalega augnablik ekki rætt frekar það sem eftir lifði þátt- ar. Stundum getur góðlátlegt grín greinilega breyst í dauðans alvöru. Kolbrún Pálína Helgadóttir gerVahönnuð- ur fellir grímuna Stefán Jörgen Ágústsson gerva- hönnuður (e. special makeup effect artist) hefur komið víða við á ferli sínum og gert brúður, skrímsli, leikmuni, grímur og gervi fyrir kvikmyndir, leikhús og söfn. Þar á meðal eru kvikmyndirn- ar Flags of Our Fathers og Mýrin, þættirnir um Latabæ og leiksýn- ingarnar Gosi, Bakkynjur og Blái hnötturinn. Stefán ætlar að segja frá starfi sínu í máli og myndum á svokölluðu Kúlukvöldi í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu á morgun klukk- an 20. Kúlukvöldin eru nokkuð sem UNIMA (alþjóðleg samtök brúðuleikhúsfólks) standa fyrir í lok hvers mánaðar í vetur en þar verða gestir leiddir inn í töfrandi heim brúðuleikhússins með lif- andi og fjölbreyttri dagskrá. á STóra Bróður dieT-ádeila Fyrri Saints Row-leikurinn þótti skemmtilegur, en þó einum of keimlíkur GTA-leikjunum og ekki nærri því jafngóður. Nú er kominn seinni leikurinn, sem ólíkt þeim fyrri bætir heilmiklu við. Leik- menn fara í hlutverk þess sama og sást springa í tætlur í lok fyrri leiksins. Maður vaknar á sjúkra- húsi, flýr og voila, fyrr en varir er maður kominn á götur Stilwater með tilheyrandi usla. Leikurinn gengur nánast út á það nákvæm- lega sama og GTA; að byggja upp glæpaveldi. Þó svo að hér sé sag- an ekki næstum því eins vel skrif- uð og persónusköpun sé minni en í GTA er í leiknum heilmikið fjör, sama fjör og einkenndi fyrri GTA-leiki, sama fjör og mörgum fannst vanta í hinn magnaða GTA 4. Leikurinn gengur sem sagt út á það að vinna einhver verkefni, en milli þeirra þurfa menn að afla sér virðingar. Þar kemst leikur- inn á sem hæst flug. Menn geta til dæmis dælt skólpi á byggingar og bisnesslið út um alla borg, keppt í skipulögðum slagsmálum eða kappakstri, þóst vera löggur fyrir heimildarmyndagerðamenn og margt fleira. Ólíkt GTA geta leik- menn líka stjórnað útliti sinnar persónu mjög ítarlega og aukastig eru gefin fyrir smart klæðaburð og vit á innanhúshönnun. Stýringar í leinum eru þægilegar, þá sérstak- lega í skotbardögum og í návígi. Auðvitað er hér ekkert stórvirki á ferðinni, heimurinn sem hér er skapaður er miklu hæpnari en nokkurn tíma GTA 4 og grafíkin ekki nærri því jafngóð. En engu að síður er Saints Row skemmti- legur leikur, góð viðbót við GTA 4 og þörf áminning um að lýtalaus grafík og raunsæi sé ekki alltaf nauðsynleg hráefni í leiki eins og þennan. Dóri DNA Ágætis viðbót útvarp Simmi og Jói Bylgjunni á laugardögum klukkan 9 tölvuleikir SaintS Row 2 Tegund: Hasarleikur Spilast á: PS Saints Row 2 Áminning um að gallalaus grafík er ekki allt. kvikmyndir EaglE EyE Leikstjórn: d.j. Caruso Aðalhlutverk: Shia Labeouf, Michellle Monaghan, rosario dawson, billy bob thornton Nóg? „kvikmyndagerðarmönn- unum á bak við auga arnarins tekst ætlunarverkið, að gera formúlumynd með örlitlum boðskap. ef það er nóg fyrir þig, þá verði þér að góðu,“ segir gagnrýnandi um eagle eye. Billy Bob Thornton og Rosario Dawson thornton er alltaf skemmtilegur þótt hann fái ekki alltaf bestu hlutverkin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.