Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 28. Október 2008 13Fréttir Almenningi í Indónesíu ofboðið vegna gerða múslímsks klerks: Enn eru sjö dagar til forsetakosninga í Bandaríkjunum og þar næstu kosn- ingar ekki fyrr en eftir fjögur ár. Engu að síður brennur á fólki spurningin um hvort Sarah Palin, varaforsetaefni rep- úblikana, bjóði sig fram til forseta árið 2012. Frá stuðningsmönnum hennar heyrast áeggjanir um að hún eigi að kýla á það og þeir sjá í henni leiðtoga sem fær er um að stýra skútu íhaldsins úr slippnum. Þeir telja Söruh stjórn- málamann sem geti vakið repúblikana af Þyrnirósarsvefninum, líkt og Barack Obama gerði gagnvart demókrötum. Ef svo skyldi fara 4. nóvember að Obama stæði með pálmann í hönd- unum, og margir íhaldsmenn hall- ast að því, er sennilegt að hvatningar- söngur stuðningsmanna Söruh Palin hækki. En ekki eru allir íhaldsmenn á hennar bandi og því má búast við því að hún verði einnig hvött til að fara til síns heima. Víst er að nú þegar veldur Sarah Palin félaga sínum, John McCain, vandræðum. Um síðustu helgi þurftu ráðgjafar McCains ítrekað að taka á fréttum þess efnis að Palin væri „farin á flakk“ og legði meiri áherslu á per- sónulegt markmið sitt vegna kosning- anna 2012 en að einbeita sér að því markmiði sem hún og John McCain vinna að í sameiningu. „Græn“ og hroðvirknisleg Ónafngreindur ráðgjafi Johns McCain sagði í viðtali við fréttastofu CNN: „Hún er díva. Hún hugsar um eigin framtíð og telur sig vera næsta leiðtoga flokksins.“ Á vefsíðu Politico má líta sjónarmið annars ónafngreinds ráðgjafa McCains sem átelur Söruh Palin fyrir að vera „græn“, hroðvirknisleg og óskiljanlega viljug til að gagnrýna baráttuaðferðir Johns McCain. Undanfarið hefur Palin orðið upp- vís að því að vera á skjön við baráttu McCains. Hún fordæmdi opinberlega þá ákvörðun McCains að leggja árar í bát í Michigan og spurði hvað valdi því að spjótunum sé ekki lengur beint að predikaranum róttæka, Jeremiah Wright, vegna tengsla hans við Obama og ummæla sem hann hefur látið falla. Með þessu hefur Sarah Palin upp- skorið skiptar skoðanir í Bandaríkjun- um. Hún hefur óneitanlega skapað sér ímynd afar hrífandi stjórnmálamanns, en einnig ímynd stjórnmálamanns sem veldur sundrungu. Henni hefur tekist að kljúfa kjósendur í tvo hópa; þann sem sér í henni kjarna smábæja Bandaríkjanna, og hinn sem telur hana tákn þröngsýni Bandaríkjanna. Nýtur aðdáunar margra Þessi sundrung ristir djúpt í kjarna íhaldsins í Bandaríkjunum, og end- urspeglar grundvallarágreining hvað varðar framtíðarstefnu Repúblikana- flokksins. Það er nokkuð ljóst að fari svo að John McCain tapi kosningunum munu eftirmálarnir einkennast af þætti Söruh Palin og persónu hennar. Rich Lowry, ritstjóri íhaldsblaðs- ins National Review, er einn aðdáenda Palin og hann telur að hún muni bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna 2012. „Hún hefur ímynd rokkstjörnu. Hún hefur fengið tækifæri til að birtast þjóð- inni og nafn hennar öðlast virðingu sem margir metnaðarfullir stjórnmála- menn myndu drepa fyrir,“ sagði Lowry í viðtali við breska dagblaðið Guardian. Sarah Palin á víðar Hauka í horni, meðal annars áhrifamikla menn í ranni Weekly Standard, til dæmis William Kristol, sem er í eigu Ruperts Murdoch. Kristol skrifar einnig fyrir New York Ti- mes, sem hefur opinberlega lýst yfir stuðningi við Obama. Á bandi Palin er einnig að finna nokkra kynna á sjón- varpsstöðinni Fox News, sem einnig er í eigu Murdochs. Einnig sækir hún stuðning til leiðtoga kristnu evangelísku samtakanna sem hún sjálf tilheyrir. Skilningi varpað fyrir róða Í hinu horninu eru annars konar hófsamir, íhaldsmenn. Þeirra á með- al er félagi Kristols á New York Times, dálkahöfundurinn David Brooks. Brooks er ómyrkur í máli varðandi Söruh Palin. Brooks lítur á Palin sem hluta afla íhaldshreyfingarinnar sem vill mjaka henni frá vitsmunahyggju. „Hér áður fyrr mátu íhaldsmenn Churchill og Lincoln mest manna, sem undir- bjuggu sig fyrir stjórn með lestri, skilningi á sögu og þróaðri hugsun. Nú hefur þessum eiginlekum ver- ið fórnað fyrir almennan skilning,“ skrifaði Brooks og skírskotaði til Söruh Palin. Þessi mynd af vitsmunalegri fá- tækt Söruh Palin er afurð hörmulegra viðtala sem hún hefur veitt í sjón- varpi. Í þeim var henni fyrirmunað að svara einföldum spurningum á borð við hvaða dagblöð hún lesi. Og til að bæta gráu ofan á svart var hún dregin sundur og saman í háði í sjónvarps- þættinum Saturday Night Live. Palin hefur síðan sjálf styrkt þessa ímynd með talanda sínum og gagnrýni sinni á Obama fyrir að „tilheyra elítunni“: Betur má ef duga skal Michael Franc er sérfræðingur í stjórnarsamskiptum hjá hugmynda- banka hinnar íhaldssömu Heritage- stofnunar. Hann álítur að Palin hafi varpað ljósi á mikilvægar umræður sem vakna að kosningum loknum; hvort flokkurinn eigi að feta áfram stigu lýðhyllistefnunnar, sem Ronald Reagan lagði grunninn að, eða tileinka sér meiri hörku. Franc sagði að lýðhyllistefna Söruh Palin höfðaði aðeins til um fjörutíu og fimm prósenta kjósenda. „Eitthvað þarf að breytast svo flokkurinn komist aftur yfir fimmtíu prósentin,“ sagði Franc. „Lýðfræðileg samsetning Banda- ríkjanna hefur breyst í þá veru að vel menntuðum kjósendum hefur fjölgað og þeir eru búnir að fá sig fullsadda af orðagjálfri lýðhyllisinna og eru mót- tækilegir fyrir sókn demókrata,“ sagði Michael Franc. Ef Sarah Palin á að eiga raunhæfa möguleika 2012 er henni nauðugur einn kostur að ná til þessa hóps. Frægð og þokki hrökkva skammt Rich Lowry, ritstjóri National Revi- ew, tekur undir með Michael Franc um að Sarah Palin þurfi að bæta um betur í pólitískri ímynd sinni. „Ef hún reynir að fljóta á frægð sinni og þokka eingöngu kastar hún á skarn frábæru tækifæri sem hún hef- ur fengið upp í hendurnar. En ef hún skilgreinir hvað íhaldssemi að hætti Söruh Palin merkir verður hún hæfur keppandi,“ sagði Lowry. Ef John McCain, og þar af leið- andi Sarah Palin, bíður lægri hlut í næsta mánuði bíður Söruh erfitt verk. Hún þarf að tryggja að hún falli ekki í gleymsku og dá fyrir kosning- arnar 2012. Hún gæti átt við ramman reip að draga ef hún þyrfti að treysta á fjölmiðla í strjálbýli Alaska. Víst er að hún mun njóta hjálpar fjölmiðla sem viljugir eru til að hampa frægð henn- ar. En einhver áhöld eru um hversu skynsamlegt það væri fyrir Palin að nýta sér fjölmiðla í ljósi fyrri afreka. Robert Thompson, prófessor í popp- menningu við Syracuse-háskólann, telur það ekki vænlegan kost fyr- ir Söruh Palin: „Hún þarf að byggja upp pólitískt vægi sitt en hana hefur skort það og að veita sjónvarpsviðtal er ekki endilega besta leiðin.“ Obama fær stuðning frá Alaska Víðlesnasta dagblað Alaska, heimafylkis Söruh Palin, hefur lýst yfir stuðningi við Barack Obama. Í dagblaðinu, Anchorage Daily News, segir að Palin ríkisstjóri sé „of tvísýn“ til að vera einu skrefi frá forsetaemb- ættinu. Í leiðara blaðsins segir að útnefn- ing hennar hafi „fangað huga“ íbúa Alaska, en það megi ekki „skyggja á alla aðra dómgreind“. En leiðarahöf- undur ítrekaði þó að óvarlegt væri að vanmeta Söruh Palin. Múslímskur klerkur hefur vakið mikla reiði meðal almennings í Indó- nesíu eftir að hann kvæntist tólf ára stúlku. Klerkurinn, Pujianto Cahyo Widianto, kvæntist stúlkunni í borg- inni Semarang á eyjunni Jövu, við óopinbera trúarathöfn. Samkvæmt fregnum valdi hann stúlkuna úr hópi tuttugu stúlkna, og flaug að athöfn lokinni til Singapúr ásamt hinni nýju brúði og fyrstu eiginkonu sinni. Lögregluyfirvöld í Indónesíu hafa hafið rannsókn á ráðahagnum, en Puj- ianto Cahyo Widianto á yfir höfði sér ákærur ef hann verður sekur fundinn. Rannsóknaraðilar á vegum barna- verndarstofnunar Indónesíu sögðu að Widianto hefði kosið stúlkuna á grundvelli gáfna hennar og líkamlegs og andlegs þroska. Þeir sögðu einnig að Pujianto Cahyo Widianto, sem rek- ur íslamskan heimavistarskóla, hefði haft áform um að setja stúlkubarnið yfir annað fyrirtæki sem hann rekur, skrautskriftarvinnustofu. Ekki liggur ljóst fyrir hvort hjóna- bandið hafi verið fullkomnað, en ef sú er raunin er hægt að kæra Widianto á grundvelli laga um barnavernd og hjónaband og vinnulöggjafar. Pujianto Cahyo Widianto er sagð- ur hafa réttlætt gerðir sínar með því að segjast vera að líkja eftir spámanni íslams, Múhameð, og að hann myndi bíða þar til nýja eiginkonan næði kynþroskaaldri með að hafa mök við hana. Sú yfirlýsing nægði ekki til að lægja reiðiölduna í Indónesíu vegna hjónabandsins. Háttsettur meðlimur íslamska stjórnmálaflokksins PKS sagði að hann teldi Widianto hafa breytt rang- lega og hugmyndir hans um íslam væru rangar. Lögreglan í Indónesíu hefur ekki farið fram á að stjórnvöld í Singapúr framselji Pujianto Cahyo Widianto klerk, en rannsókn málsins er fram- haldið. Kvæntist tólf ára stúlku „Lýðfræðileg samsetn- ing Bandaríkjanna hef- ur breyst í þá veru að vel menntuðum kjós- endum hefur fjölgað, og þeir eru búnir að fá sig fullsadda af orða- gjálfri lýðhyllisinna og eru móttækilegir fyr- ir sókn demókrata,“ sagði Michael Franc. Palin veldur sundrungu Sarah Palin er ekki árennileg Víðlesnasta dagblað alaska styður barack Obama en segir að ekki skuli vanmeta Söruh Palin. Í svörtum kufli Múslímsk stúlka gengur framhjá heimavistarskóla í indónesíu. Einstök bók um mann sem mætt hefur meiri mótbyr en gengur og gerist, en býr þó yfir fádæma lífsgleði og baráttuþreki og horfir ávallt fram á veginn. MEÐAN HJARTAÐ SLÆR MEÐAN HJARTAÐ SLÆR -lífsreynslusaga Vilhjálms Þórs Vilhjálmssonar -í senn hugljúf og skemmtileg bók

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.