Fréttablaðið - 13.11.2014, Síða 46

Fréttablaðið - 13.11.2014, Síða 46
KYNNING − AUGLÝSINGJólahreingerning FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 20144 ÞRIF Á SÍÐUSTU STUNDU Ef ekki gefst tími til að þrífa húsið hátt og lágt fyrir jólin, taka alla skápa í gegn og hreinsa út úr geymslunni má bjarga sér með ýmsum ráðum. Þá er sniðugt að leggja áherslu á þau rými þar sem gestir ganga um. Hvort sem fólk kemur í kaffi eða bara til að skiptast á jólagjöfum þá sér það inn í forstofuna og því er mikilvægt að hún sé vel þrifin. Einnig þau herbergi sem gestir munu örugg- lega dvelja í eins og salerni, borð- stofa og stofa. Ryksugið, þurrkið af og skúrið þessi svæði, þrífið auk þess salerni og vask á bað- herbergi vandlega. Látið önnur herbergi mæta afgangi, kveikið á kertum á hreinu svæðunum, skellið tilbúnum kanilsnúðum í ofninn til að fá jólalykt í húsið og bjóðið gesti velkomna. EDIK ER GOTT HREINSIEFNI Edik er til margra hluta nyt- samlegt. Það er ódýr lausn við ýmsar hreingerningar. ● Egg springur ekki við suðu ef edik er í vatninu. ● Setjið tvær teskeiðar af ediki í rakatækið ef þið eruð með hálsbólgu. ● Setjið edik í mjúkan klút og þurrkið af DVD-diskunum. Þeir verða eins og nýir. ● Ef bolirnir þínir eru með blettum undir höndum vegna svitakrems er edik málið. Setjið edik í úðaflösku og úðið á bletti áður en þeir eru settir í þvottavél. Gæti jafnvel dugað á tómatsósu og sinnep. ● Stundum er erfitt að ná límdum verðmiðum af hlutum. Bleytið miðann með ediki og bíðið í fimm mínútur. Þá ætti að vera auðvelt að þurrka hann burt. ● Er hrímið á bílrúðunni að pirra ykkur? Setjið þrjá hluta af ediki á móti einum hluta af vatni og þrífið rúðuna vel með blönd- unni. ERFIÐIR BLETTIR Kertavax og rauðvín á það til að sullast niður á jóladúkinn. Hvort tveggja skilur eftir sig ljóta bletti. Hér eru nokkur ráð til að ná þeim úr. Kertavax: Leggið eldhúsbréf, hvíta servíettu eða dagblaðsbút yfir kertavaxblettinn og strauið yfir. Hitinn bræðir vaxið og pappírinn dregur fituna í sig. Ef einhver fita verður eftir er gott að dreypa uppþvottalegi yfir og þvo síðan samkvæmt þvottaleiðbeiningum. Rauðvín: Byrjið á að þurrka mesta vökvann upp. Stráið matarsóda yfir blettinn og látið þorna. Skolið og þvoið samkvæmt leiðbeiningum. Eins má prófa að hella hvítvíni eða sódavatni strax yfir blettinn, þurrka með svampi og þvo. Við minnum á að nú fer í garð tími þar sem margir heimsækja fyrirtækið þitt - og þá er gott að hafa í huga: Hreingerningar Gluggaþvott Parket hreinsun Steinteppaþrif Bónvinnu Öllum líður betur á hreinum vinnustað. Sendið okkur línu á sala@iss.is eða hringið til okkar í síma 5800 600 og við bregðumst við af fagmennsku. Við leggjum áherslu á gæði, nákvæmni og góða þjónustu Starfsfólk ISS Ísland. F A C I L I T Y M A N A G E M E N T | C L E A N I N G | S U P P O R T | P R O P E R T Y | C A T E R I N G | S E C U R I T Y | www.is.issworld.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.