Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2012, Blaðsíða 17
Fréttir 17Helgarblað 23.–25. nóvember 2012 UMDEILDUSTU PRESTAR ÍSLANDS n Prestar sem vakið hafa athygli fyrir gjörðir sínar eða viðhorf n Þjóðkirkjan hefur leikið á reiðiskjálfi n „Ég verð að sanna sakleysi mitt“ „Ég verð að sanna sakleysi mitt“ Misnotkun í skjóli kirkjunnar „Illmenni“, „grimmur“ og „ofsafenginn“ eru lýsingar fyrrverandi nemenda í Landakotsskóla á séra George, sem gegndi um árabil starfi skólastjóra þar. Hafði hann með höndum allan rekstur skólans og réð honum alfarið. Ásakanir á hendur honum komu fram í fjölmiðlum þar sem hann var sagður hafa fróað sér í nærvist nemenda, undir skrifborði eða afsíðis, ásamt því að hann hafi nudd- að sér upp að síðu eins drengs og fróað sér þannig. Í flestum tilfellum voru fórnarlömbin drengir. Átta af þrjátíu viðmælendum rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar sögðust hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í Landakotsskóla, helmingur þeirra kvaðst hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi. George nýtti sér stöðu sína til þess að misnota nemendur ásamt kennara í skólanum, Margréti Müller. Dæmi voru um að þau misnotuðu nemendur saman. Hann var með miklar skapsveiflur og var sagður ógnandi. Rannsóknarnefndin var stofnuð eftir að málin komust í fjölmiðla, eftir andlát þeirra Margrétar og George. Er hann gegndi starfi sínu í Landakots- skóla var George rómaður, var mælt með sérstakri viðurkenningu frá Páfagarði honum til handa. Einnig fékk hann fálkaorðuna. „Illmenni“ n Séra George, prestur kaþólsku „Ég skalf og grét alla nóttina,“ sagði Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem sakaði árið 1996 Ólaf Skúlason, þáverandi prest, um nauð- gunartilraun. Brotið átti sér stað að kvöldlagi en hann reyndi að þröngva henni til samneytis í Bústaðakirkju. Málið fékk mikla athygli á Íslandi en kirkjan aðhafðist ekkert í málinu heldur reyndi markvisst að þagga það niður. Sigrún Pálína kom fram með málið en fékk alls staðar sama svarið: „Þú getur ekkert gert, þetta er orð á móti orði.“ Í kjölfarið sagði hún Ólaf hafa hótað sér á sáttafundi vegna málsins. „Þetta mál snýst um vald og valdníðslu,“ sagði hún við Helgarpóstinn árið 1996 og kvaðst óttast að aðrar konur yrðu einnig fyrir kynferðisof- beldi af hálfu Ólafs. Kirkjan stofnaði fagráð um kynferðisofbeldi árið 1998 en Sigrún Pálína fékk ekki uppreisn æru fyrr en árið 2011, þegar henni voru greiddar sanngirnisbætur. Ólafur var þá látinn og málið hafði aftur verið tekið upp í fjölmiðlum. Ótti Sigrúnar um að Ólafur myndi misnota fleiri konur var á rökum reistur. Tíu konur höfðu samband við fagráðið og sögðu Ólaf hafa beitt sig kynferðis- ofbeldi. Fjórar af þeim fengu sanngirnisbætur á sama tíma og Sigrún. Ein þeirra er Guðrún Ebba, dóttir Ólafs. Vald og valdníðsla n Ólafur Skúlason, biskup Þjóðkirkjunnar Trúði ekki Sigrúnu Pálínu Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Grafar- vogskirkju, er einn þeirra sem tengjast máli Ólafs Skúlasonar biskups. Sigrún Pálína Ingvarsdóttir kom á fund til hans þar sem hún útskýrði fyrir honum hvernig Ólafur Skúlason hefði áreitt hana. Í skýrslutöku hjá lögreglunni árið 1996 sagði Vigfús Þór Árnason að hann hefði tek- ið á móti Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og hlustað á hana en það væri ekki það sama og að trúa því sem sagt hefði verið. Orðrétt er haft eftir Vigfúsi Þór í lögreglu- skýrslunni: „Ég hlustaði á hana og leit þannig á að hún væri fyrst og fremst að létta af sér byrði.“ Þá var Vigfús spurður hvað hann hefði gert með þessa vitneskju. „Ég hélt þessu leyndu fyrir öllum og ræddi þetta ekki við nokkurn mann, enda þessar ásakanir ósannaðar og mjög alvarlegar.“ Sakaður um þöggun Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sakaði séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprest um að hafa gengið erinda biskups og reynt að þagga niður í henni. Hún átti fund með þeim Hjálmari og Karli Sigurbjörnssyni eftir að hún hafði sakað Ólaf Skúlason biskup um nauðgunartilraun. „Ég hélt að þeir ætluðu að hjálpa mér. Þeir virtust reiðubúnir til þess og það var óskaplegur léttir. Loksins virtist einhver trúa mér.“ Það hafi síðan allt runnið út í sandinn þegar hún var beðin um að skrifa undir yfirlýsingu þar sem hún drægi sannleikann til baka. Hjálmar hefur hins vegar sagt að hann hafi verið allur af vilja gerður til að hjálpa Sig- rúnu Pálínu: „Ég olli henni vonbrigðum og var ekki fær um að veita þá hjálp sem hún leitaði. Það sem ég gerði var ekki nóg. Fyrir það bið ég hana fyrirgefningar.“ Jólasveinninn er ekki til Séra Flóki Kristinsson starfaði í Langholtskirkju árið 1996 þegar Sigrún Pálína Ingvarsdóttir leitaði til hans. Í kjölfarið sendi Ólafur Skúlason út fréttatilkynningu, þar sem Flóki var sagður hafa fengið konurnar til að ljúga ofbeldinu upp á Ólaf. Flóki hefur sagt Karl Sigurbjörnsson hafa stutt Ólaf og hefur aldrei treyst honum síðan. „Mér hefur oft liðið mjög illa vegna þessa máls,“ sagði Flóki í samtali við DV í ágúst 2010. Séra Flóki vakti athygli fyrir störf sín þegar hann var prestur á Hvanneyri. Netheimar loguðu mánudaginn 19. desember árið 2005, fimm dögum fyrir jól, þegar haft var eftir séra Flóka, á forsíðu DV að jólasveinn- inn væri ekki til. Hann hafði opinberað þetta fyrir nemendum sínum í sunnudagaskól- anum og sagði í samtali við DV að hann vildi ekki skrökva að krökkunum. Foreldrar reiddust og kölluðu hann taktlausan. Sagður beita einelti Fyrr á þessu ári komu fram fréttir þess efnis að séra Hjörtur Magni Jóhannsson prestur í Fríkirkjunni hefði beitt starfsfólk kirkjunnar einelti. Deilur vegna þessa höfðu þá átt sér stað innan safnaðarins um nokkuð skeið og náðu hámarki þegar fjórir af sjö meðlimum safnaðarráðs kirkjunnar sögðu sig úr ráðinu. „Þetta voru svona persónulegar árásir. Hann var stöðugt að segja manni hversu ómögulegt þetta og hitt væri. Það var ekki bara skortur á hrósi heldur var verið að grafa undan sjálfstrausti.“ Þannig lýsti Ása Björk Ólafsdóttir prestur framkomu Hjartar í sinn garð. Hún starfaði um sex ára skeið við Fríkirkjuna, fyrst sem kirkjuvörður og síðar prestur. Ása lýsti ástandinu sem slæmu einelti og hraktist hún úr starfi árið 2008, niðurbrotin eftir samskiptin við Hjört Magna. Forstöðu- konan á Bjargi Séra Auður Eir Vilhjálms- dóttir veitti vistheimilinu Bjargi forstöðu sem Hjálp- ræðisherinn rak vestur á Seltjarnarnesi árin 1965 til 1967. Kynferðislegt ofbeldi, líkamlegar refsingar og niðurlæging var veruleiki þeirra stúlkna sem vistaðar voru á stúlknaheimlinu. Þetta kemur fram í skýrslu vistheimilisnefndar um starfsemi Bjargs, Kumbaravogs og Heyrn- leysingjaskólans. Endalok starfseminnar á Bjargi urðu tilefni mikillar fjölmiðlaumfjöllunar í lok sjöunda áratugarins. Í samtali við DV sagði Auður að ásakanirnar ættu ekki við rök að styðjast. „Þetta eru mjög þungar ásakanir sem þarna koma fram. Þær eru ekki réttar,“ sagði hún. Þær konur sem komu fyrir vistheimilisnefndina greina hins vegar frá því að hafa þar verið beittar alvar- legu ofbeldi. Auður Eir var fyrsti kvenprestur- inn sem fékk vígslu á Íslandi, en hún var vígð til prests 1974.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.