Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2011, Blaðsíða 55
54 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
geta ekki sinnt þessum þörfum sínum í næði.26 Á nokkrum íslenskum skipum
var fatan einnig notuð til að sækja sjó fyrir dekkpumpuna, í karið sem fiskurinn
var þveginn í og til að skola þilfarið. Jafnvel kokkurinn á að hafa tekið upp sjó
með fötunni til sinna þarfa, þótt ótrúlegt megi virðast.27 Það kom fyrir að fatan
varð mönnum að yrkisefni. Á kútter Guðrúnu frá Gufunesi gekk hún undir
nafninu Karólína og fékk margar vísur frá hagyrðingi um borð:
Karólína er kvenna best
kalla ég hana rara
unga og gamla í einni lest
á sig lætur fara.28
Einu sinni týndist Karólína og þá var ort:
Karólína er fín og feit
fullvel trúi ég dafni
eftir þessa löngu leit.
lá hún fram í stafni. 29
Kveðskapur þessi er til marks um hvernig félagslegar aðstæður geta haft áhrif á
skopskyn manna, en hefur um leið verið aðferð til að rjúfa tilbreytingarleysið
um borð og skemmta áhöfninni.
Klósettpappír var ekki notaður á skútum, enda komst slíkur varningur
ekki í almenna notkun fyrir en eftir 1940-1950, þótt farið væri að auglýsa
hann í blöðum um 1920.30 Í staðinn skáru menn enda af trosnuðum reipum,
notuðu hálm, gömul blöð og annan tilfallandi pappír eða hvað eina, jafnvel
fingurna: „Sumir notuðu nú bara fingurnar og skoluðu svo af sér á eftir. Þeir
kölluðu það að skrifa 111, sko þegar fingurnir voru notaðir.“31 Ljóst er því
að ekki hefur verið sama tilfinning fyrir hreinlæti og þykir sjálfsögð í dag.
26 Jóan Pauli Joensen, Færøske sluppfiskere. Etnologisk undersøgelse af en erhvervsgruppes
liv. Annales Societatis Scientiarum Færoensis. Supplementum 6 (Tórshavn:
Føroya Fróðskaparfelag 1975), bls. 100. – Jens Friis-Pedersen, Sejlskibe, opmålt,
tegnet og fotograferet af Jens Friis-Pedersen, udg. ved Anders Monrad Møller og Jens
Lorentzen. 1. b. (København: Høst 1980), Søhistoriske skrifter 9 (1980), bls. 36.
27 ÞÞ 5434.
28 ÞÞ 5445.
29 Sama heimild.
30 Verkamaðurinn 11. júní 1921, bls. 58. – ÞÞ. Svör við spurningaskrá 65, hreinlæti
og heilsufar, og skrá 52, lifnaðarhættir í þéttbýli III, heimilishættir.
31 ÞÞ 5601. - Sbr. ÞÞ 5303.