Gripla - 20.12.2012, Page 154
GRIPLA152
skrift Gissurar.50 Hér er lýst nánu samstarfi höfðingja og rithöfundar sem
er skjólstæðingur hans.
Mikilvægasti atburðurinn í þeim flokki vitrana sem réðu úrslitum um
yfirlýsingu Páls biskups á alþingi um heilagleika Þorláks er vitrun Þorvalds
prests. Á jólum 1197, fjórum árum eftir að Þorlákur biskup dó en nokkrum
vikum eftir að jón Loftsson helsti andstæðingur hans var borinn til grafar,
og skömmu eftir að ormur eyjólfsson og Guðmundur prestur höfðu átt
samtal sitt um heilagleika Þorláks, vitraðist hinn framliðni biskup presti
einum í Hólabiskupsdæmi, Þorvaldi að nafni. fór Þorlákur að sögn sjálfur
fram á að áheit á hann yrðu leyfð, bein hans tekin upp og messudagur í lög
leiddur:
Prest einn norðanlands er Þorvaldr hét dreymði fjórum vetrum eptir
andlát Þorláks byskups at hann kom at honum ok sagði honum nær
veðrátta myndi batna, því at þá var vetr þungr. „Gef ek þat ráð til,“,
sagði hann, „at menn leiti graptar míns at sumri ok sé líkami minn
ór jǫrðu tekinn, ok ef nǫkkur þykkja heilagleiks merki at verða
þá geri menn um áheit og dags<hald> við mik sem líkar.“ Hvarf
hann síðan. Prestrinn sagði Brandi byskupi drauminn ok bauð at
sverja.51
Ráðin sem draummaðurinn Þorlákur gefur Þorvaldi þessum geyma þá
áætlun sem fylgt var í smáatriðum sumarið eftir, 1198, þegar áheit voru
leyfð á Þorlák og bein hans tekin upp (þótt Þorláksmessa væri fyrst í lög
leidd sumarið eftir), enda segir í Páls sögu biskups: „var þat allra manna ráð
inna vitrustu með orðsendingu Brands byskups, at heilagr dómr Þorláks
byskups væri upp tekinn ór jǫrðu it sama sumar, eptir því sem hann hafði
sjálfr fyrir sagt í berri vitran Þorvalds prests á jólum inum næstum áðr.“52
í leifum B-gerðar og í C-gerð sögunnar er frásögnin af vitrun Þorvalds
nokkru lengri og sýnilega upprunalegri, og þar er framhald hennar
varðveitt: „ormr prestr er var kapalín ins sæla Þorláks byskups var þá á
vist með Brandi byskupi ok heyrði þessa frásǫgn ok kom ekki á óvart þessi
50 Ólafur Halldórsson 1958–2000 3, 66: „segiz Gvnlavgr synt hafa sǫgv Olafs konvngs Gizori
Hallz s(yni) ok hafdi sagdr Gizor hia ser þa bok vm íj ár. en sidan hon kom aptr til brodr
Gvnlavgs emenderade hann hana sialfr þar sem Gízorí þotti þess vid þvrfa.“
51 Ásdís egilsdóttir 2002, 85.
52 sama rit, 308.