Gripla - 20.12.2012, Page 265
263
8. Ritun Fagurskinnu
Fagurskinna var varðveitt í tveimur skinnhandritum, A og B, sem brunnu
1728. í Fagurskinnu eru vísbendingar um að hún sé samin í Þrándheimi,
þ.e. í niðarósi eða þar í grennd. Benda má á að snorri var einmitt staddur
þar veturinn 1219–1220. tímasetning Fagurskinnu er því lykilatriði varð-
andi það hvort snorri geti verið höfundur hennar. Besta yfirlit um það mál
er í doktorsritgerð Bjarna Aðalbjarnarsonar (Bjarni Aðalbjarnarson 1937,
173–177). Fagurskinna notar Morkinskinnu sem heimild og því getur hún
ekki verið neitt að ráði eldri en 1220. í Fagurskinnu (íf 29, 180, 296) eru
ótta (ottó Iv.) keisari (d. 1218) og eiríkur knútsson svíakonungur (d.
1216) nefndir í þátíð sem dánir, en jóan sörkvisson (1216–1222) er talinn
ríkjandi svíakonungur. í Fagurskinnu sjálfri enda allar ættrakningar fyrir
1220. Bjarni Aðalbjarnarson telur ekkert benda til að Fagurskinna sé rituð
neitt að ráði eftir 1220. Bjarni einarsson (íf 29, cxxvii) miðar við tímabilið
1220–1230.
Ég tel svo margt benda á snorra sem höfund Fagurskinnu að freistandi
sé að telja hana ritaða í niðarósi veturinn 1219–1220. Röksemdir fyrir
því má finna í köflunum hér á undan, og fleirum er bætt við hér á eftir.37
Fagurskinna er mjög konungholl og norsk í viðhorfum. er því talið líklegt
að hún hafi verið sett saman samkvæmt forskrift Hákonar konungs eða
ráðgjafa hans. Hákon tók við konungdómi 1217, 13 ára gamall. Hann var
síður en svo fastur í sessi. togstreita var á milli hans og skúla jarls, sem
einnig gerði kröfu til valda fyrir sjálfan sig eða barnungan bróðurson sinn.
efasemdir voru um að Hákon væri konungborinn, og því hafði móðir hans
árið 1218 borið járn í kristskirkju í Björgvin, til þess að staðfesta að hún
segði satt um faðerni hans. varð hún vel skír. nokkru áður lét Dagfinnur
bóndi, lögmaður og stallari konungs, lesa upp bréf á hirðstefnu í niðarósi.
Þar segir:
segjum vér því svá, at engan vitum vér til fallinn konungsnafn at
bera nema Hákon Hákonarson, því at hans ætt hefir jafnan fyrir
noregi ráðit, maðr eftir mann. (Guðni jónsson 1957 3, 30).
37 Ármann jakobsson (Ármann jakobsson 1997, 279) telur að Fagurskinna sé samin í kringum
kvæðið Noregskonungatal, sem tengist jóni Loftssyni í odda, fóstra snorra. í B-handritinu
bar sagan sama nafn og kvæðið.
HÖfunDuR MORKINSKINNU oG FAGURSKINNU